Víkurfréttir - 21.12.2000, Síða 20
ÚR 20 ÁRA SÖGU VÍKURFRÉTTA!
Fyrir rétt tæpum tutt-
ugu árum færði Kuup-
félag Suðurnesja út
kvíarnar og fékk lóð í Njarð-
vík þar sem Samkaup stend-
ur í dag. Helga Björk Stef-
ánsdóttir ræddi við þáver-
andi bæjarstjóra Njarðvíkur,
Albert Karl Sanders og rifj-
aði upp gamalt mál sem flest-
ir muna eftir og fékk nafnið
„Njarðvíkurfrekjan“. Hver
tilkoma nafnsins var vita
fæstir sem ekki voru í bæj-
arpólitík á þessum árum.
Erfitt að komast að
versluninni
I byrjun var gert ráð fyrir því
að vegurinn að Samkaup kæmi
'skiim
QÁiSumesjaniönnum öffum
/jíeMe/jrajóffi
o/jfarsæff ffommidi árs.
^öffkum mSsffiptin á árinu sem er ar) CíSa.
oo
stapaprenf
Ekkert frí hjá Víkurfréttum - næsta blað 29. desember
Opnum miðvikudaginn 27. des. kl. 09:00
frá Reykjanesbraut, (nú Njarð-
arbraut) en þegar allt var
klappað og klárt fannst Kaup-
félagsmönnum vera of erfitt
fyrir Keflavíkinga að komast
að versluninni. Þeir fóru því
fram á það við Njarðvíkurbæ
að gera nýja tengingu við Flug-
vallarveginn. „Menn veltu
þessu fyrir sér fram og til
baka“, segir Albert Sanders og
bætir við að málið hafið æxlast
svo til að hann liafi rætt við
bæði byggingamefnd og skipu-
lagsnefnd í Keflavík um bæjar-
skipulagið í kring. Þar nefnir
hann þá hugmynd að setja
þessa nýju tengingu við Kefla-
vík. Ekkert formlegt erindi
vegna þessa máls var sent til
Keflavíkur. Tíminn leið og lítið
gerðist en pressan jókst frá
Kaupfélagsmönnum.
Keflavíkuryfirvöld sár
„Eg verð að viðurkenna að ég
lét ráðast í framkvæmdir með
götuna að Flugvallarvegi, sem
nýlega hafði verið gerður frá
Njarðvík að Samkaupum, án
nokkurs leyfis frá Keflavík.
Auðvitað átti ég að senda er-
indi og fá leyfi um fram-
kvæmdir frá Keflvíkingum.“
Að sjálfsögðu urðu Keflavíkur-
yfirvöld sár, en létu þó gott
heita. „En Víkurfréttir tóku
þetta óstinnt upp, en þá var
Emil Páll, annar ritstjóri Víkur-
frétta og sagði þetta vera dæmi-
gert og lýsti vel hvemig Njarð-
víkingar ynnu og þó sérstak-
lega þessi frekja bæjarstjórans
í Njarðvík, að fara að tengja sig
við Keflavík án þess að tala við
kóng eða prest“, segir Alli Kalli
og brosir út í eitt. Þannig kom
þetta nú til að kalla þetta
„frekju Alberts bæjarstjóra.“
Síðan þá var þessi götuspotti
kallaður Frekjan og ber það
heiti enn í dag.
Örlagarík mistök
I þessi tæp tuttugu ár hefur Alli
Kalli verið minntur á þessi ör-
lagaríku mistök sín að hafa
ekki farið formlega að þessu og
fengið tiltekin leyfi frá bæjaryf-
irvöldum í Keflavík. „En það
er ekkert of seint að biðja Kefl-
víkinga afsökunar", segir fyrr-
um bæjarstjóri Njarðvíkur, og
bætir við að sannleikurinn sé sá
að þessi miklu umsvif hafi orð-
ið góð búbót fyrir Keflvíkinga
því þetta styttir þeirra leið
töluvert að Samkaupum. Þama
var girðing áður fyrr, svokölluð
„olíugirðing" sem náði alla leið
niður að Fiskiðjunni, en eftir
að hún var fjarlægð opnaðist
leið á milli bæjanna.
En er Albert sáttur við nafnið í
dag? „Já elskan mín góða!
Þetta minnir mig á að ég hefði
átt að vanda mig betur. Það
gerir ekkert til, ég er alveg sátt-
ur við það að kalla þetta frekju,
þetta var frekja. Það er alveg
satt og ég viðurkenni það.“
„Bæjarrígurinn"
Það var alltaf smá ágreiningur
á milli Keflavíkur og Njarðvík-
ur, heldur þú að hann sé enn til
staðar? „Nei, nei, en auðvitað
er alltaf smá rígur á milli bæj-
arfélaga, sem er ágætt og þá
sérstaklega í íþróttastarfmu. Þá
vinnur hver vel fyrir sitt félag,
en að öðru leiti held ég að
ágreiningur sé enginn á milli
bæjarhlutanna. Nú hafa margir
flutt á milli hverfa og líkar það
vel.“
En nú heitir bærinn okkar
Reykjanesbær. Hvað segir þú
um það ?
,Já, já, nú heitir þetta Reykja-
nesbær en við köllum það nú
alltaf Njarðvíkurnar og þeir
kalla sitt Keflavík og það er allt
í lagi líka. En ég held að það sé
enginn sérstakur ágreiningur til
staðar, nema þó á milli íþrótta-
félaganna og það er af hinu
góða. Það ýtir aðeins við þeim
að standa sig betur, þá sérstak-
lega í körfunni. „Afram Njarð-
vík“, bætir hann við og hlær.
„Ég verð að viðurkenna að ég lát
ráðast í framkvæmdir með götuna
að Flugvallarvegi, sem nýlega
hafði verið gerður frá Njarðvík að
Samkaupum, án nokkurs leyfis frá
Keflavík. Auðvitað átti ég að
senda erindi og fá leyfi um fram-
kvæmdirfrá Keflvíkingum.“
Alli Kalli og eiginkonan Sigríður Friðbertsdóttir fyrir 16 árum síðan.Þessi mynd var tekin
vegna viðtals í Jólablaði Víkurfrétta árið 1984. Það þótti við hæfi að nota frá sama tíma og
Njarðvíkurfrekjan var í hámæli. VF-mynd/pket (þá 22 ára).
20
GLEÐILEGA
H Á T í B