Morgunblaðið - 24.05.2016, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 24.05.2016, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ | 21 • Stýrishlutir • Pakkningasett • Ventlar • Vatnsdælur • Tímareimar • Knastásar • Legur • Stimplar Varahlutir sem þú getur treyst á! Sími: 577 1313 | Tangarhöfða 13 | kistufell.com VARAHLUTAVERSLUN VÉLAVERKSTÆÐIÐ Túrbínur í flestar gerðir bíla Frábært verð Hafa skal það sem hljómar betur Lágmúla 8, Sími 530 2800Umboðsmenn um land allt Verð frá: 17.900,- DEH-1800UB Bíltæki FM/LW - Geislaspilari/USB/Aux Opið laugardaga kl. 11-15 Verð kr.: 89.900,- DVD/CD Spilari 6,2” Skjár, DAB+ og Bluetooth - 2 DIN PIAVH-X3800DAB Innbyggt Bluetooth USB inngangur iPod, iPhone og Android stuðningur með snúru. CD/DVD afspilun: MP3, WMA, AAC, DivX, Xvid, MPEG-1,2,4 USB afspilun: MP3, WMA, AAC, WAV, FLAC, DivX, Xvid, H.264, MPEG4, JPEG Verð kr.: 29.900,- Bassakeila PITSW2501D4 Max 2500 W (800 W RMS) Tíðnisvið 20 - 150 Hz Næmni (1W/1m) 90 dB Stærð 10” (25 cm) Tveir frændur í smábænum Accr- ington í norðvesturhluta Englands hafa verið dæmdir í fangelsi fyrir að vinda ofan af kílómetramælum notaðra bíla og selja þá svo. Þar sem bílarnir litu út fyrir að vera lítt keyrðir gátu þeir selt þá við mun hærra verði en ella. Hinn 33 ára gamli Nazim Hussa- in og hinn þrítugi Mohammed Aseeb Hussain gengust við broti sínu en þeir munu hafa stundað að kaupa bíla á uppboði og eiga síðan við kílómetramæla þeirra áður en þeir endurseldu þá. Náði svindl þeirra til mörg hundruð bíla og eru þeir sagðir hafa þurrkað af mælum þeirra milljónir kílómetra. Keyptu þeir til að mynda hundr- uð bíla á tveggja ára bili af einu og sama uppboðshúsinu. Nazim Hussain keypti 277 bíla 2011 og 2012 og Aseeb Hussain 334. Nær öllum hafði verið ekið meira en 100.000 mílur eða yfir 160.000 km. Voru margir eðalbílar þar á meðal, svo sem af gerðunum Audi, BMW, Mercedes og Range Rover. Í flest- um tilvikum voru 150-200 þúsund kílómetrar þurrkaðir út af mæl- unum og dæmi var um nokkra þar sem á fjórða hundrað þúsund kíló- metra voru látnir fjúka. Til dæmis eitt stykki Ford Galaxy sem undið var 374.000 kílómetrum af. Sá sem minnst var breytt var skrúfaður niður um 74.000 km. Bílar sem keyptir voru af frænd- unum – á fölskum forsendum – biluðu ótt og títt. Tíðar bilanir eins bílsins urðu á endanum sú þúfa er velti stóru hlassi. Þótti það ein- kennilegt miðað við hve lítt bíllinn átti að vera notaður. Óháðir mats- menn löggildingarstofu Lancashi- reskíris voru kvaddir til og eftir því sem þeir köfuðu dýpra kom fjöldi svipaðra tilvika í ljós. Eitt þeirra var sérdeilis óheppilegt því bílstjóri sá komst ekki alla leið heim á nýkeyptum bílnum áður en hann bilaði og neitaði að fara lengra. Á endanum snerist dómsmál á hendur frændunum um 36 bíla sem rannsóknarmenn höfðu orðið að takmarka rannsókn sína við. Meira en helmingur þeirra hafði verið færður niður um vel á annað hundrað þúsund kílómetra. Dóm- arinn Simon Newell við héraðs- dómstólinn í Burnley dæmdi hvorn Hussein-frændann um sig í tveggja ára fangelsi og gerði þeim að borga 22 fórnarlömbum þeirra samtals 130.000 pund í bætur, jafn- virði um 23 milljóna króna. Nazim Hussain reyndist hafa hagnast um 1,86 milljónir punda á svikseminni og verður að borga tíund þess til baka innan þriggja mánaða, ellgar bætast 20 mánuðir við fangels- isrefsingu hans. Frændi hans Mo- hammed Aseeb Hussain þénaði um 2,3 milljónir punda og bætast 13 mánuðir við uppkveðnu refsinguna greiði hann ekki hluta þess til baka innan sama frests. agas@mbl.is Blekktu kaupendur og græddu fúlgur fjár Fangelsi fyrir að snúa niður kílómetramæla Frændurnir skrúfuðu mörghundruð mæla óheyrilega mikið niður. Það er ekki tekið út með sældinni að vera bíll og heita Tívolí í Dan- mörku. Það þekkir kóreski jepp- lingurinn SsangYong Tivoli. Nýverið sótti SsangYong aftur inn á danskan markað með sitt sómasamlega bílaval eftir fjarveru um skeið. Sá bíll sem bílsmiðurinn beinir sérstaklega að Dönum er jeppinn Tivoli, ýmist með 1,6 lítra bensín- eða dísilvél. Hann er hugsaður sem rakinn keppinautur Nissan Qashqai og sækir inn í bílgeira sem þjáður er af vaxtarverkjum. Vandi SsangYong Tivoli í Dana- veldi er að þar á skemmtigarð- urinn vinsæli algjöran og und- antekningarlausan rétt á nafninu Tívolí. Valdi bílsmiðurinn þá dipló- matísku leið að efna ekki til nafnadeilu við hinn rótgróna skemmtigarð sem er Dönum svo hjartakær. Ákvað heldur að nefna bílinn upp á nýtt til sölu í Dan- mörku. Alls staðar annars staðar ber jeppinn áfram sama upprunalega nafnið, en í Danmörku er hann seldur sem SsangYong LUVi. Er það skammstöfun fyrir „Leisure Utility Vehicle inspired“ – sem er sögð skírskota til hinnar athafna- sömu fjölskyldu sem þurfi ögn meira bílpláss. agas@mbl.is SsangYong breytir um nafn á bíl Beygðu sig fyrir einkarétti Tívolí SsangYong Tivoli ber nafnið SsangYong LUVi í Danmörku. – með morgunkaffinu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.