Víkurfréttir - 07.09.2000, Page 10
"E------------------.i; flí |
Atvinna - Eldhús
Lausar eru til umsóknar tvær stöður við
eldhús Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja.
1. Staða vaktstjóra.
2. Staða starfsmanns í eldhúsi.
Laun samkv. kjarasamningi Verkalýðs-
sjómannafélags Keflavíkur og nágr.
annarsvegar og fjármálaráðherra
fh. hönd ríkisins hinsvegar.
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og lóðir
hennar eru reyklaus vinnustaður.
Nánari upplýsingar um störfin eru veittar
á skrifstofu Heilbrigðisstofnunar
ísíma 422 0580
Lausar stöður
lögreglumanna
Lausar eru til umsóknar 4 stöður lögreglu-
manna hjá embætti Lögreglustjórans í Keflavík.
Umsóknum skal skilað til lögreglustjóra,
Jóns Eysteinssonar, fyrir 15. september nk.
Þórir Maronsson yfirlögregluþjónn,
veitir nánari upplýsingar um stöðurnar.
Lögreglustjórinn í Keflavík.
Markaðs- og atvinnuráð
Reykjanesbæjar stóð
fyrir ljósanótt í
Reykjanesbæ s.l. laugardag í
tengslum við annað tveggja sam-
starfsverkefna Reykjanesbæjar
og Reykjavíkur-menningarbor-
gar Evrópu árið 2000, lýsingu
Bergsins. Ljósanóttin tókst vel
og er talið að um 10 þúsund
manns haft tekið þátt í dagskrán-
ni sem náði hámarki þegar ljósin
vom tendruð á laugardagskvöld.
Fjölbreytt dagskrá stóð yfir allan
daginn og var reynt að höfða til
sem flestra. Veðrið var mjög gott,
mikið af fólki í bænum og létt
yfir bæjarbúum. Fjölmargir
bæjarbúar hafa haft samband við
mig og látið í ljós ánægju sína
með framtakið en nokkrir hafa
gert athugasemdir við eitt og
annað í undirbúningi og
framkvæmd hátíðarinnar. Af
þeirri ástæðu vil ég skýra nokkur
atriði.
Undirbúningsnefndin
I Markaðs- og atvinnuráði
Reykjanebæjar sitja 5 lulltrúar.
Til þess að vinna að málinu var
skipuð þriggja manna undirbún-
ingnefnd á vegum ráðsins sem í
sátu Steinþór Jónsson, varafor-
maður markaðs- og atvinnuráðs,
Guðbjörg Glóð Logadóttir, sem
situr í markaðsráðinu, og Johan
D. Jónsson, ferðamálaráðgjafi
MOA. Guðbjörg Glóð tók við af
Eysteini Eyjólfssyni sem Itafði
verði skipaður í nefndina en gat
ekki sinnt verkefninu vegna
anna. Skipan slíkra verkefnahópa
er mjög algeng þegar unnið er að
einstökum, afmörkuðum verk-
efnum sem hafa skýrt upphaf og
endi eins og þetta. Undirbún-
ingsnefndin lagði svo sínar
tillögur fram fyrir markaðs- og
atvinnuráð sem ýmist samþykkti
tillögur nefndarinnar eða gerði á
þeim breytingar.
Gömul hugmynd?
Fyrir síðustu sveitarstjórnar-
kosningar kynntu meirihluta-
flokkarnir, Framsóknarflokkur
og Sjálfstæðisflokkur, þá ætlun
sína að koma fýrir upplýstu lista-
verki á Bergið. Stefnuskrár
flokkanna verða til í mikilli
hugmyndavinnu grasrótarinnar
og oft erfitt að segja hver á ein-
staka hugmyndir. Eftir útkomu
stefnuskrár Framsóknarflokksins
vorið 1998 kom til dærnis til mín
maður og sagði mér að á sjöunda
áratugnum hefðu bæjaryfirvöld í
Njarðvík rætt nauðsyn þess að
lýsa Bergið en þá fyrst og fremst
af öryggisástæðum. Það er því
erfitt að segja hvaðan hugmyndin
kemur upphaflega en óumdeilt
að útfærsla hennar í þessari
mynd er Steinþórs og lampa-
framleiðandans. Eg vona að þeir,
sem telja að fram hjá sér hafi
verið gengið, átti sig á því og
sýni málinu skilning.
Upphafiö?
Það, hversu vel tókst til s.l. laug-
ardag, hefur orðið til þess að
margir bæjarbúar hafa haft á orði
að nú verði að gera slíkar
,.ljósanætur“ að árlegum við-
burði. Þetta hafi verið upphafið
að einhverju meiru. Aðrir hafa
minnt á að slíkar hátíðir hafa
verið haldnar áður. Þórarinn
Þóarinsson átti frumkvæðið að
„Sumarvaka á Suðurnesjum"
sem haldin var um Hvítasunnuna
fyrir u.þ.b. 5 ámm og einnig var
hátíð í lok sumars eitt árið sem
hét „Sumarauki á Suðumesjum“.
I sjálfu sér skiptir engu máli
hvort ljósanóttin hafi verið
upphafið eða hlekkur í lengri
keðju. Það sem skiptir máli er að
hún tókst vel og greinilegur
áhugi almennings á að endurtaka
leikinn.
Dagskráin
Einhverjir höfðu á orði að þeim
hafi fundist vanta meira af menn-
ingarviðburðum í dagskrána. A
það get ég fallist en það gefur
okkur tækifæri til þess að gera
betur næst. Nýráðinn menningar-
fulltrúi Reykjanesbæjar tók til
starfa þ. 1. sept. s.l. og hugsum
við okkur gott til glóðarinnar í
þeim efnum um leið og við
treystum á frumkvæði fólks og
félagasamtaka þ.e. að fólk og
félög bíði ekki eftir að verða
beðið heldur eigi frumkvæði að
þátttöku. Önnur atriði s.s.
stökkvandi torfærumótorhjól og
reykspólandi bílar töldu sumir of
hættuleg til jress að eiga heima í
dagskrá sem þessari en það
verður seint hægt að gera öllum
til hæfis. Aðalatriðið er að
dagskráin var fjölbreytt og fólk
skemmti sér vel.
Þakkir
Að lokum vil ég þakka öllum
sem komu að undirbúningi og
framkvæmd hátíðarinnar og
fyrirtækjunum sem styrktu
verkefnið. Sérstakar þakkir fá
stjómendur M-2000 fyrir gott og
árangursríkt samstarf og bæjar-
búar fyrir þátttökuna. Eg trúi þvf
að viðburður sem þessi hafi
jákvæð áhrif á bæjarlífið og
styrki fólk í þeirri trú að það sé
gott að búa í Reykjanesbæ.
Kjartan Már Kjartansson,
bæjarfulltrúi og formaður
Markaðs- og atvinnuráðs
Reykjanesbæjar.
Þessi kall verður40 ára 10.
september. Tekur á móti
viagra, hörðum pökkum og
blautunt kossurn í kvennó.
Hrekkjusvínin.
Þessi dragnótadrottning verður
40 ára 10. september. Hún
tekur á móti kossum á meðan á
leik Grindavíkur og Fylkis
stendur.
Þessi stúlka verður 25. ára
þann 8. september. Til ham-
ingju með daginn, mamma,
pabbi og systir.
10