Víkurfréttir - 18.07.2002, Side 11
FRÉTTIR
Fimmtudagurinn 18. júlí 2002
Meðlimur norsku konungs-
fjölskyldunnar á Café Iðnó
Alexander Ferner, sonur
Astridar prinsessu af
Noregi, snæddi kvöldverð
á Café Iðnó í gærkveldi. Hann
er hér á Islandi i fríi ásamt
vinafólki sínu og voru þau ný-
koniin úr ferö um hálendi
landsins. Ákváöu þau að gista
eina nótt á Hótcl-Keflavík áður
en haldið var af landi brott en
að þeirra sögn hefur fríið á ís-
landi verið meiriháttar. Að-
spurð hvernig maturinn hefði
smakkast sögðu þau að hann
hefði verið mjög góöur og lof-
uðu þau kokkinn á Iðnó.
Móðir Alexanders, Astrid Femer,
er systir Haraidar Noregskon-
ungs og er Alexander því systur-
sonur Haraldar. Alexander er þó
ekki titlaður sem prins þar sem
börn konungsins eru þau einu
sem fá þann titil.
Alexander Fernerj)g vinir hans ásamt Jóhannesi Dungal, kokki á Café
Iðnó (Alexander er í bláu skyrtunni ogýestinu). VF-mynd: SævarS
Guð, fyrirgefðu þeim!
Geirmundur afhendir Einari fyrsta hjálminn.
Sparisjóðurinn gefur
Keflavíkur-hjálma
að er orðið dcginum Ijós-
ara að viö Grindvíkingar
erum aö missa okkar in-
dæla bæjarstjóra. Bæjarstjóra
sem hefur unnið hug iólksins í
bænum með sinni hlýju og fág-
aðri framkomu. Bæjarstjóra
sem liefur lagt metnað sinn í aö
stjórna þessum bæ af ábyrgð
og öryggi. Bæjarstjóra sem er
enginn nýliöi í þeim málum,
sama hvar maður kom og mál-
efni bæjarins bárust í tal þá
kvað ávallt við, þið eruð nú
með Einar Njálsson sem bæj-
arstjóra, þiö eruð lánsamir
Grindvíkingar. Það segir allt
sem segja þarf uni þann mann,
þannig er hann nú þekktur. Og
þá skipti ekki máli hvaða
flokksskírteini menn báru sem
töiuðu þessi orð.
Og ég veit að Einar Njálsson er
hvergi flokksbundinn neinum
pólitískum flokki. Hann er mað-
ur fólksins hvar í flokki sem það
er. Starfið er honum allt og að
vegur bæjarins yrði sem mestur
og bestur var kjörorðið.
En sínum augum lítur hver á
silfrið. í nýafstöðnum kosningum
varð breyting á meirihlutasam-
starfi flokkanna, þrátt fyrir að
fýrrverandi meirihluti fengi góða
kosningu. Og þessi sami meiri-
hluti var einhuga um að ráða Ein-
ar sem bæjarstjóra fyrir fjórum
árum. Og var aldrei skuggi á því
samstarfí við hann allt kjörtíma-
bilið.
Myndaður hefur nú verið nýr
meirihluti Sjálfstæðisflokks og
Samfylkingarmanna. Framsókn-
arflokknum var vart gefinn kost-
ur á viðræðum um meirihluta-
samstarf. Að vísu kom þó höfð-
inglegt tilboð frá oddvita sjálf-
stæðismanna um samstarf. Skil-
yrðið var að reka bæjarstjórann,
yrði ekki gengið að því þyrfti
ekki að ræða meira saman. Og
svo mikið lá á að framsóknar-
mönnum voru gefnar tvær
klukkustundir til að taka ákvörð-
un i málinu, þá skrifuðu hinir
undir. Svona hélt ég að menn
ynnu nú ekki sem eru kosnir i al-
mennum kosningum til trúnaðar-
starfa. Við framsóknarmenn
höfnuðum því þessum vinnu-
brögðum. Við munum frekar
sitja i minnihluta næsta kjörtíma-
bil og vinna jafht áffam af heið-
arleika að öllum góðum málefh-
um bæjarfélagsins.
