Víkurfréttir - 24.08.2000, Side 9
Mikil vakning
meðal bæjarbúa
Fallegir garðar eru
augnayndi en undan-
farin ár hefur orðið
mikil vakning á meðal bæj-
arbúa hvað varðar garðrækt
og umhirðu húsa. Reykjanes-
bær veitir árlegar viðurkenn-
ingar fyrir hús og garða sem
þykja snyrtilegir og vel hirtir.
Viðurkenningarnar voru af-
hentar í gær á veitingahúsinu
Ránni í Keflavík.
Sigurlaug Gunnarsdóttir og
Davíð Eyrbekk hlutu viður-
kenningu fyrir vel gróinn og
snyrtilegan garð að Fagragarði
10. Plastgerð Suðumesja hlaut
viðurkenningu fyrir snyrtilegan
og góðan frágang á atvinnu-
húsnæði í byggingu að Fram-
nesvegi 19. Elísabet Guð-
mundsdóttir og Olgeir Andrés-
son hlutu viðurkenningu fyrir
endurbætur á garði í eldra hver-
fi að Vatnsnesvegi 13. Ibúar að
Heiðarbraut 1, þau Guðrún
Guðmundsdóttir og Jónas
Ragnar Franzson, Herdís
Gunnarsdóttir og Haukur Ingi
Hauksson, Valdís Þórarinsdótt-
ir og Helgi Hermanns-
son,Sparisjóðurinn í Keflavík,
Hjördís Amadóttir og Jóhannes
Kjartansson, Margrét Símonar-
dóttir og Hreinn Guðmunds-
son, hlutu viðurkenningu fyrir
skemmtilegar útlitsbreytingar
og fallegan frágang húsa og
lóða.
Umhverfis-, ferða- og
menningarmálaráð
Sandgerðisbæjar
afhenti umhverfisviðurken-
ningar sínar fyrir árið 2000 í
hófi á veitingahúsinu Vit-
anum í Sandgerði á mánu-
dagskvöid. Þrír aðilar fengu
viðurkenningar að þessu
sinni.
Þau sem fengu viðurkenningu
að þessu sinni eru eigendur
Hólagötu 16, þau Þórður
Þorkelsson og Vilborg Knúts-
dóttir. Viðurkenningin er fyrir
snyrtilegan frágang á húsi og
lóð. Þá fengu Halldór Ar-
mannsson og Þóra Kjartans-
dóttir viðurkennigu fyrir endur-
bætur á húseigninni Asabraut
1. Það hús var byggt 1960 en
hefur verið endurbætt mikið
síðan 1995. Þá fékk fisk-
vinnslufyrirtækið Ný-Fiskur
viðurkenningu fyrir snyrtilegan
frágang á nýbyggingu. Birgir
Kristinsson og María Bjöms-
dóttir tóku við þeim viður-
kenningum.
Umhverfisnefnd Sandgerðis
hefur á síðustu 20 ámm veitt
45 viðurkenningar til 38 ein-
staklinga og 7 fyrirtækja.
Formaður nefndarinnar er
Ingþór Karlsson og afhenti
hann viðurkenningamar.
Atvinna
Okkur vantar fólk til starfa við
almenna fiskvinnslu.
Einnig vantar okkur handflakara.
Nánari upplýsingar gefur Guðjón
ísíma 423 7942 eða 861 9333.
Hafbót ehf.
Atvinna
Saumastofan Liljur s/f óskar eftir
saumakonu, þarf að vera vön.
Upplýsingar á Hafnargötu 28 og
í síma 421 1112 eftir 28. ágúst.
Atvinna
Starfsfólk óskast til ræstingastarfa,
Upplýsingar í síma 421 3451 og
862 0376 eftir kl. 13 á föstudag.
Atvinna
Okkur vantar flatningsmann.
Upplýsingar i síma 892 0117
eða 863 0817.
Þróttur ehf. Grindavík
Jesús Kristur er svarið
Samkoma öll fimmtudagskvöld
kl. 20.00. Allir velkomnir.
Bæna og lofgjörðasamkoma
sunnudaga kl. 11.00.
Hvítasunnukirkjan Vegurinn
Hafnargötu 84, Keflavík.
VEFSIÐA: www.gospel.is
Opnum í Hólmgarði
List, föndur og
gjafa vöruverslun,
föstudaginn 25. sept. kl. 13:00
Verið velkomin.
List
Hólmgarði 2, Keflavík
Daglega á Netinu • www.vf.is
9