Víkurfréttir

Issue

Víkurfréttir - 21.12.2000, Page 6

Víkurfréttir - 21.12.2000, Page 6
Jólaljósin tendruð í Sandgerði Jólaljósin voru tendruð á jólatré Sandgerðinga sunnudaginn 3. des- ember. Tréð stendur á lóð Grunnskólans og er einkar glæsilegt. Þriðji desember er merkisdagur í sögu Sandgerðis, en þann dag árið 1990 var gamli Miðnes- hreppurinn lagður niður og Sandgerðisbær varð til. Af tilefni 10 ára afmælis bæj- arfélagsins var það Sirrý Huld Friðjónsdóttir sem tendraði ljósin á trénu; en hún er sá íbúi Sandgerðis sem kemst næst því að vera jafn gamall bænum, er fædd 10. desem- ber 1990. Kirkjukór Hvalsneskirkju flutti nokkur jólalög undir stjóm ínu Dóm Hjálmarsdótt- ur og við undirleik Sigurðar Jónssonar. Jólasveinnin Stúf- ur kíkti í heimsókn ásamt þremur bræðrum sínum og færði börnum góðgæti. Að lokum var Foreldrafélag Grunnskólans með kakó og kökur í boði bæjarstjómar og lék Brynja Jónsdóttir jólalög á þverflautu á meðan fólk gæddi sér á kræsingunum. mmm séii ..... í í ■ I i - & \1 Ljósadýrð í Sandgerði Skrautlegar fígúrur og jólaljós prýða hús í Sandgerði. Fjóla Jóns sýndi í Hringlist Listakonun Fjóla Jóns sýndi á dögunum nokkur málverk í sýningarsal Hring- listar að Hafnargötu 29 í Kefalvík. Fjölmenni var við opnun sýningarinnar og seldi Fjóla vel. Fjölmargir listamenn hafa sýnt verk sín hjá Hringlsit síðustu vikur við góðar undirtektir. Hjá Hringlist er einnig úrval listaverka til sölu fyrir jólin og þar er sjón sögu ríkari. VF-mynd: HilmarBragi Ny-fishur kaupir linuskipið Hrafnseyri Fiskvinnslufyrirtækið Ný-fískur í Sandgerði hefur keypt línuskipið Hrafnseyri GK af Þorbirni- Fiskanesi hf. í Grindavík. Karl Antonsson hjá Ný-fiski segir í samtali við Inter- Seafood.com að fyrirtækinu hafi verið nauðugur einn kostur að fara í útgerð, þar sem fram- boð í fiskmörkuðum hafi dreg- ist svo mikið saman að ekki sé hægt að halda uppi fullri vinnslu í frystihúsinu. Skipið er keypt með línubeim- ingarvél og fyrirhugað er að það stundi línuveiðar en einnig verður möguleiki á togveiðum. Engar veiðiheimildir fylgja skipinu og verður kvóti leigður á það á Kvótaþingi íyrst til að byrja með. Skipstjóri á Hrafns- eyri GK verður Ingi Rúnar Ell- ertsson. Um 60 manns vinna hjá Ný-fiski. Vinninsshafam'llesendaleiknum Snæfinnur snjókarl í síðasta tölublaöi Víkurfrétta fór af stað skemmtilegur lesendaleikur, „Leitin að Snæfinni snjókarli". Leikurinn vakti mikla athygli og síminn stoppaði ekki á skrifstofu Víkurfrétta því margir héldu að Snæfinnur væri ekki h t í blaðinu. Þráttfyrir þaðfundu fjölmargir snjókarlinn á bls. 63, á spássíunni neðst til hægri. Þátttaka í leiknum var mjög góð og dregið var úr svörum miðvikudaginn 20. desember. Eftirtaldir aðilar voru dregnir úr pottinum: 1. vinningur - jólasveinakökubox frá BT og bíómiði frá Nýja Bíói: Berta Björnsdóttir, 9 ára, Lyngmóa 12,260 Njarövík. 2. vinningur - Pokémon Yatzy frá BT og bíómiði frá Nýja Bíói: Sigurbjörg Rós Daviðsdóttir, 8 ára, Reykjanesvegi 42, 260 Njarðvík. 3. vinningur - Stór pakki af Pokémon myndum frá BT og bíómiði frá Nýja Bíói: Unnur Einarsdóttir, 11 ára, Bjarnarvöllum 16,230 Keflavík. KEFLAVÍK - SÍMI 421 1170 6 GLEÐILEGA H Á T í Ð

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.