Morgunblaðið - 24.05.2016, Side 13

Morgunblaðið - 24.05.2016, Side 13
hægri handar í hnappinn og stilla eftir óskum. Þarf Porsche að hafa viðbótarhljóð? Þeir sem ekið hafa sportbíl frá Porsche vita sem er að vélarhljóðið er unaðslegt. Hann malar í hæga- gangi, urrar við inngjöf og öskrar þegar gjöfin er botnuð. Þegar ekið er í bíl með miðlægri vél eins og tilfellið er með Boxsterinn þá er nánast eins og maður sitji á vélinni. Það sem meira er, þegar stigið er á kúp- linguna og tengslin rofin á ferð, er hreinlega eins og aflið ólgi í bílnum; það bullar og kraumar! Það kom mér þó á óvart að komast að því að þegar nálin á snúningshraðamælinum er komin á „rauða svæðið“ er vél- arhljóðinu veitt um hátalara inn í stýrishúsið til að auka á áhrifin. Þetta gerist þegar bíllinn er í Sport- stillingu en þegar stillt er á Sport + fer allt fúttið í að koma aflinu í hjólin. Hávaðinn minnkar og togið eflist enn frekar. Persónulega kunni ég því fyrirkomulagi betur. Ekki svo að skilja að hljóðveita af þessu tagi skemmi fyrir – nema kannski fyrir alhörðustu meðlimi rétttrún- aðarsafnaðar Porsche, en mér fannst þetta satt að segja ekki þurfa. Hljóð- ið í Porsche 718 þarf engin hjálp- ardekk. Útlitsleg bæting milli kynslóða Hvað ásýndina varðar er Boxster- inn ekki mikið breyttur fá síðustu kynslóð (enda glórulaust að breyta bara til að breyta; það sem ekki er viðgerðar þurfi er óþarfi að gera við) en þó er að finna á honum fáein smá- atriði sem hafa heilmikið að segja, og það til hins betra. Fyrst er að nefna afturendann. Sá er þetta ritar hefur löngum verið þeirrar skoðunar að baksvipurinn á Boxster standi 911 töluvert að baki, en nú horfir það allt til betri vegar. Bara með því að hanna svolítinn stall á skottbríkina, í svörtum háglans milli afturljósanna, er svipurinn allt annar og fallegri. Ofan á stallinum hvílir svo vind- skeiðin sem lyfta má upp ef taka á bílinn hressilega til kostanna. Milli hurðaflekanna og afturhjólaskál- anna eru svo komin voldug loft- inntök sem setja mark sitt skemmti- lega á hliðar bílsins. Loks eru loftinntökin neðan við framstuð- arann stærri en áður og nefið allt lægra, sem gefur honum ennþá meiri hraðaksturssvip. Í það heila miklar framfarir á bíl sem fyrir var býsna fallegur. Indæll staður til að vera á Hvað innanrýmið varðar er þar allt eins og Porsche-ökumenn þekkja það. Nú er reyndar komin einskonar stjórnstöð (PCM – Porsche Comm- unication Management) sem að- gengileg er ökumanni um þægilegan snertiskjá hvaðan stjórna má öllu sem snýr að upplýsingum, afþrey- ingu og þess háttar. Þegar hefur ver- ið nefndur viðbótarhnappurinn í stýrinu fyrir mismunandi aksturs- stillingar og er nýjung. Að öðru leyti er umhverfi ökumanns í takt við það sem Porsche hefur lagt upp með síð- ustu árin og ekki í kot vísað hvað það varðar. Sem fyrr er þó sérkennilegt að það þurfi að halda niðri takkanum sem tekur blæjuþakið niður og setur það upp og merkilegt að menn hafi ekki bætt úr því síðan Porsche 911 Targa var kynntur vorið 2014. Þakið er uppi eða niðri, millistigi er ekki til að dreifa. Hvers vegna er þá ekki nóg að styðja á takkann og sleppa svo? Rúðunum vill maður geta slak- að mismikið upp eða niður og þá er gott að geta stoppað í ótilgreindu millibili en þakið er bara annaðhvort niðri eða uppi og því tilgangslaust að láta mann halda takkanum niðri meðan þakið fer upp eða niður. Svona sparðatíningur breytir því ekki að akstur Porsche 718 Boxster er ómenguð ánægja, hvort heldur ekið er á 75, 175 eða 255. Hann er í hvívetna hreinn akstursunaður og enn ein rósin í troðfullt hnappagat Porsche. Hliðarsvipur Porsche 718 Boxster er í einu orði sagt stórfenglega fallegur og hefur tekið breytingum til hins betra frá síðustu kynslóð. Stýrishjólið vinnur frábærlega og stýringin öll eins og draumur. 718 Boxster býður aðeins tveimur á rúntinn hverju sinni. Er það vel. komna ður ekki á móti mælt að það gleður augað að sjá í keramikið. Þannig lítur vindskeiðin út í hvíldarstöðu, innfelld og fyrirferðarlítil. MORGUNBLAÐIÐ | 13 ð á hinum nýja Porsche 718 Boxster. Þessi sportbíll er bara gullfallegur. + Útlit, aksturseiginleikar, búnaður, afl - nánast allt - Skrýtið að þurfa að halda blæjutakkanum inni

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.