Morgunblaðið - 24.05.2016, Qupperneq 15
En fyrst og fremst er þetta „fram-
sætabíll“ og það er til nóg af sedan-
og skutbílum fyrir þá sem vilja gera
vel við farþegana. Þessi er hugs-
aður út frá ökumanni og farþega í
framsæti og um þá væsir ekki.
Fleiri hestar hefðu ekki sakað
Talandi um ökumanninn – víkjum
þá að akstrinum sjálfum. Sumir
höfðu á orði um NX-sportjeppann
að það sem helst hái þeim annars
bráðfallega bíl að hann skorti svolít-
ið afl. Það má að einhverju leyti
heimfæra það umkvörtunarefni á
NC-bílinn líka. Það hefði hreint
ekki sakað að hafa svolítið fleiri
hross undir húddinu og eru þau þó
225 talsins. Bíllinn er hins vegar
1.775 kíló og það skýrir sjálfsagt að
hann er 6,8 sekúndur í hundraðið
og þó það sé út af fyrir sig ekkert
dónalegt þá er það eiginlega heldur
meira en útlitið gefur fyrirheit um.
Aggressíf ásjónan á NC300h nánast
lofar hröðun upp í 100 km/klst. á 5
sekúndum. En hann er engu að síð-
ur vel kvikur af stað, sem er það
sem mest er um vert, og togið er
sprækt framan af. Á það má minna
í þessu samhengi að hvergi á al-
mennum akstursleiðum á landi hér
er löglegt að aka á 100 km/klst. svo
þetta er út af fyrir sig ekki svo al-
varlegt. Auk þess er stýringin hin
fínasta, hann snýr við „á tíkalli“
eins og þar stendur og er sérlega
lipur og þýður í akstri. Sport-
stillingin gerir hann enn reffilegri
og á meðan hann fæst eingöngu
sjálfskiptur er hann samt sem áður
með blöðkum til beinskiptingar í
stýrinu, fyrir þá ökumenn sem vilja
sjá um þetta sjálfir.
Hybrid-hliðin er þá hin ákjósan-
legasta og bíllinn eyðir ákaflega
skaplega í blönduðum akstri. Upp-
gefin eyðsla er 5 lítrar, undirritaður
var í tæpum 6 sem er ekki til að
kvarta yfir. Í borgarakstrinum er
vel hægt að rúlla á rafmagninu einu
saman, alltént á meðan rafhlaðan á
eitthvað inni. Það hefði verið enn
skemmtilegra að hafa bílinn sem
plug-in hybrid, og það má vonast
eftir slíku næst.
Lexus NC330h hefur nánast jafn flottan baksvip og hann hefur framenda, nokkuð sem fáir státa af.Það kemur talsvert á óvart hvað skottið í Lexus NC300 er rúmgott.
MORGUNBLAÐIÐ | 15
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is
Þú finnur bílinn á bilo.is Auglýstir bílar eru á staðnum Skráðu bílinn á bilo.is
M.BENZ E 250 CDI 4matic
nýskr. 02/2013, ekinn 68 Þ.km, diesel, sjálfskiptur, fjórhjóladrifinn, mjög vel búinn
aukahlutum. Verð 6.990.000 kr. Raðnr. 287205
LAND ROVER DEFENDER 110
nýskr. 06/2015, ekinn 20 Þ.km, diesel, 6 gíra, snorkel o.fl.
Verð 11.490.000. Raðnr.255138
M.BENZ E 200CDI T BLUETEC AVANTGARDE
nýskr. 10/2014, ekinn 25 Þ.km, diesel, sjálfskiptur, lúga o.fl.
TILBOÐSVERÐ 6.490.000 kr. Raðnr.254758
AUDI A6 2.0 TDI S-LINE
nýskr. 08/2014, ekinn 16 Þ.km, disel, sjálfskiptur, mjög vel búinn og flottur!
OKKAR BESTA VERÐ 7.490.000 kr. Raðnr.254356
BMW 520D XDRIVE F10
nýskr. 01/2015, ekinn 25 Þ.km, fjórhjóladrifinn, diesel, sjálfskiptur, sóllúga, leðurlúxus-
sæti o.fl. Glæsilega búinn bíll. Verð 8.690.000 kr. Raðnr. 254961
M.BENZ E 300 BLUETEC HYBRID
nýskr. 07/2013, ekinn 83 Þ.km, dísel/rafmagn, sjálfskiptur, leður, glertoppur o.fl.
Verð 6.590.000 kr. Raðnr. 254489
Lexus RC 300h
Jón Agnar Ólason
jonagnar@mbl.is
Reynsluakstur
2,5 lítra L4 ásamt rafmótor
223 hestöfl/221 Nm
Sjálfskipting
0-100 km/sek: 8,6
Hámark: 190 km/klst
Afturhjóladrif
19 tommu álfelgur
Eigin þyngd kg: 1.775
Farangursrými: 340 lítrar
Mengunargildi: frá 116gCO2/km
Verð frá: 10.080.000 kr
5 l/100 km í bl. akstri
Umboð: Lexus Ísland