Víkurfréttir - 14.03.2002, Qupperneq 22
PÓLITÍKIN/JÓN GUNNARSSON SKRIFAR
í Vatnskysustrandarhreppi
* smu^ostsKÓu ö
Næstkomandi laugardag
verður haldið prófkjör
hjá Bæjarmálafélagi
H-listans í Vatnsleysustrand-
arhreppi. Prófkjörið fer
fram í Lionshúsinu frá kl
15:00 til kl 19:00. Rétt til
þátttöku hafa allir félags-
menn og vil ég hvetja sem
flesta til að ganga í félagið til
að geta haft áhrif á uppröðun
þess framboðsiista sem boð-
inn verður fram fyrir kosn-
ingarnar þann 25. maí nk.
Eg hef, að vandlega athuguðu
máli og að áeggjan ákaflega
margra félaga, ákveðið að
bjóða mig fram í 1. sæti fram-
boðlistans gegn sitjandi oddvita
Þóru Bragadóttur. Það var ekki
auðveld ákvörðun að taka, þar
sem við Þóra höfum starfað
lengi saman að uppbyggingu
hreppsins og H-listinn hefur
staðið ákaflega þétt saman í
gegnum tíðina við úrlausn
margra erfiðra mála.
A liðnu kjörtímabili hefur
smátt og smátt verið að fjara
undan því mikla fylgi sem H-
listinn hefur haft og fjölmargir
stuðningsmenn lýst því yfir að
þeir kysu ekki listann undir
óbreyttri forustu.
H-Iistinn náði hreinum meiri-
hluta í hreppsnefnd Vatnsleysu-
strandarhrepps árið 1990 og
hofst þa þegar mikil uppbygg-
ing sem enn stendur. 1991 var
byggður nýr leikskóli, 1993 var
íþróttamiðstöðin byggð og eftir
að H-listinn vann aftur hreinan
meirihluta í kosningunum árið
1994 var haldið áffam og byggt
við Stóru -Vogaskóla á árunum
1997 og 1998. Þetta voru allt
framkvæmdir sem nauðsynlegt
var að ráðast í til að bæta úr
brýnni þörf og einnig sáum við
að ef sveitarfélagið ætti að
stækka á næstu árum þyrfti
grunnþjónustan að vera góð og
nægjanlegt rými til að taka við
aukningu á íbúafjölda. Mark-
aðsetningin sem staðið hefur
yfir á síðustu 2 árum kemur
síðan í eðlilegu framhaldi af
fyrri verkum. Jóhanna Reynis-
dóttir sveitarstjóri hefur borið
hitann og þungann af því átaki
sem í gangi hefiir verið og stað-
ið sig frábærlega vel.
I dag er ástandið innan H-list-
ans allt annað en við höfum átt
að venjast, veruleg sundrung er
innan raða stuðningsmanna
sem helgast af deilum sem uppi
eru um embættisfærslur núver-
andi oddvita. Henni hefur ekki
tekist að sameina stuðnings-
menn H-listans á bak við sig og
steininn tók úr þegar hún ákvað
uppá sitt einsdæmi að snið-
ganga samþykktir meirihlutans
sem hún þó hafði samþykkt og
átti að vera í forsvari fyrir. Af-
leiðing þeirra verka var sú að
ákaflega farsæll fúlltrúi okkar í
hreppsnefnd Sigurður Kristins-
son sagði sig ffá hreppsnefnd-
arstörfúm og næsti varamaður
ákvað einnig að taka ekki sæti
Sigurðar. Sigurður býður sig
nú fram að nýju í annað sæti
listans og myndi ég fagna góðri
kosningu hans í það sæti.
Markaðsetningin og fram-
kvæmdir í tengslum við hana
hafa kostað mikið fé og eru
heildarskuldir sveitarfélagsins
yfir hálf milljón kr á hvern
íbúa. Þó búið sé að úthluta
íjölda lóða, þá hefúr uppbygg-
ing húsa á þeim gengið frekar
hægt. Þetta stóra dæmi á alveg
eftir að klára og borga þær
miklu skuldir sem orðið hafa til
á sl. tveimur árum. Það er al-
gjör nauðsyn að H-listinn nái
að bjóða ífam sterkan og sam-
hentan lista við kosningamar í
maí og þannig haldið meiri-
hluta sínum til að ljúka því
verkefni sem hafist var handa
við árið 1990. Framboð mitt
nú er tilraun til að svo megi
verða og vona ég að íbúar
kynni sér málin vel áður en þeir
ganga til prófkjörsins.
Það er von mín að prófkjörið
verði drengilegt og stuðnings-
menn hafi í huga að hér eru
samherjar að takast á en ekki
andstæðingar. Mikilvægt er að
sá frambjóðandi sem hlýtur
kosningu í fyrsta sæti listans fái
góða kosningu ef honum á að
takast það að sameina þá breið-
fylkingu sem að H-listanum
hefúr staðið.
Jón Gunnarsson
framkvæmdastjóri
Akurgerði 13,190 Vogum
Ómálefnalegt skitkast,
dylgjur og ósannindi
Þegar ég var að ganga ftá þess-
ari grein til sendingar til Víkur-
frétta fór ég inn á heimasíðu
þeirra á vefnum og sá þar grein
eftir Halldóru Baldursdóttur
vegna komandi prófkjörs.
Greinin er samansafn skítkasts
og hreinna ósanninda og ætla
ég ekki að heyja prófkjörsbar-
áttu á sama plani. Að mínu
áliti segir greinin meira um
höfúnd hennar, sem hefúr búið
í Vogum skamma hríð, en mína
persónu. Ég á erfitt með að
koma auga á þá vinsemd og
virðingu sem undir greinina er
ntað.