Það ríkir mikil óánægja meðal
bæjarbúa út af þessari ákvörðun
sjálfstæðismanna sem telja sig
hafa verið sviknir að láta þennan
gjörning ekki koma fram fyrir
kosningar. Þá hefðu kjósendur
getað kosið um þetta mál. Og var
það haft eftir mörgum sjálfstæð-
ismanninum að þeir heföu aldrei
kosið flokkinn hefðu þeir vitað
þetta. Það er því gott að vita að
til eru sjálfstæðismenn sem hafa
sömu tilfinningu og konungurinn
í merki flokksins, það kennir
ekki fýrr en kemur að hjartanu.
I kosningunum fýrir fjórum árum
settum við ffamsóknarmenn það
fram i kosningarbaráttuna að
bæjarstjórastaðan yrði auglýst.
Þá vissu kjósendur að hveiju þeir
gengu. Þar sem þáverandi bæjar-
stjóri var að komast á eftirlauna
aldur, var eðlilegt að auglýsa
starfið með tilliti til þess. Var
hann búinn að skila mjög góðu
starfi í 16 ár og var enginn á-
greiningur um þau mál. Og ég
minnist ekki að hann hafí verið
krafinn um flokksskírteini við
ráðningu.
En máltækið segir „Það er nú
misjafnt sem mennirnir hafast
að.“
Það er leitt fýrir þetta ágæta bæj-
arfélag ef það á að vera stefhan
að fólk skuli þurfa helst að geta
rakið ættir sinar aftur í 3. eða 4.
lið í sjálfstæðisflokknum svo það
sé hæft til starfa í trúnaðarmálum
bæjarins.
Eins og heyrst hefur ffá þeim á-
gætu flokksfélögum, þá sýnist
mér að velferð bæjarins sé ekki
endilega i fýrirrúmi. Það er eitt-
hvað að genunum þjá þeim sem
þannig hugsa.
Einari Njálssyni og Sigurbjörgu
Bjarnadóttur vil ég þakka gott
starf í þágu bæjarins og við
Grindvíkingar munum sakna
ykkar notalegu viðkynningar
jafht í starfi sem leik og óskum
ykkur farsældar í nýju starfí.
Að lokum svo ég vitni í biblíuna,
bók allra manna. Guð fýritgeföu
þeim, því þeir vita ekki hvað þeir
gjöra.
Kær kveðja,
Svavar Svavarsson
Aðalstjórn Keflavíkur
íþrótta- og ungmennafé-
lags hcfur í samvinnu við
Sparisjóðinn í Keflavík og um-
fcröaráð látið Itanna eitt
hundrað rciðhjólahjálma sem
mcrktir cru félaginu, svo kall-
aða Keflavíkur-hjálma. Það var
Sparisjóðurinn í Keflavík sem
sá um kostun hjálmanna og
var það Geirmundur Kristins-
son Sparisjóðsstjóri sem af-
henti Einari Haraldssyni, for-
manni Keflavíkur, hjálmana að
því tilefni.
Keflavíkur-hjálmarnir verða
seldir í félagsheimili Keflavíkur
að Hringbraut 108 og mun ffam-
kvæmdastjóri félagsins annast
söluna. Hjálmurinn kostar aðeins
1000 kr. en hann er ffamleiddur í
Finnlandi.
GOLF
kennsla
Jamie Darling
golfkennari GS
Staða boltans
Margir kylfingar ruglast
á því hvar boltinn á að
vera staðscttur með
mismunandi kylfum.
Lítuni á þetta. Með lengri
og flatari kylfum (s.s. 3
járni) ætti boltinn að vera
staðsettur nær frentri
fætinum, en með styttri
og opnari kylfum (s.s. 9
járni) ætti boltinn að
færast nær miðjunni á
ntilli fótanna. Því lengri
sem kylfan er þá verður
einnig að vera víðara bil
á milli fóta og öfugt.
t
Elskuleg dóttir okkar,
systir og barnabarn,
Alda Hnappdal Sæmundsdóttir
Tjarnargötu 26,
Keflavík,
lést af slysförum föstudaginn 12. júlí.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju
þriðjudaginn 23. júlí kl. 14:00
Sæmundur Hnappdal Magnússon, Guðleif Arnardóttir,
Zohara Kristín,
Jón Gunnar,
Sigurlín Erlendsdóttir,
Örn Ellertsson,
Alda Óskarsdóttir.
VÍKURFRÉTTIR • 29. tölublað 2002
11