Morgunblaðið - 24.05.2016, Side 16
16 | MORGUNBLAÐIÐ
Miðhraun 2 210 Garðabær Sími 587 1300 optimar@optimar.is www.optimar.is
· Plönum hedd
· Rennum& slípum sveifarása
· Málmsprautum slitfleti, t.d.
á tjakkstöngum
· Tjakkaviðgerðir
· Almenn renni- & fræsivinna
· Almenn suðuvinna
· Gerum við loftkælingu bíla
· Allar almennar vélaviðgerðir
ALHLIÐA
VÉLAVERKSTÆÐI
Ein öld er á þessu ári frá því að
þýski bílsmiðurinn BMW hóf starf-
semi. Nafnið (Bayerische Motoren
Werke) dregur dám af meginstarf-
seminni í fyrstu, vélaframleiðslu.
Má segja að saga BMW sé vörðuð
einstökum tækniframförum á sviði
vélaþróunar og leiðandi gæðahönn-
unar. Tímamótum þessum var
fagnað um helgina með sérstakri
afmælissýningu hjá BL, umboðs-
aðila BMW hér á landi, um helgina.
Frumsýndir voru fimm nýir bílar
frá BMW og bar þar hæst sportbíl-
ana BMW i8 og M2 auk flaggskips-
ins BMW 7 og sérstakrar 100 ára
afmælisútgáfu af BMW X5 og BMW
5 Series. Þá var rafbíllinn i3 einnig
frumsýndur.
BMW varð til í mars 1916 við
sameiningu þriggja iðnfyrirtækja,
þar á meðal framleiðanda flugvéla-
mótora og bílaframleiðanda. Í
fyrstu var þróun og framleiðsla
flugvélamótora þungamiðjan í
starfseminni. Dró til tíðinda á því
sviði 17. júní 1919 er DFW F37 tví-
þekju með 250 hestafla vatns-
kældum BMW-mótor var flogið í
tæplega 10 km hæð, 32.000 feta.
Það var heimsmet og sagði
flugmaðurinn, Franz-Zeno Diemer,
að hann hefði komist hærra hefði
hann tekið með sér nægar súrefnis-
birgðir.
Tímamótavélfákur BMW R 32
Vegna ákvæða stríðsloka-
samkomulagsins frá Versölum var
BMW knúið til að hætta þróun og
smíði flugvélamótora eftir fyrri
heimsstyrjöld, sem lauk 1918. Sneri
fyrirtækið sér að þróun og fram-
leiðslu á bifhjólamótorum, til að
byrja með fyrir aðra framleið-
endur.
Árið 1923 hannaði og kynnti
BMW svo sitt eigið mótorhjól, BMW
R 32. Það olli þáttaskilum vegna
sportlegs og rómantísks yfirbragðs
þar sem hönnunin hverfðist um
mótorinn, sem varð þá um leið
helsta þungamiðja í útliti hjólsins.
Þetta hjól var með svonefndri „box-
er“-vél sem átti eftir að marka
tímamót. Nýbreytni BMW átti eftir
að hafa áhrif á aðra mótorhjóla-
framleiðendur.
Byrja með Dixi
Fyrsti bíllinn sem BMW fram-
leiddi – og sá sem renndi stoðum
undir fyrirtækið sem bílsmið – var
hinn svonefndi Dixi, sem grundvall-
aður var á Austin 7 og framleiddur
með leyfi breska bílaframleiðand-
ans Austin Motor Company í Birm-
ingham á Englandi.
Tímamót urðu í sögu BMW árið
1936, en þá kom sportbíllinn BMW
328 fram á sjónarsviðið. Hann
markaði nýtt upphaf í aksturs-
íþróttum og varð afar sigursæll á
fjórða áratugnum. Hann hafði áður
óþekkta snerpu og hröðun og þótti
einstaklega meðfærilegur í akstri.
Bíllinn var aðeins 780 kg, að miklu
leyti smíðaður úr áli og með litla en
afkastamikla 80 hestafla vél. Þetta
þótti einstaklega frumlegt enda fór
enginn tími til spillis á kappakst-
ursbrautinni í Nürburgring 14. júní
1936 þar sem hann gjörsigraði
keppinautana – strax fyrsta daginn
sem hann var sýndur opinberlega.
