Víkurfréttir - 12.07.2001, Qupperneq 8
MAÐUR VIKUNNAR
Atvinnumaöur
í knattspyrnu
meö Derby
County!
Nafn: Haraldur Ámi Haraldsson
Fæddur hvar og hvenær: í Reykjavík 18. júlí 1959
Atvinna: Skólastjóri Tónlistarskóla Reykjanesbæjar
Maki: Geirþrúður Fanney Bogadóttir
Börn: Bogi, Haraldur og Hildur
Hvernig býrð þú? í einbýlishúsi
Hvaða bækur ertu að lesa núna? Flóttinn gegn um Finnland
eftir Colin Forbes og bókina um Vestfirði eftir Hjálmar R.
Bárðarson. Auk þess nýjasta tbl. af Veiðimanninum
Hvaða mynd er á músamottunni? Mona Lisa
Uppáhalds spil? Ekkert
Uppáhalds tímarit? Veiðimaðurinn
Uppáhalds ilmur? Af konunni minni
Uppáhalds hljóð? Tónlist
Hræðilegasta tilfinning í heimi? Ég geri mér ekki grein fyrir
hver hún gæti verið
Hvað er það fyrsta sem þér kemur í hug, þegar þú vaknar
á morgnana? Sturta
Rússibani, hræðilegur eða spennandi? Hræðilegur og fárán-
legt að fólk skuli fara í hann sér til ánægju
Hvað hringir síminn þinn oft áður en að þú svarar?
Ómögulegt að svara þessu, því það fer eftir því hve langt ég er
frá honum.
Uppáhalds matur? Fiskur
Súkkulaði eða vanillu? Súkkulaði
Finnst þér gaman að keyra hratt? Já
Sefur þú með tuskudýr? Nei, vaxinn upp úr því
Oveður, spennandi eða hræðilegt? Það veldur oft skaða og
er því hræðilegt
Hver var fyrsti bíllinn þinn? VW bjalla árgerð 1971
Ef þú mættir hitta hvern sem er? I dag er enginn sérstaklega
ofarlega í mínum huga
Áfengur drykkur? Einmalta viský
í hvaða stjörnumerki ertu? Krabbanum
Borðar þú stönglana af brokkólí? Já
Ef þú gætir unnið við hvað sem er, hvað væri það? Ég er
mjög ánægður í mínu starfi og rnyndi ekki vilja skipta, en ef
ég þyrfti að velja eitthvað annað, þá væri það atvinnumaður í
knattspymu með Derby County
Ef þú mættir velja hárlit þinn hver væri hann? Sá sami og
hann er
Er glasið hálf tómt eða hálf fullt? Hálf fullt
Uppáhalds bíómyndir? Amarborgin er í sérstöku uppáhaldi.
Notarðu fingrasetningu á lyklaborð? Já, en breytilega frá
degi til dags
Hvað cr undir rúminu þínu? Parketlagt gólf
Hvítasunnukirkjan Keflavík
Samkoma fimmtudag kl. 20:00
Snorri í Betel talar.
Samkoma sunnudag kl. 11:00
Útisamkoma sunnudag á torginu gegnt
Sparisjóðnum kl. 15.30
(Ef veður leyfir.)
VF SANDGERÐI
■ Slægingarþjónusta Suðurnesja:
VÍKURFRÉTTAMYND: SIUA DÖGG GUNNARSDÓTTIR
Þúsund þorskar
á fænibandi þokast næn
Slægingarþjónusta Suð-
umesja er nýtt fyrir-
tæki í Sandgerði sem er
byggt á gömlum grunni. Eig-
endur þess eru Arthur Gal-
vez og Sveinbjöm Bjamason
en þeir hafa báðir áralanga
reynslu af vinnu í sjávarút-
vegi. Sveinbjöm hefur starf-
að og rekið fiskverkun sl. 10
ár og Arthur hefur unnið við
slægingu sl. 6 ár.
„Þetta er þjónustufyrirtæki. Við
slægjum fyrir útgerðir en fyrst
og fremst fiskkaupendur"1, segir
Arthur og Sveinbjöm leggur
áherslu á að þeir kaupi engan
fisk sjálfir og séu því ekki í
samkeppni við viðskiptavini
sína. „Við teljum það vera lyk-
ilatriði í að veita góða og hlut-
lausa þjónustu", segir Svein-
bjöm.
Húsnæði Slægingarþjónust-
unnar er í nýlegu stálgrindar-
húsi og hjá fyrirtækinu em að
jafnaði 4-5 fastir starfsmenn.
Þegar mikið er að gera þá er
fólki bætt við eftir þörfum.
„Hér er unnið bæði á nóttunni
og daginn. Við klárum bara
það sem fyrir er því varan þarf
að sjálfsögðu að haldast fersk.“
Fiskurinn sem strákamir fá til
slægingar kemur að stærstum
hluta frá bátum á Suðumesjum,
en að hluta frá Ólafsvík og
Rift. „Þetta er að mestu þorskur
og magnið er nú breytilegt eftir
mánuðum. Júnímánuður var
óvenju góður miðað við tvö
síðustu ár á undan, en við tók-
um 270 tonn í júní. Á vertíð
emm við að fá svona 500-700
tonn á mánuði", segir Arthur
hressilega og sfðan rokinn í
símann til að sinna viðskipta-
vini.
8