Víkurfréttir - 12.07.2001, Qupperneq 14
anntu á TOLVU ?
Viltu læra það á netinu ?
Ókeypis þjálfun,miklir
möguleikar.
Upplýsingar í síma:
896 5628 eða fth@hn.iskv.
IGS
GROUND SERVICES
Flugþjónustan Keflavíkurflugvelli ehf., IGS,
er nýstofnaö hlutafélag í eigu Flugleiða.
Hlutverk Flugþjónustunnar er að veita flugrekendum alhliða
þjónustu. Hjá félaginu starfa 500-700 manns eftir árstímum
og skiptist starfssemin í fjögur rekstrarsvið; farþegaþjónustu,
flugeldhús, fraktmiðstöð og veitingaþjónustu í
Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Starfsmenn Flugþjónustunnar eru lykillinn að velgengni
fyrirtækisins. Við leitum eftir duglegum og ábyrgum starfs-
mönnum sem eru reiðubúnir að takast á við krefjandi
og spennandi verkefni.
1-llaðþjórmsta
Hlaðdeild
• Flugþjónustan Keflavíkurflugvelli ehf.,
óskar eftir að ráða starfsfólk í
sumarafleysingar í Hlaðdeild á
Kef I avíku rf I u g ve 11 i.
Leitað er eftir fólki sem hefur góða
samskiptahæfileika og þjónustulund.
• Um er að ræða heilsdagsstörf.
• Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi
gild ökuréttindi og vinnuvélaréttindi
eru æskileg.
• Aldurstakmark er 19 ára.
• Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi
góða kunnáttu í íslensku.
• Möguleiki á fastráðningu.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á
skrifstofu félagsins í Flugstöð Leifs
Eiríkssonar og er umsóknarfrestur til
og með 19. júlí 2001.
HÖNNUN: Víkurtróttir ehf. auglýsingasmiöja
Keftvíkingai' heppnip gegn Frani
Keflvíkingar geta hrósað
happi yfir því að náð
einu stigi í fjörlegri
viðureign sinni við Fram í
Símadeildinni í knattspyrnu í
gærkvöldi en leikurinn fór
fram í Keflavík og endaði
2:2.
Liðin léku svipað að getu í
fyrri hálfleik og áttu bæði góð
færi. Keflvíkingar nýttu eitt
sinna sem kom eftir auka-
spyrnu Zorans Ljubicic af
vinstri kantinum skammt frá
vítateignum. Haukur snerti
boltann á leiðinni sem fór í
fjærhornið 1:0 fyrir heima-
menn. I síðari hálfleik yfir-
spiluðu Framarar heimamenn
oft á tíðum og voru mjög
óheppnir að fara ekki með öll
þrjú stigin. Þeir misnotuðu
tvær vítaspyrnur og mörg
marktækifæri og þrisvar sin-
num í leiknum bjargaði tré-
verkið Keflvíkingum. Framarar
skoruðu samt tvö mörk með tíu
mínútna milli bili en eftir
seinna markið skoraði Guð-
mundur Steinarsson jöfnunar-
mark Keflvíkinga úr víti 2:2.
Keflvíkingar léku afleitlega í
síðari hálfleik og áhorfendur og
leikmenn voru ánægðir með
annað stigið úr viðureigninni.
Það er ótrúlegt að Fram skuli
aðeins vera komið með fjögur
stig því liðið lék mjög vel og
var eins og fyrr segir hreint
ótrúlega óheppið. Ef liðið
leikur meira svona hlýtur það
að fá fleiri stig en hingað til.
Vörn Keflvíkur var sein og
eins og gatasigti, sérstaklega í
síðari hálfleik og miðjan var
slök að undanskildum Hjálmari
Jónssyni sem átti þátt í flestum
marktækifæmm heimamanna í
fyrri hálfleik. Hvað eftir annað
myndaðist hætta hægra megin
vallar og var Kristján Jó-
hannsson oft í vandræðum með
fljóta sóknarmenn Fram sem
og félagar hans Gestur Gylfa-
son og Gunnar Oddsson. Það
er ljóst að þetta þarf að laga
sem og að hressa upp á miðju-
leikinn gegn sterku liði Grinda-
víkur næsta mánudag.
Grindavík tapaði á sunnudag fyrir svissnes-
ka liðinu Basel í 2. uniferð Inter-toto
keppninnar í knattspyrnu karla. Leik-
urinn fór frant í Grindavík í blíðskaparveðri.
Svisslendingarnir skoruðu strax á 14. mínútu og
höfðu því 0:1 yfir í hálfleik. Þeir skoruðu svo
annað niark á 77. mínútu og þar við sat.
Grindvíkingar eru því úr leik í keppninni, en Basel
sigraði 3:1 í fyrri leiknum í Sviss. Besta færi
Grindvíkinga í leiknum fékk Sinisa Kekic undir lok
fyrri hálfleiks. Hann slapp inn íyrir vöm gestanna
en markvörðurinn varði skot hans. Kekic fékk
boltann aftur og skot í annað sinn en vamarmanni
tókst að bjarga á marklínu.
14