Víkurfréttir


Víkurfréttir - 27.03.2003, Blaðsíða 10

Víkurfréttir - 27.03.2003, Blaðsíða 10
Notar þú verðlaun til að bæta námsárangur hjá baminu þínu? -Sitt sýnist hvetjum þegar kem- ur að því að verðlauna námsá- stundun bama með efnislegri umbun. Hitter ómótmæl- anlegt að hægt er að bæta námsár- angur bama verulega með þess- um hætti. -Þegar veitt era verðlaun fyrir að bam hafi náð settu námsmarki þarf að útskýra fýrirfram fýrir hvað er verið að verðlauna. Þú þarft að segja nákvæmlega hvers þú væntir af baminu, hver verð- launin verði og hvenær þau verði afhent. Bamið þarf að langa f verðlaunin. Svo þarf auðvitað að standa við samn- inginn. Markmiðið þarf að vera raunhæft þ.e. bamið þarf að eiga möguleika á að ná mark- miðinu. Þetta virðist einfalt en er það þó ekki alltaf. Algeng mistök era til dæmis að setja baminu svo háleit markmið að bamið eigi ekki möguleika á að ná þeim. -Dæmi urn þetta væri að segja bami sem er slakur námsmaður að það fái ákveðna peningaupp- hæð fýrir hveija einkunn sem er yfir níu. Bamið þarf kannski að bæta sig um 3-4 heila í ein- kunn til að ná því markmiði sem velmeinandi foreldrar setja. í tilfellum sem þessu er fýrirfram gefið að bamið nær ekki settu markmiði. Niðurstað- an er mikill sársauki ogjafnvel niðurlæging á baminu sem beinlínis minnkar líkumar á því að það sjái einhvem tilgang í að leggja sig fram við nám. -Ahrifarikara er að umbuna fýr- ir góðar námsvenjur en ákveðn- ar einkunnir. Bamið getur verið óheppið á prófinu þótt það kunni efhinu góð skil. Bamið fengi þá hugsanlega ekki um- samda umbun þótt það hafi gert allt sem það átti að gera. -Önnur algeng mistök era að láta of langan tíma líða milli þess sem bamið þarf að gera og að verðlaunin verði afhent. Dæmi um þetta er að hefja haustið með því að lofa þaminu reiðhjóli ef það standi sig vel á samræmdu prófimum sem barnið á að þreyta um vorið. Fæst böm ná markmiði sem sett er fram með þessum hætti án aðstoðar fitllorðinna. Stóra umbun af þessu tagi er skyn- samlegt að búta í sundur þannig að bamið eigi raunhæfan möguleika á að ná þeim mark- miðum sem það setur sér. Dæmi um þetta væri til dæmis að leggja ákveðna peningaupp- hæð inn á „hjólasjóð" í lok hverrar viku þar sem náminu hefur verið sinnt eins og um var samið. Það felur í sér að for- eldramir fýlgjast með námi bamsins í vilai hverri og að- stoða þannig bamið við að ná því undirmarkmiði sem það hefur sett sér. Þegar jólaprófum er lokið væri hægt að kaupa hið umsamda hjól fýrir það fé sem bamið hefur safhað sér. -Lítil verðlaun geta verið alveg jafn áhrifamikil og stór. Dæmi um verðlaun sem kosta ekki mikið gætu til dæmis verið... Að fá að ákveða hvað er í mat- inn, taka vídeóspólu á leigu eða poppa. Lítil verðlaun af þessu tagi er skynsamlegt að veita bömum í vikulok fýrir að hafa stundað skólann vel. Þegar fjöl- skyldan gerir sér dagamun er góð hugmynd að tengja góðar námsvenjur við það sem bamið langar til. Dæmi um þetta gæti verið. „Við föram í bíó á morg- un vegna þess að þú hefur stað- ið þig svo vel í heimanáminu. Við forum í húsdýragarðinn vegna þess hvað þið bræðumir erað búnir að standa ykkur vel. Við höfum uppáhaldsmatinn þinn í kvöld vegna þess að þú ert búin að leggja þig fram“. Æskilegt er að nota sem verð- laun eitthvað sem þú ætlaðir hvort eð er að veita baminu þínu. -Ef foreldri ákveður að verð- launa bamið með efnislegum hætti er mikilvægt að beita samtímis lýsandi hrósi þ.e nefha það sem þú ert að umb- una fýrir með efnislegum hætti og hrósa fýrir það. Setningar eins og „ Eg er mjög ánægð með hvað þú ert dugleg að læra stærðfræðina“. „Kennarinn þinn sagði að þú værir alltaf vinnusamur í tímum“. Þú stendur þig vel „ Þetta var vel lesið hjá þér. Hafðu hugfast að hegðun sem baminu er umbun- að fýrir eykst hjá baminu. Þess vegna þarftu að umbuna fýrir góðar námsvenjur ef þú ætlar að bæta námárangur bamsins. Gangi þér vel. Gylfi Jón Gylfason yfírsálfræðingur á Skólaskrifstofu Reykjanesbæjar Þúsundir heimsókna á vf.is alla daga. Hefur þú skoðað mannlífsmyndirnar eða spjallþræðina? www.vf.is- daglega! Langþráð framkvæmd við Hafnargötu að hefjast Um fáar framkvæmdir hefur verið meira rætt á síðustu árum en end- urbyggingu Hafnargötunnar. Gatan hefur um árabil verið þyrnir í augum bæjarbúa og því iöngu tímabært að hefja þessa mikilvægu framkvæmd. Langþráð stund er upp runnin og á morgun, þríðjudaginn 1. apríl kl. 14.00 munu fram- kvæmdir hefjast með athöfn við gatnamót