Víkurfréttir - 21.10.1999, Blaðsíða 10
Landsbankinn og
íslandspóstur
í samstarf
í Sandgerði
Akveðið liefur verið að Landsbankinn
og Islandspóstur hefji samstarf í nýju
húsnæði Landsbankans í Sandgerði
þegar líður á nóvembermánuð. Hið
nýja húsnæði er staðsett að Suðurgötu
2-4 þar sem íslandspóstur er nú til
húsa.
Núverandi húsnæði Landsbankans er
orðið gamalt og hentar illa iýrir nútí-
ma bankastarfsemi auk þess sent
húsið er á tveimur r hæðum. Miklar
breytingarverða gerðar á hinu nýja
húsnæði og verður húsnæðið hið
glæsilegasta eftir breytingar, m.a.
verður komið fyrir nýju afgreiðslu-
kerfi, starfsmenn fá nýjan tölvubúnað
auk þess sem allar innréttingar verða
endumýjaðar. Með nýju at'greiðslu-
kerfi minnkar pappírsnotkun,
afgreiðsluhraði eykst og á sama tíma
verður öryggið meira.
Vegna endurbóta á hinu nýja húsnæði
mun starfssemi íslandspóst flytjast
tímabundið í núverandi húsnæði
Landsbankans. Þetta mun gerast frá
og með mánudeginum 25. október
n.k. þar til að flutt verður í hið nýja
húsnæði sem er áætlað mánudaginn
22. nóvember n.k. Viðskiptavinir
beggja fyrirtækja eru beðnir velvirðin-
gai' á jteiin óþægindum sem hugsanle-
ga geta orðið vegna þess tímabundna
ástands.
Samstarf Landsbankans og Island-
spósts verður með þeim hætti að öll
almenn bankaþjónusta og póst-
þjónusta verða á einum og sama stað.
Landsbankinn og Islandspóstur vilja
leggja áherslu á að enginn skerðing
verður á þjónustu til viðskiptavina
Landsbankans og Islandspósts. I
I 1 I
Bankaráðsfundur hjá Landsbankanum haldinn á Suðurnesjum:
Landsbankinn í sókn
Nýtt eignarhaldsfélag stofnað. Sérhæfir sig í hlutabréfaviðskiptum
vegna skráningar lokaðra hlutafélaga á markaði eða samruna félaga
Markaðshlutdeild Lands-
bankans í innlánum hefur
aukist úr 31 % í 34% undan-
farin 3 ár eða um 1,6 milljarð
króna og á sama tímabili
hefur markaðshlutdeild
Landsbankans í útlánum
aukist úr 29% í 39%, á sama
tíma og markaðshlutdeild
helstu samkeppnisaðila í út-
lánum hefur minnkað.
„Landsbankinn á Suður-
nesjumgegnir lykilhlutverki
við íjármögnun atvinnulífs á
svæðinu, enda em um 77% af
útlánum til fyrirtækja”, sagði
Viðar og benti á að styrkur
Landsbankans á Suður-
nesjum væri meiri íviðskip-
tum við fyrirtæki en einstak-
linga. En undanfarin misseri
hefur bankinn unnið mark-
visst að því að bæta þjónustu
sína við einstaklinga og bjóða
heildarlausnir í fjármála-
þjónustu. A síðasta ári var
kynnt heildarþjónusta fyrir
einstaklinga, Vörðu-
klúbburinn, skemmst er frá
því að segja að þessi þjónusta
hefur hitt í mark á Suður-
nesjum sem og annars
staðar.„Það sem viðskip-
tavinum okkar hefur líkað
hvað best við þessa þjónustu
er að hún byggir á gagnkvæ-
mu trausti, þar sem viðskipta-
maðurinn veitir bankanum
upplýsingar um tjárhagsstöðu
sína og á móti byggir bank-
inn lánaákvarðanir sínar á
þeim, en ekki á tryggingum
eins og ábyrgðarmönnum”,
sagði Viðar.
greinar á Suðurnesjum og
möguleika Landsbankans til
að taka þátt í atvinnuupp-
byggingu á svæðinu. Lands-
bankinn er þegar mikilvægur
bakhjarl í atvinnulífinu á
Suðurnesjum og viðskipta-
banki margra sjávarútvegs-
fyrirtækja á svæðinu, en
Halldór kvað bankann
reiðubúinn að koma að fjár-
mögnun nýrra atvinnugreina.
Þannig hefur bankinn stofnað
sérstakt dótturfélag, Lands-
bankann - Framtak hf„ sem
mun sérhæfa sig í fjármögn-
un nýrra atvinnugreina sem í
mörgum tilvikum fellur ekki
innan ramma hefðbundinnar
tjármögnunar banka. Meðal
annars vill Landsbankinn
taka þátt í uppbyggingu á
sviði orkunýtingar og
heilsutengdrar ferðaþjónustu
á Suðumesjum.
