Víkurfréttir - 07.09.2000, Qupperneq 11
u*
GuðrúnF.
Hannesdóttir
Fæddl4.maíl907
Dáin28.ágúst 2000
Ríkir hryggð í huga mér?
Það held ég ekki
og ástæðan er einmitt sú
að allt of vel ég þekki þig
til þess að hryggjast nú.
Æni það að hryggja mig
að þú sért laus við hlekki.
Sál þín virtist ætíð ung og blíð
samt var ljóst í seinni tíð
er sáumst við
að þú varst orðin þreytt á bið.
Því er mér fremur ljúft en
leitt er loksins er til bóta breytt.
Enginn maður missir aldrei neitt.
Þótt svona viðbrögð virðist
kunna skökk, þau vakna af
svo djúpri hjartans þökk
að andann brestur orð.
En fyrst ég tala bert á annað borð
er best að viti menn
að þú ert reyndar héma hjá mér enn.
Já ástúð þín er engu fjær
en áður fyrr
þótt gengin sértu Guði nær
gegnum opnar dyr.
Og víst er gott að vita það
er viðjar holdsins rakna
að þeir sem kveðja stund og stað
í stærra lífi vakna
(eftir Úlf Ragnarsson)
Vertu sæl að sinni vinkona, hafðu
þökk fyrir allt.
Asta Dísu.
Elsku besta amma mín, mig
langar svo til að geta sagt takk
fyrir allt. Ég elska þig svo
mikð. Þú hefur alltaf verið til
staðar þegar ég hef þurft á þér
að halda. Þegar við systkinin
fluttum heim með mömmu frá
Ameríku varstu til staðar og
hjálpaðir mömmu að ala okkur
upp. Við lærðum svo mart gott
af þér ekki bara ég heldur hafa
börnin mín fengið að njóta
gæsku og visku þinnar líka.
Elsku amma mín þú ert
yndislegasta kona í heimi og ef
að fleiri konur væm eins og þú
væri heimurinn betri. Það lfður
ekki sá dagur að ég hugsa ekki
til þín og hvað ég sakna að
heyra ekki hádegisfréttimar í
ríkisútvarpinu á meðan
borðaður er hádegismatur
héma, eins og vaninn var hjá
þér. Þegar ég kom heim úr
skólanum varstu alltaf heima
og hjálpaðir mér að læra og
alltaf varstu jafn þolinmóð við
mig. Amma mín þú varst alltaf
til staðar þegar ég fékk
heimþrá fyrir Ameríku og
skyldir hvað ég saknaði hans
pabba mikið. EÍsku amma mín
ég og bömin mín elska þig af
öllu hjarta. Astar og saknað-
arkveðjur.
Kim, Doddi, Sævar og Olöf.
í minningu minnar elskulegu vinkonu.
Elsku Guðrún, mínar dýpstu þakkir fyrir alla þá umhyggju og
vinarþcl er þú sýndir mér alla tíð. Vinskapur þinn var mér ákaflega
dýrmætur.
Ég þakka þér vinkona samferðarstundir
og sólskinsins geisla er færðir þú mér.
Ég sé þig ganga um hinmanna grundir
og móti þér taka englanna her.
Ég sakna þín sárt en minningin lifir
um sérstaka manngæsku þína.
Ég bið þess að Drottinn vaki þér yfir
og sendi þér bænina mína.
Birna Þuríður Jóhannesdóttir
Auglýsingasíminn
er 4214717
Snyrtistofa Lindu
Vissir þú að við bjóðum upp á súrefnismeðferðir frá Karin
Herzog og Sellulite meðferð frá Karin Herzog.
Kynningartilboð á þessum meðferðum til 15. október.
Auk þess bjóðum við upp á
•andlitsbað •húðhreinsun *sýrumeðferð
•handsnyrtingu •fótsnyrtingu •litun •vaxmeðferð
•gervineglur •förðun •varanlega vaxmeðferð.
L r N D U
HAFNARGÖTU 29 • SÍMI 421 4068
Islenski draumurinn
Aöeins í kvöld
kl. 20:00
NVJACtó)
KEFLAVÍK - SÍMI 421 1170
Það er til leið til að
„Lifa” þessu lífi...
Hun liggur í gegnum Jesú Krist sem sagði:
Eg er Vegurinn - Sannleikurinn og LÍfið.
Við bjóðum þér að koma og skoða
„LÍfið” með okkur
fimmtudag og föstudag,
7.-8. sept. kl. 20.
Serstakur gestur okkar verður
Ed Fernandez frá Filippseyjum,
hingað til hefur enginn sofnað
undir hans prédikun.
Mikill söngur - Drama o.fl.
Vertu tengdur við skoporonn.
Þoð er „LÍfið”
Hvrtasunnukirkjan Vegurinn
Hafnargötu 84
Daglega á Netinu • www.vf.is
11