Hafnargötu og Tjarnargötu. Hönnunarvinnu er að mestu lokið og samning- um á milli Reykjanesbæjar og samsteypu sex öflugra fyrir- tækja á svæðinu náð. Vegna ytri aðstæðna í atvinnu- málum og hægstæðra samninga hefur sú ákvörðun verið tekin að flýta framkvæmdinni til muna og gert er ráð fýrir að framkvæmd- in, sem skiptist niður í sex áfanga , verði að fullu lokið í september 2004. Fyrstu þremur áföngum, sem ná frá Tjamargötu að Duus, mun þó ljúka fýrir næstu Ljósa- nótt. Þessari niðurstöðu er ástæða til að fagna. Eitt af loforðum sjálfstæðis- manna í bæjarstjómarkosningun- um var að ljúka framkvæmd við Hafnargötuna þegar á þessu kjör- tímabili. Með samningum hefur nú tekist að gera enn betur og má með sanni segja að fáum hafi komið til hugar að verkinu gæti lokið að fullu á næstu sautján mánuðum. Heildarútlit götunnar mun taka miklum stakkaskiptum þar sem gangstéttir verða hellu- lagðar svo og mikill hluti götunn- ar sjálfrar, nýjum bekkjum og beðum komið fýrir, lýsing endur- hönnuð og hringtorg gerð við helstu gatnamót. Óhætt er að segja að útlitsteikningar hönnuða lofi góðu enda hefur óhjákvæmi- legur dráttur á framkvæmdinni verið réttlættur með því loforði að vel verði gert þegar rétti tím- inn kæmi. Umhverfis- og skipulagsráð Reykjanesbæjar mun leggja sig fram við að fýlgjast með fram- vindu mála og tryggja með því árangur sem við bæjarbúar get- um verið stolt af. Ahersla versl- unareigenda um að hratt sé unnið hefur vissulega verið mætt með umræddum samningum og er það vel. Það er því við hæfi að allir verslunar- og húseigendur við Hafnargötuna standi saman og komi til móts við bæjaryfir- völd í þessari framkvæmd með því að hefja þegar vinnu við að laga og fegra hús sín og samræma út- lit. Góð sam- staða bæjar- yfirvalda og húseigenda er forgangsatriði til að allir þættir verksins myndi þá heild- armynd sem stefnt er að. Ég skora á þá sem málið varða að ganga rösklega til verks. A næstu vikum mun ný upplýs- ingamiðstöð Reykjanesbæjar opna í bókasafninu í Kjarna. Mikilvægt er að merkja hana vel og gera hana þannig aðgengilega fýrir íbúa og gesti bæjarins. Við Vatnsnestorgið er miðstöðin einkar vel staðsett aðeins stein- snar frá hótelum og veitingastöð- um með verslun og þjónustu allt í kring. Tækifæri fýrir öfluga og lifandi aðalgötu Reykjanesbæjar eru til staðar og vinnan hafin með fal- legan miðbæ að markmiði. Nú er það okkar íbúa Reykjanesbæjar að leggja verkinu lið. Steinþór Jónsson, formaður Umhverfis- og skipulagsráðs Góð þjónusta í Keflavíkurútibúi Landsbankans Keflavíkurútibú Landsbanka ís- lands sigraði í þjónustukeppni sem útibú banknas tóku þátt í. I útibúin kom huldufólk sem tók út þjónustu útibúanna án vitund- ar starfsfólks. Framkvæmdar voru 4 mælingar og að þeim loknum stóð útibú Landsbankans í Keflavík á toppnum. Björn Líndal framkvæmdastjóri við- skiptabankasviðs Landsbankans afhenti sl. fimmtudag starfsfólki útibúsins viðurkenningu fyrir sigurinn í þjónustukeppninni. „Þessi góði árangur hvetur okkur til að veita viðskiptavininum enn betri þjónsutu". segir Jóhanna Elín Oskarsdóttir útibússtjóri. ISFS skorar á þingmenn og ráðherra Aðalfundur Iðnsveinafélags Suðurnesja var haldinn 20.mars. Þar skorar félagið á Heilbrigðisráðherra og þing- menn Suðurkjördæmis að koma heilsugæslumálum Suðumesjamanna í lag strax. „Það ástand sem skapast hef- ur á Suðumesjum, að 17000 manna byggð skuli ekki hafa eðlilegan aðgang að heilsu- gæslu, er fullkomlega óvið- unandi", segir í ályktuninni. „Fundurinn bendir á að suð- umesjamenn greiða skatta til jafns við aðra landsmenn og hafa líka ennþá kosningarétt“ Mjaðmagrindar- brotnaði í samkvæmi Lögreglan í Keflavík hafði í nógu að snúast um helgina. Klukkan rúmlega 3 á laugar- dagsnótt var lögreglan kölluð að húsi í Sandgerði þar sem samkvæmi stóð yfir. Mikil ölvun var í samkvæminu og í kjölfar slagsmála sem þar urðu datt einn gestanna og var hann fluttur með sjúkra- bifreið á Heilbrigðisstofnun Suðumesja. Talið var að mað- urinn væri mjaðmagrindar- brotinn og var hann þá fluttur á Háskólasjúkrahúsið í Foss- vogi. Ósáttur í rútu Einn aðili var vistaður í fangageymslu eftir að honum lenti saman við samferðarfólk sitt í rútu í Grindavík. Maðurinn var mikið ölv- aður og æstur þegar lögreglumenn handtóku hann. Náði maðurinn m.a. að dælda afturhurð lögreglubílsins með því að sparka í hurð- ina. 10 VlKURFRÉTTIR Á NETINU www.vf.is LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.