Landsbankinn í
sókn
A kynningarfund-
inum fór Viðar
Þorkelsson Svæð-
isstjóri á Suð-
urnesjum yfir
stöðu bankans og
framtíðarhorfur. I
máli hans kom
fram að bankinn
er í mikilli sókn á
Suðurnesjum og
máli sínu til
stuðnings fór
Viðar yfir mark-
aðshlutdeild
bankans í inn- og
ú t 1 á n u m .
Bankaráð Landsbanka ísl-
ands hf. samþykkti á fundi
sínum sem haldinn var á
Suðurnesjum nýlega að
stofna sérstakt dótturfélag,
Landsbankann -Fjárfestingu
hf. Félaginu er ætlað að
hasla sér völl á sviði við-
skipta með hlutabréf eða
eignarhluta í lokuðum
félögum, m.a. í tengslum við
samruna fyrirtækja eða
skráningu fyrirtækja á
markað. A kynningarfundi
bankans sem haldinn var í
Stapanum í framhaldi af
bankaráðsfundinum kom
fram að ýmsir möguleikar eru
taldir vera á þátttöku í
slíkum verkefnum á Suður-
nesjum, þar sem í hlut eiga
lokuð fjölskyldufyrirtæki
m.a. í sjávarútvegi sem gætu
elfst mjög við skráningu á
markaði.
Bankaráðsmenn, bankastjóri
og nokkrir af framkvæmda-
stjórum bankans heimsóttu
eftir bankaráðsfundinn ýmis
fyrirtæki og skrifstofur
sveitarfélaga á Suðumesjum.
Meðal annars skoðaði Hall-
dór J. Kristjánsson,
bankastjóri Landsbankans,
fjölnota íþróttahúsið í fylgd
með Ellerti Eiríkssyni
bæjarstjóra og lagði einnig
leið sína til Hitaveitu
Suðumesja.
Halldór J. Kristjánsson rakti í
erindi sínu á kynningarfundi
bankans í Stapanum þróun á
innlendum og erlendum
fjármálamörkuðum jafnframt
því sem hann gerði grein fyrir
stöðu Landsbankans í ljósi
hennar. Þá fjallaði hann enn-
fremur um helstu atvinnu-
Frá fundi Landsbankans íStapa.
Nýr framkvæmdastjóri Bílabúðarinnar:
Alhliða þjónusta
fyrip bifpeiðaeigendup
Bfiabúðin í Grófinni 8, keypti
nýlega bifreiðaverkstæðið
sem er í sama húsi og var áður
í eigu Birgis Guðnasonar. Eig-
endur þessa nýja hlutafélags,
sem stofnað var f aprfi á þessu
ári, eru Birgir Guðnason,
Stapafell, Orka og Snorri
Guðmundsson. Benjamín Is-
aksson er nýráðinn fram-
kvæmdastjóri verslunar og
verkstæðis Bílabúðarinnar.
Hann starfaði í mörg ár sem
verslunarstjóri hjá KRAFT hf.
sem er með umboð fyrir
MAN vörubfia.
Hraðari þjónusta
Benjamín sagði að með því að
kaupa verkstæðið þá gæti fyr-
irtækið boðið upp á mun betri
og hraðari þjónustu en áður.
„Við erum með stóran og
góðan lager og einnig getum
við sérpantað varahluti úr
bænum. Ef fólk kemur fyrir
hádegi þá fær það hlutinn
samdægurs”, sagði Benjamín
og bætti við að þeir myndu
leggja áherslu á bremsuvið-
gerðir.
Allt á sania stað
Hann sagði að þjónustan væri
einnig mun víðtækari heldur
en áður því nú fengi fólk allt á
sama stað; smurningu, vara-
hluti og ýmislegt annað í bfi-
inn auk þess sæju þeir um all-
ar almennar bílaviðgerðir.
„Við emm komnir með þjón-
ustuumboð fyrir Suzuki, Bif-
reiðar og Landbúnaðarvélar,
Hondu og frá Bílabúð
Benna”, sagði Benjamín.
Fullkomið málningaborð
I versluninnni er einnig full-
komið málningaborð, og þar
er hægt að láta blanda fyrir sig
lökk í öllurn regnbogans lit-
urn. Ef þess er óskað láta
starfsmenn verslunarinnar
lökkin á úðabrúsa fyrir við-
skiptavini. Benjamín segir að
bæjarbúa hafi tekið þessum
breytingum vel og að fyrir-
tækið sé á uppleið.
Benjamin Isaksson, nýráðinn framkvæmdastjóri verslunar og
verkstæðis Bíiabúðarinnar ásamt Guðna Pálssyni og Guðbjarti
„Badda" Björnssyni íBílabúð. Að neðan eru startsmenn verk-
tæðis, Bjarki Jónsson og Tómas Þórarinsson.
H)
Víkurfréttir