Víkurfréttir


Víkurfréttir - 10.05.2001, Síða 9

Víkurfréttir - 10.05.2001, Síða 9
I Áhugahópur um örugga Reykjanesbraut verður til þegar nokkrir áhugasamir Suðurnesjamenn taka sig til og loka Reykjanesbrautinni í þrjár klukkustundir í kjölfar hörmulegra banaslysa. Fólk fjölmennti og smellti brautinni I lás með því að leggja bílum sínum á veginn. Umræða um tvöföldun brautarinnar kemst aftur í hámæli. Kæru í kjölfar lokunar Reykjanesbrautar var ákveðið að efna til borgarafundar í Stapa. Ákveðið að fá ráðamenn og ráðherra til að mæta. Steinþór Jónsson var skipaður talsmaður Áhugahóps um örugga Reykjanesbraut. Með vöskum hópi góðs fólks var borgarafundur vel undirbúinn og skipulagður. Frábær þátttaka á borgarafundi í Stapa 11. janúar. Um eitt þúsund manns mættu til að styðja mál málanna; að tvöföldun Reykjanesbrautar verði flýtt. Samgönguráðherra mætti á fundinn og var jákvæður, þingmenn líka. Ráðherra fékk afhenta krómaða skóflu til að taka fyrstu skóflustunguna við tvöföldunina. Suðurnesjamenn! Áhugahópur um örugga Reykjanesbraut óskar Suðurnesjamönnum gleðilegs sumars og þakkar gott og skemmtilegt samstarf í vetur. Leggjum áherslu á góðan og öruggan akstur á Reykjanesbrautinni sem og öðrum vegum í sumar. Sýnilegur árangur hefur orðið í akstri á Reykjanesbrautinni og er Ijóst að ökumenn hafa lagt sitt fram auk þess sem lögreglan hefur einnig staðið sig mjög vel. Áhugahópurinn mun vinna áfram að málum til að gera Reykjanesbrautina öruggari og betri og halda áfram að fylgjast með framgangi tvöföldunarinnar. -alltaf á ferðinni! Kærar kveðjur, Áhugahópur um málefni Reykjanesbrautar Forráðamenn áhugahópsins funduðu með Sturlu Böðvarssyni, samgönguráðherra og afhentu honum og Sólveigu Pétursdóttur, dómsmálaráðherra bílabænina fyrir framan Alþingishúsið. Samgönguráðherra sagði að lögð væri áhersla á að útboð á fyrstu framkvæmdum við tvöföldun Reykjanesbrautar yrði ekki síðar en I ársbyrjun 2002. Dómsmálaráðherra boðaði áhugahópinn á fund með sér og fleiri aðilum til að ræða framtíð Reykjanesbrautarinnar. Áhugahópur um örugga Reykjanesbraut fundaði með Sólveigu Pétursdóttur, dómsmálaráðherra, fulltrúum lögreglunnar, vegagerðarinnar, umferðarráðs og tryggingafélaga. „Menn eru sammála um að aukin löggæsla sé eitt af lykilatriðum í átt að betri braut áður en hún verður tvöfölduð", sagði Steinþór Jónsson. Áhugahópurinn lagði fram minnisblað með ýmsum atriðum vegna brautarinnar. Sólveig ráðherra lofaði störf áhugahópsins og vonaðist til að geta átt gott samstarf við hann. Meðal atriða sem áhugahópurinn hefur lagt áherslu á er uppsetning skilta og betri merking umferðarrhraða á Reykjanesbrautinni. í grein Steinþórs Jónssonar frá hópnum segir að samkvæmt niðurstöðu könnunar vilji 92% landsmanna að tvöföldun brautarinnar verði flýtt sem sýni ótvíræðan árangur af umræðu um málefni brautarinnar. Daglegar fréttir frá Suðurnesjum á www.vf.is 9

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.