Ég vil óska eftir því við stuðn-
ingsmenn mína í prófkjörinu
að þeir varist það að falla í þá
gryfju sem nefnd Halldóra hef-
ur fallið í. Það að ata aðra
frambjóðendur auri og bera á
þá ósannindi er ekki rétta leið-
in.
JG
UM HVAÐ SNÚAST STJÓRNMÁL II - KJARTAN MÁR KJARTANSSON SKRIFAR
Ungtfólk og stjórnmál
Um daginn var ég á spjalli
við ungan mann um tví-
tugt. Hann sagðist ekki
skilja hvernig ég nennti að eyða
tíma í „fundi og stöðugt þras“
eins og hann oröaði þaö. Þegar
ég útskýrði fyrir honum að
sveitarstjórnarmál fjölluðu
fyrst og fremst um að búa til
betri framtíð, láta gott af sér
leiða og hafa jákvæð áhrif á
þróun bæjarins okkar, fannst
mér sem hann fengi nýja sýn á
málið. Mér fannst hann skilja
að á bak við þá góðu hluti sem
hafa verið að gerast í Reykja-
nesbæ er fólk með framtíðar-
sýn. Akvarðanir væru teknar
mcð lýðræöislegum hætti í
hópstarfi innan stjórnmála-
flokka, sem væri tímafrekt en
skcmmtilegt, og þar hefði fólk á
öllum aldri tækifæri til þess aö
láta skoðanir sínar í Ijós og
hafa áhrif.
Áhugi og þátttaka ungs fólks í
starfi stjómmálaflokka, íslenskra
og erlenda, hefur verið að
minnka. Á sama tíma hefur hraði
Kjartan Már Kjartansson
breytinga í vestrænu samfélagi
verið að aukast. Ef þessi þróun
heldur áfram mun samfélag
ffamtíðarinnar mótast af viðhorf-
um miðaldra og fullorðinna ein-
staklinga án sjónarmiða ungs
fólks. Skiptir þá ekki máli hvort
búið er i Reykjanesbæ, Reykja-
vík eða London því þróunin er
alls staðar sú sama. Þessi þróun
er ekki æskileg og trúlegt að ungt
fólk sé sammála ef það hugsar
málið í þaula.
Ágætu, ungu bæjarbúar! Ef þið
látið ekki skoðanir ykkar í ljós og
reynið að hafa áhrif þá verða
sjónarmið einhvers annars ofan
á, hvort sem ykkur líkar betur
eða verr. Ég skora á ykkur að
kynna ykkur starfsemi Félags
ungra ffamsóknarmanna i
Reykjanesbæ. Sumir óttast þátt-
töku í slíku starfi, telja sig ekki
vera nægilega vel inn i málum
o.s.ffv. en sá ótti er ástæðulaus.
Tilgangurinn með félaginu er
einmitt að miðla þekkingu og
hjálpa ungu fólki að öðlast nægi-
legt sjálfstraust til þess að þora
að Iáta til sín taka og opinþera
skoðanir sinar á hlutunum. Fram-
sóknarflokkurinn starffækir t.d.
stjómmálaskóla fyrir ungt fólk
auk þess sem mikil áhersla er
lögð á að starfið sé skemmtilegt.
Samstarf á landsvísu er mikið,
ferðalög og skemmtanir ofarlega
á dagskrá en pólitíkin er þó aldrei
langt undan.
Margir af helsm stjómmálaleið-
togum þjóðarinnar hófú sinn feril
á vettvangi ungliðahreyfingar
Framsóknarflokksins. í sveitar-
stjómarmálum gerist þetta eins.
Við sem nú erum bæjarfúlltrúar
Framsóknarflokksins í Reykja-
nesbæ, undirritaður og Skúli Þ.
Skúlason forseti bæjarstjómar,
stigum báðir okkar fyrstu skref
innan Félags ungra ffamsóknar-
manna. Ungt fólk hefúr átt greiða
leið innan flokksins og á það hef-
ur verið hlustað. Dæmi um það
er Jón Marinó Sigurðsson sem er
í fimmta sæti ffamboðslista
Framsóknarflokksins í Reykja-
nesbæ fyrir sveitarstjómarkosn-
ingamar i vor en hann er aðeins
25 ára gamall. Yngsti ráðherra
ríkisstjómar íslands, Siv Frið-
leifsdóttir, er einnig gott dæmi
um félagsmann úr ungliðahreyf-
ingu flokksins sem hlustað hefúr
verið á.
Við Skúli stukkum ekki í eldlín-
una í bæjarstjóm í einu stökki
heldur vomm við að feta okkur
ffamar eftir því sem eldri og
reyndari menn og konur hættu
störfúm og við áunnum okkur
traust. Það er mjög mikilvægt að
fólk eygi þann möguleika að geta
haft áhrif á þennan hátt. Það er
þó ekki sjálfgefið því em ekki
allir flokkar jafh tilbúnir til þess
að veita ungu heimafólki brautar-
gengi eins og dæmin sanna.
Að lokum við ég hvetja allt ungt
fólk, sem vill kynnast starfi
ungra ffamsóknarmanna í
Reykjanesbæ, og hafa áhrif á
þróun og mótun samfélagsins, til
þess að hafa samband við Jón
Marinó eða Sonju Siguijónsdótt-
ur, formann félagsins. Netfang
Jóns erjonnim40@hotmail.com
og netfang Sonju er pretty@mi.is
. Það er aldrei að vita í hveijum
ykkar leynast stjómmálamenn
ffamtiðarinnar.
Kveðja,
Kjartan Már Kjartansson
1. niaöur á lista Framsókna-
tlokksins í sveitarstjórnar-
kosingunum 2002
kjartanmar@hotmail.com
22