Morgunblaðið - 24.05.2016, Side 8
8 | MORGUNBLAÐIÐ
Bíla- og vélavörur
...sem þola álagið!
Það borgar sig
að nota það besta!
Viftur
HjólalegusettKúlu- og rúllulegur Hemlahlutir Hjöru- og öxulliðir
Stýrisendar
og spindilkúlurViftu- og tímareimar
Kúplingar- og höggdeyfar
Dalvegi 10–14 • 201 Kópavogi • Sími: 540 7000 • www.falkinn.is
Í
apríl hélt fríður hópur
vélhjólafólks til bæjarins
Hecklingen í Þýskalandi. Í
bænum starfrækir BMW öku-
skóla þar sem nemendur læra að
takast á við krefjandi aðstæður á
mótorhjóli. Ferðin var á vegum
Reykjavik Motor Center
(www.rmc.is), þar sem Eyþór Ör-
lygsson er framkvæmdastjóri:
„Um er að ræða tveggja daga
námskeið á stóru og þungu ferða-
hjólunum og lærir fólk að beita
þeim rétt við erfiðustu aðstæður
sem hægt er að lenda í. Enduro
Park-æfingasvæðið í Hecklingen
býður upp á allt frá mjóum ein-
stígum, drullu og sandpyttum yfir í
blautar og stórar rætur sem þarf
að komast yfir án þess að setja nið-
ur lappirnar.“
Hafa hópinn ekki of stóran
Var þetta í annað skiptið sem
Reykjavik Motor Center efnir til
ferðar til Hecklingen. Slógust fjór-
tán manns með í för í ár, voru
fimmtán í fyrra, en Eyþór segir
reynt að hafa hópinn ekki of stór-
an. Í október hefst skráning fyrir
næstu ferð. „Við setjum markið við
sautján manns í hverri ferð en ef
fleiri skrá sig fyrir þátttöku að ári
er sá möguleiki fyrir hendi að
skipuleggja tvær ferðir.“
Allt talið tekur ferðalagið fjóra
til fimm daga. Byrjað er í München
og fer fyrsti dagurinn í að líta við á
elstu krá borgarinnar, skoða
BMW-safnið og heimsækja risa-
stóran vörulager BMW, þar sem
kaupa má vörur beint eða panta í
gegnum Reykjavik Motor Center.
Því næst liggur leiðin til Hecklin-
gen, þar sem hópurinn gistir á
notalegu hóteli og er skutlað á milli
hótels og æfingasvæðisins, sem er í
fallegu friðlandi. „BMW þarf að
fylgja reglum þjóðgarðsins og er
t.d. aðeins leyft að hafa 40 hjól á
ferðinni hvern kennsludag og að
hámarki fimm daga í viku, svo að
náttúran fái tækifæri til að jafna
sig inn á milli. Þá er kennslu-
tímabilið bundið við apríl fram í
október til að lágmarka álagið á
umhverfinu.“
Góð byrjun á sumrinu
Eyþór segir apríl hafa orðið fyrir
valinu hjá íslenska hópnum enda
góð leið til að hefja mótorhjólas-
umarið. Fram undan eru ýmis
mótorhjólaævintýri og langir túrar,
og því upplagt að vera með þekk-
inguna og þjálfunina ferska áður en
haldið er út á íslensku þjóðvegina.
Í Hecklingen er hópnum skipt
upp eftir hæfni. BMW útvegar
hjólin og þaulreyndir kennarar
leiða þátttakendur í gegnum æfing-
arnar með tilsögn og sýnikennslu.
Eyþór segir brautina krefjandi en
leiðsögnina vandaða og sáralítið um
að slys verði á fólki. „Það er eink-
um þegar líða tekur á daginn að
þreytan getur orðið til þess að
nemendur gera klaufamistök og
missa hjólin á hliðina. Þátttakendur
þurfa að vera í ágætu líkamlegu
formi og með gott úthald en sjálf-
sagt er líka að taka pásu ef þess
reynist þörf. Æfingar standa yfir
frá 8.30 til 17 báða kennsludagana,
tekið klukkustundarlangt hlé í há-
deginu og fullt af vatnsstoppum yf-
ir daginn.“
Það eina sem þátttakendur þurfa
að taka með sér út er hlífðarfatn-
aður og góða skapið. Þökk sé
samkomulagi milli Icelandair og
Reykjavik Motor Center þarf ekki
að borga yfirvigtargjald af hjálm-
um, brynjum og öðrum þungum
motorhjólaflíkum. Eyþór segir
mjög góða stemningu myndast í
hópnum, glatt á hjalla og auk þess
að verða hæfari mótorhjólamenn
geti þátttakendur vænst þess að
eignast nýja vinni.
Gagnast á öllum hjólum
Bendir Eyþór líka á að þótt not-
ast sé við torfæruhjól á námskeið-
inu gagnist þjálfunin á öllum teg-
undum hjóla. „Hvort sem ekið er á
malarvegi eða erfiðum slóða, á tor-
færuhjóli eða Harley, nýtist þekk-
ing í réttri líkamsbeitingu á öllum
hjólum og við allar aðstæður.“
Til viðbótar við Hecklingen-
ferðirnar stendur Reykjavik Motor
Center fyrir kennslu sem fram fer
á Íslandi. „Við gerðum tilraun með
það síðasta haust og endurtökum
leikinn í ár. Flytjum við inn kenn-
ara frá Bretlandi og nýtum hjólin
frá Biking Viking. Er námskeiðið
þannig skipulagt að byrjað er á
tveggja daga kennslu og þjálfun og
síðan haldið í þriggja daga mót-
orhjólaferð yfir hálendið.“
ai@mbl.is
Reykjavík Motor Center fór til Þýskalands í síðasta mánuði
Takast á við krefjandi æfingabraut BMW
Morgunblaðið/Ófeigur
Eyþór Örlygsson segir þjálfunina sem fæst í Hecklingen gagnast fólki á öllum tegundum mótorhjóla.
Á brautinni er að finna drullu og sandpytti, þröng einstígi og illviðráðanlegar rætur.Hópnum er skipt upp eftir getu svo allir fái þjálfun við sitt hæfi. Byrjendur eru velkomnir.
Reykjavik Motor Center varð til árið 2012 með samruna Harley Dav-
idson-umboðsins, mótorhjólaleigunnar Biking Viking og vespuleig-
unnar Lundavespna.
Í dag eru mótorhjólin frá BMW í fyrirrúmi en hjá fyrirtækinu er
einnig hægt að finna hjól frá Piaggio, Vespa, Aprilia, og Moto Guzzi.
Að sögn Eyþórs hefur salan á mótorhjólum ekki enn náð sér al-
mennilega á strik eftir hrunið margumtalaða og er það einkum mót-
orhjólaleigan sem ber reksturinn uppi. Ferðamönnum fjölgar ár frá
ári og margir vilja skoða landið á vélhjóli sem kemst hvert á land sem
er.
Má þó reikna með að salan taki að glæðast innan skamms. Eyþór
þekkir mótorhjólamarkaðinn vel en hann var á sínum tíma inn-
kaupastjóri hjá mótorhjólaversluninni Nitró. „Eftir niðursveiflu má
fyrst reikna með að salan á bílum taki við sér. Síðan koma ferðavagn-
arnir og ódýrari „leikföng“ og loks mótorhjólin. Miðað við þessa þum-
alputtareglu má vænta þess að þetta sumar og næsta fari salan mót-
orhjólum að komast á eðlilegt ról.“
Salan ætti að glæðast þetta
sumar eða næsta