Morgunblaðið - 24.05.2016, Side 14
14 | MORGUNBLAÐIÐ
Sameinar það besta í rafsuðu
Smiðjuvegi 66 • Kópavogi • 580 5800 • www.landvelar.isFuruvöllum 3 • Akureyri • 461 2288
E
nn bætist við Lexus-
fjölskylduna og nýjasti
meðlimurinn er satt að
segja einn af þeim fríðari.
Lexus RC er sportbíll af „coupe“
sortinni og bara ferlega flottur að
sjá. Hann sver sig í ættina með
svipmiklu framgrillinu sem er með
sama stundaglaslaginu og aðrir fjöl-
skyldumeðlimir og útlitið allt geisl-
ar af sjálfsöryggi. Hér er ekki farið
í neina launkofa með eitt eða neitt;
Lexus eru á útopnunni um þessar
mundir og er það vel.
Á hvern minnir hann mig?
Þegar blaðamaður fékk bílinn
fyrst til reynslu hreyfði útlit bílsins
við einhverjum eldfornum minn-
ingum – einhvers staðar hafði ég
séð eitthvað við þennan bíl, ein-
hvern tímann í fyrndinni. Ekki kom
það upp í kollinn sisona svo ég lagði
það til hliðar og beið þess að það
dúkkaði upp þegar minnst varði,
sem það og gerði. En til að byrja
með var nóg til þess að dást að því
línur Lexus RC eru, sem fyrr sagði,
bráðfallegar og coupe-lagið gengur
prýðilega upp. Bíllinn er hvorki og
snubbóttur né of langur, bara akk-
úrat passlegur. Nýjustu bílarnir frá
Lexus höggva iðulega í sama kné-
runn og NX-jepplingurinn, með
skarpar – nánast flugbeittar – línur
en RC-bíllinn er heldur sveigðari og
straumlínulagaðri. Fyrir bragðið er
útlitið dýnamískt og sportlegt á alla
kanta. Rétt eins og gríðarmikið
framgrillið gerir framendann flott-
an og tilkomumikinn, þá er prófíll-
inn að sama skapi sérlega fallegur
og baksvipurinn sömuleiðis. Útlits-
lega er bíllinn einfaldlega fram-
úrskarandi vel heppnaður og ekki
sakar F-Sport upfærslan. Bílar í
þessum flokki verða trauðla mikið
gæjalegri.
Og þá komum við aftur að því
sem mér fannst ég hafa séð áður;
svarti kamburinn sem er að finna á
hornunum aftan við afturdekkin
kallast á við loftinntökin á hvítum
Ferrari Testarossa. Gúgglið bara.
Afbragðsgott innanrými
Eins og vera ber með sportbíl þá
liggja sætin neðarlega og eru vel
afturhallandi, sem þýðir að innstigið
er talsvert djúpt. En þegar inn er
sest, beltin spennt og vélin ræst er
því ekki að neita að það fer fantavel
um ökumann. Mælaborð og stjórn-
tækjainnrétting er reyndar svolítið
út og suður, þetta er upphleypt á
meðan hitt er innfellt og næsta kyn-
slóð á vafalítið eftir að skarta inn-
réttingu sem verður meira í línu við
straumlínulagaðan bílinn. Þetta er
þó meira fagurfræðilegt umkvört-
unarefni því öll „fúnskjón“ er til
fyrirmyndar, um leið og efnisval er
óaðfinnanlegt í alla staði. Lexus RC
er einkar vel búinn í bak og fyrir og
sérstaklega er vert að hrósa hljóð-
kerfinu frá Mark Levinson er sem
alger negla. Það fer feikivel um
ökumann og farþega, sem sitja í
umvefjandi sætum, sjá vel til allra
átta og hafa það gott að öllu leyti,
en aftursætisfarþegar þurfa að gera
sér að góðu afskaplega takmarkað
fótarými og skert útsýni því glugg-
arnir á hliðunum eru í knappara
lagi. En plássið sleppur samt til fyr-
ir þau skipti þar sem þarf að koma
fjórum einstaklingum milli staða.
Lexus NC300h er einkar vel heppnaður bíll í útliti, með greinilegan ættarsvip en um leið eigin einkenni. Coupe-lagið er feikivel úr garði gert og bíllinn hefur talsvert háan áhorfsstuðul.
Fágun og fegurð frá Lexus
Morgunblaðið/Ófeigur
Plássið er hið fínasta fram í Lexusnum en aðra sögu er að segja afturí.
Ökumaður og farþegi sitja lágt í Lexus NV300h og sportbílatilfinningin
er ósvikin. Efnisvalið er fínt og búnaður allur afskaplega ríkulegur.
Gríðarmikið framgrillið setur tilkomumikinn svip á NC300h.
+
Útlit, sparneytinn,
gott upptak.
-
Hestöflin hefðu mátt
vera fleiri.