Víkurfréttir - 18.07.2002, Blaðsíða 2
Fimmtudagurinn 18. júlí 2002
Fréttavaktin
421 0002
stuttar
F R E T T I R
Þrír í glasi
Lögreglan i Keflavík
stöðvaði einn ökumann
aðfararnótt sunnudags
fyrir ölvun við akstur og
lögregluvaktin sem tók við kl.
07 á sunnudaginn ók fram á
ökumann í morgunsárið sem
keyrði helst til undarlega.
Viðkomandi var stöðvaður af
laganna vörðum og kom þá i
Ijós að hann var við skál und-
ir stýri.
Ökumaður og ökutæki voru
færð til stöðvar, þar sem læknir
tók góðan skammt af blóði eftir
hefbundinn blöðrublástur.
Samtals voru þrír teknir fyrir
ölvun við akstur um síðustu
helgi.
Bakkaði í
skurð og
klessti á
grindverk
Það varð óvenjulegur
árekstur við Heið-
arból 1 í
Reykjanesbæ fyrir V
helgi þegar öku-
maður bifrciðar ^
bakkaði ofan í
skurð og svo á grind-
verk. Var hann að laga
bílinn af en tók ekki eftir
skurðinum sem var fyrir aft-
an. Lenti bíllin þar ofaní og
við það steyptist hann á
grindvcrk hússins.
Engin meiðsli urðu á fólki en
bíllinn fór rnjög illa út úr þess-
um árekstri og skemmdist mik-
ið. Grindverkið við húsið
skemmdist einnig töluvert.
FRÉTTIR
Hitaveitan má rannsaka Brennisteinsfjöll
Íðnaðarráðuneytið hefur
veitt bæði Hitaveitu Suð-
urnesja og Orkuveitu
Reykjavíkur rannsóknar-
Ieyfl í Brcnnisteinsfjöllum en
hvorugt fyrirtækið fær for-
gang að nýtingu á svæðinu.
Forstjóri Hitaveitu Suður-
nesja er ósáttur við þessa
niðurstöðu og segir hana
furðulega. Yfirborðsmæl-
ingar benda til þess að jarð-
hiti sé í Brennisteinsfjöllum,
lágum fjallgarði milli Blá-
fjalla og Kleifarvatns. Hita-
veita Suðurnesja sótti um
lcyfl til að rannsaka mögu-
lcika á gufuaflsvirkjun á
svæðinu í apríl árið 2000 og
fylgdi þvi eftir með rannsókn-
aráætlun. I ágúst sama ár sótti
Orkuveita Reykjavíkur einnig
um rannsóknarlcyfí á svæðinu
en engin svör bárust frá ráðu-
neytinu þrátt fyrir ítrekaðar
fyrirspurnir Hitaveitunnar.
1 síðasta mánuði, rúmum tveimur
árum síðar, svaraði iðnaðarráðu-
neytið loks með bréfi til beggja
orkuveitnanna þar sem þeim er
báðum veitt leyfi til að kanna
virkjunarmöguleika á svæðinu.
Hvorugt fyrirtækið fær forgang
um nýtingarleyfi á svæðinu en
ráðuneytið bendir á að umsækj-
endur geti sótt um sameiginlegt
nýtingarleyfi. Júlíus Jónsson, for-
stjóri Hitaveitu Suðurnesja er
Stúlka úr Keflavík lést
í umferðarslysi í Borgarfirði
Litla stúlkan sem lést í bflslysinu
við Varmaland í Borgarflrði á
föstudagskvöld, hét Alda
Hnappdal Sæmundsdóttir, til
hcimilis að Tjarnargötu 26 í
Reykjancsbæ. Hún var fimm
ára gömul, fædd 8. apríl árið
1997.
ekki sáttur við þessa niðurstöðu.
Rannsóknirnar geta hæglega
kostað um 500 miljónir króna.
Júlíus segir vonlaust að bæði fyr-
irtækin verji slíkum fjárhæðum
til rannsókna á sama svæðinu án
þess að hafa vilyrði fyrir því að
fá að nýta svæðið ef niðurstöð-
urnar reynast jákvæðar og skil-
yrði eru fyrir að minnsta kosti 70
megavatta gufúaflsvirkjun.
Hitaveita Suðurnesja er nú að
kanna lagalega stöðu sína og við-
brögð við svarinu en iðnaðar-
ráðuneytið hefúr veitt fyrirtækj-
unum frest til 1. ágúst næstkom-
andi til að gera athugasemdir við
rannsóknarleyfið.
Ný Sparkaups-verslun
í Garði á teikniborðinu
Fl
'ramkvæmdir við nýja
Sparkaups-verslun í Garði
munu vonandi hefjast
fljótlega. Fulltrúar Samkaupa
hf. hafa átt í viðræðum við
sveitarstjórnina í Garði um
málið. Skúli Skúlason hjá
Samkaup hf. sagði í samtali við
Víkurfréttir að þar á bæ hefðu
menn mikinn áhuga á að
byggja nýtt verslunarhúsnæði,
sem yrði svipað og ný Spar-
kaups-verslun í Sandgerði.