Fremstir í flokki á X5
BMW þótti koma á óvart á bíla-
sýningunni í Detroit í Bandaríkj-
unum í janúar 1999 er það kynnti til
sögunnar rúmgóðan fjórhjóla-
drifinn og sportlegan lúxusjeppa.
Enn var langt í land í þá spreng-
ingu í smíði sportjeppa sem við
þekkjum nú, er BMW reið á vaðið
með X5-bílnum. Aksturseiginleikar
hans voru rómaðir, rými og þæg-
indi einnig og torfærugeta.
Umhverfismál hafa verið stjórn-
endum BMW hugleikin og hefur
fyrirtækið kynnt margvíslegar
tæknilausnir sem dregið hafa úr
neikvæðum áhrifum á umhverfið.
Sem dæmi má nefna að árið 1955
kynnti BMW fyrsta fjöldafram-
leidda smábíl heims, Isetta, sem
eyddi aðeins þremur lítrum á
hundraðið. Var þar um að ræða
ítalskan bíl sem BMW framleiddi
samkvæmt leyfi og brúkaði í sína
útgáfu umbreytta mótorhjólavél.
Náði hann nokkrum vinsældum og
styrkti aftur stöðu BMW sem bíl-
smiðs. Varð Isetta söluhæsti eins
strokks bíllinn í heiminum þetta
sama ár. Árið 1973 varð BMW svo
fyrsti bílaframleiðandinn til að
setja á laggir starf framkvæmda-
stjóra umhverfismála til að sam-
ræma og efla áherslur BMW í mála-
flokknum.
Rafbíll kemur til skjalanna
Árangur af þessum áherslum er
meðal annars sá að undanfarin 15
ár hefur BMW vermt efsta sætið í
svonefndri sjálfbærnivísitölu
RobecoSAM í flokki bílaframleið-
enda. Þá hefur BMW minnkað út-
blástur bíla sinna um 40% frá árinu
1990. Á grunni þeirrar reynslu sem
aflað hefur verið undanfarna ára-
tugi innleiddi fyrirtækið BMW Ef-
ficient Dynamics-tæknina árið 2007
sem leggur höfuðáherslu á aksturs-
ánægju og afköst en um leið lág-
mörkun eldsneytiseyðslu og út-
blásturs.
Segja má að það hafi svo verið
rökrétt afleiðing af áherslum BMW
í umhverfismálum er þýski lúxus-
bílsmiðurinn kynnti árið 2013 lít-
inn, léttan en kraftmikinn raf-
magnsbíl, BMW i3. Hefur hann
hlotið góðar viðtökur víða, en hann
var meðal gripa sem frumsýndir
voru á afmælissýningu BMW hjá
BL. Sala á honum hér á landi hefst
síðar á árinu.
21. maí, þar sem frumsýndir
verða fimm nýir bílar auk annarra
sem BL státar af í sýningarsalnum.
Hæst ber sportbílana BMW i8 og
M2 auk flaggskipsins BMW 7 og
sérstakrar 100 ára afmælisútgáfu
af BMW X5 og BMW 5 Series. Þá
verður rafmagnsbíllinn i3 einnig
frumsýndur hjá BL en hann fer í
sölu hjá BL síðar á þessu ári en
verður til taks fyrir reynsluakstur á
laugardaginn.
agas@mbl.is
BMW fagnar 100 ára afmæli í ár
Saga vörðuð tækniframförum
Morgunblaðið/wikipedia/CC BY-S
BMW R32 mótorhjólið með boxer-vél markaði þáttaskil. Hönnunin var hugvitsamleg á marga vegu.
Morgunblaðið/Wikimedia/commons
Dixi er fyrsti bíllinn sem BMW framleiddi, með enskar rætur.
Morgunblaðið/Wikipedia CC/Koos
Isetta eyddi aðeins þremur lítrum á hundraðið. Geri aðrir betur.