Víkurfréttir - 11.05.2000, Side 10
Flugmálastjórn íslands
-ATS skóli
Grunnnámskeid
flugumferdarstjóra
Flugmálastjórn íslands hefur
ákveðið að halda grunnnámskeið
flugumferðarstjóra næsta vetur.
Grunnnámskeiðið verður væntan-
lega haldið erlendis og hefst í
byrjun september. Grunnnám og
nám til fyrstu réttinda er ólaunað.
Kostnaður vegna uppihalds erlendis
er greiddur af Flugmálastjórn.
Umsækjendur skulu hafa lokið
stúdentsprófi, tala skýrt mál, hafa
greinilega rithönd og gott vald á
íslenskri og enskri tungu. Einnig
skulu umsækjendur fullnægja til-
skildum heilbrigðiskröfum.
Þeir sem áhuga hafa á að sitja þetta
námskeið, skili inn umsóknum á
skrifstofu Flugmálastjórnar á
Keflavíkurflugvelli á 2. hæð
Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar eða í
anddyri nýju flugstjórnarmiðstöðvar
Flugmálastjórnar íslands á
Reykjavíkurflugvelli.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á
skrifstofu Flugmálastjórnar á
Keflavíkurflugvelli, í anddyri
flugstjórnarmiðstöðvarinnar á
Reykjavíkurflugvelli eða á fyrstu
hæð flugturnsins í Reykjavík.
Umsóknafrestur rennur út
1. júní2000.
24 TÍMA FRÉTTAVAKT
ÍSÍMA 8982222
HEILBRIGÐISEFTIRLIT SUÐURNESJA
Tilkynning um
hreinsun lóða og opinna
svæða á Suðurnesjum
Um lóðir:
Umráðamönnum lóða er skylt að halda þeim
hreinum og snyrtilegum sbr. 111 kafla
mengunarvarnareglugerðar nr. 805/1999.
Fjarlægja ber allt drasl af lóðum. Ef ekki
verður orðið við þessum tilmælum getur
Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja látið hreinsa
lóðirnar á kostnað eigenda/umráðamanna
án frekari viðvörunar.
Um hluti á víðavangi:
Bannað er að skilja eftir, dreifa eða geyma
úrgang á þann hátt að valdið geti skaða,
mengun eða lýti á umhverfinu, samkv. áður-
nefndri reglugerð. Þetta gildir jafnt um
smærri hluti sem stærri svo sem: kerrur,
vörubílspalla, bílflök, skipsskrokka o.s.frv.
Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja getur látið
flarlægja slíka hluti án frekari viðvörunar
á kostnað eigenda samanber
27. gr. laga nr. 7. frá 1998.
Opnunartími Sorpeyðingarstöðvar
Suðurnesja er sem hér segir:
Alla daga frá kl. 8 -20
Okkur vantar
helgarstarfsfólk í sumar í
matvörudeild, kassadeild
og fatadeild .
Vinsamlega staðfestið
fyrri umsóknir.
Umsóknareyðublöð liggja
frammi í verslun okkar.
■■■ HAGKAUP wmm
• Njarðvík • • Njarðvík •
Vortónleikap
Víkinganna
Söngsveitin Víkingar heldur
vortónleika fimmtudaginn
18. maí kl. 20.00 í Safnaðar-
heimilinu í Sandgerði og í
Keflavíkurkirkju laugar-
daginn 20. maí kl. 18.00
Söngsveitin, sem er á sjöunda
starfsári, er einkum skipuð
vöskum sveinum úr Garði og
Sandgerði en hefur einnig
fengið liðauka af Stór-Njarð-
víkursvæðinu. Stjórnandi er
hinn valinkunni Einar Örn
Einarsson.
Efnisskráin er fjölbreytt og
samanstendur af íslenskum og
erlendum lögum til dægurlaga
dagsins í dag. Einnig verða
frumflutt lög eftir tvo kórfé-
laga, þá Vigni Bergmann og
Hólmberg Magnússon. Mörg
lögin eru útsett sérstaklega
fyrir Víkingana af söngstjóra
kórsins.
Olíu-
mengun í
Grinda-
víkurhöfn
Olía lak úr skipi sem lá við
festar í Grindavíkurhöfn sl.
föstudag. Hafnarvörður
liellti olíueyði í höfnina og
náði að eyða mengunarvald-
inum að mestu.
Þegar farið var að grennslast
fyrir um orsakir slyssins, kom í
ljós að skipverjar höfðu verið
að þrífa gólfið í vélarrúminu
skömmu áður. Síðan var lensað
en olían fór þá út með
kjölvatninu og myndaði stóran
flekk í höfninni.
Oddur Sæmundsson,
skipstjóri í Keflavík verður
50 ára 12. maí nk. Hann og
fjölskylda hans taka á móti
gestum í K.K. salnum,
Vesturbraut 17
kl. 20 á afmælisdaginn.
10