Að sögn Skúla hafa þeir verið að
leita að heppilegri lóð fyrir versl-
unina. Meðal annars er verið að
skoða byggingu verslunarhúss á
Nektardansmeyjar í Keflavík hafa meira frelsi:
Bann við einkadansi
ekki rætt í Reykjanesbæ
Breytingar á lögreglu-
samþykkt fyrir
Reykjanesbæ þar sem
bann yrði lagt við einka-
dansi hafa ekki verið rædd-
ar af meirihluta bæjar-
stjórnar Reykjanesbæjar.
Dómsmálaráðuneytið stað-
festi í dag breytingar á lög-
reglusamþykktum Reykja-
víkur og Akureyrar sem fela
m.a. í sér bann við hvers
konar einkasýningum á
næturklúbbum þar sem
hcimilt er að sýna ncktar-
dans. í fréttatilkynningu
ráðuncytisins er vitnað til á-
lits rikislögmanns sem telur
ólíklegt að bótaskylda kunni
að falla á ríkissjóð vegna
breytinganna.
Steinþór Jónsson, bæjar-
fúlltrúi í Reykjanesbæ, sagði
ekki ólíklegt að málið komi til
umræðu í sveitarfélaginu í
framhaldi af þeim breytingum
sem orðið hafa í Reykjavík og
norðan heiða. Yfirvöld hér
þyrffu þó ekki að feta sömu
braut og breytingamar á sam-
þykktinni í Reykjavík og á
Akureyri væm ekki fordæmis-
gefandi fyrir önnur sveitarfé-
lög.
í tilkynningu ráðuneytisins
kemur fiam að lögum skv.
skal sveitarstjóm skilgreina
þau velsæmismörk sem hún
telur við hæfi á og við al-
mannafæri, þar með talið á
veitingahúsum og nætur-
klúbbum. „Það er ekki dóms-
málaráðuneytisins að hrófla
við þvi mati sveitarfélaganna,
nema það sé bersýnilega ó-
málefhalegt, en það á
ekki við í þessu máli
samkvæmt mati
ráðuneytisins og er
það stutt áliti
ríkislög-
manns,“ seg-
ir í tilkynn-
ingunni.
Fram kem-
ur að mál-
ið hefúr
verið
skoðað
með ítar-
legum hætti
og í kjölfarið
var ákveðið að
staðfesta
breytingam-
horni Heiðartúns og Silfurtúns,
ofan við bensínstöð ESSO. Skúli
sagði aðspurður engar viðræður
hafi átt sér stað við ESSO um
annað en hugsanleg afnot af bíla-
stæðum. Það að Sparkaup byggi
verslun við hliðina á ESSO-stöð-
inni myndi væntanlega styrkja
þjónustu á nærliggjandi svæði.
Sparkaup reka i dag matvöru-
verslun í eldra húsnæði við
Gerðaveg í Garði, sem fyrir
löngu er orðið alltof litið og
væntingar Garðmanna orðnar há-
værar um nýja matvöruverslun
með auknu vömúrvali í byggðar-
lagið. Skúli sagði það forgangs-
verkefni hjá Samkaupum að
bæta aðbúnað og þjónustu við
íbúa Gerðahrepps.
DÆMDUR FYRIR
P0KAFISK!
Þrítugur karlmaður úr
Reykjanesbæ hefur verið
dæmdur í 6 mánaða
fangelsi fyrir
kvótasvindl.
Maðurinn
keypti físk af
sjómönnum,
sem smyglað
var í land fram hjá vikt og þrí
ekki dregist frá k\óta útgerð-
arinnar, og síðan selt til út-
landa.Var magnið sem maður-
inn var dæmdur fyrir 134 tonn
og verðmæti aflans 44 milljón-
ir króna.
Ekki hefúr fallið dómur á íslandi
fyrir sambærilegt brot.
, Utgefandi:
lfllf IIP Víkurfréttir ehf- kt' 710183-0319,
VIIVUR Grundarvegi 23, 260 Njarðvík
FRÉTTIR Sími 421 0000 (15 línur) • Fax 421 0020
Útlit, umbrot og prentvistun (pdf): Vikurfréttir ehf.
Prentvinnsla: Prentsmiðjan Oddi hf. / Dreifing: íslandspóstur
Dagleg stafræn útgáfa: www.vf.is og vikurfrettir.is
Aðrir fjölmiðlar Víkurfrétta ehf. eru: Timarit Víkurfrétta,
The White Falcon og Kapalsjónvarp Víkurfrétta.
Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími 421 0007, pket@vf.is
Fréttastjóri: Hilmar Bragi Báróarson, sími 421 0002, hbb@vf.is
Sölu- og markaðsstjóri: Jónas Franz Sigurjónsson simi 421 0001, franz@vf.is
Auglýsingar: Kristín Njálsdóttir kristin@vf.is, Jófriður Leifsdóttir, jofridur@vf.is
Blaðamaður: Sævar Sævarsson, simi 421 0004 sjabbi@vf.is
Hönnunarstjóri: Kolbrún Pétursdóttir kolla@vf.is
Hönnun/umbrot: Kolbrún Pétursdóttir, kolla@vf.is, Stefan Swales, stefan@vf.is
Skrifstofa: Stefanía Jónsdóttir, Aldís Jónsdóttir
2