Víkurfréttir


Víkurfréttir - 27.03.2003, Page 20

Víkurfréttir - 27.03.2003, Page 20
hjá Sigurði Ingvars í Garði Verslun Sigurðar Ingvars í Garðinum býður upp á mjög mikið úrval fermingargjafa frá Sjónvarpsmiðstöðinni. Þar er m.a. hægt að fá hljómflutningsgræjur, DVD-spilara, sjónvörp, digital-myndavélar og videó og ýmsar smávörur, s.s. hárblásara og vöfflu eða sléttujárn. Einnig er verslunin með ýmsar vörur frá hinu geysivinsæla merki Adidas en þess má geta að nýju sumarvörurnar streyma nú inn, m.a. skór og íþróttagallar. Á myndinni eru mæðgumar Didda og Jóna. „Það var náttúrulega skemmti- legast aðfá gjafirnar" Guðjón Vilhelm fram- kvæmdastjóri B.A.G. (Hnefaleikafélags Reykjaness) er þrítugur og hann segir að fermingin hafi verið mjög sérstök. Hann fermdist þann 6. apríl árið 1986 og Guðjón segir að fermingarundirbúningurinn hafi gengið vel: „Ég var nokk- uð vel að mér í biblíusögum því ég bjó á hvítasunnuheimili í Fljótshlíðinni í tvö ár. Sr. Ólafur Oddur Jónsson prest- ur í Keflavíkurkirkju fermdi mig og ég held að honum hafi litist vel á hópinn, eins og prestar gera alltaf,“ segir Gaui og brosir út í annað, en í fermingarhópnum hans voru um 30 krakkar. Veislan var haldin í KK salnum og segir Guðjón að um 60 manns hafi verið í veislunni: „Þetta var fin veisla. Það var náttúrulega skemmtilegast að fá gjafirnar, en ég fékk rúm frá mömmu, hillusamstæðu ffá afa og ömmu, 50 þúsund krónur í peningum og annað dótarí.“ Þegar Guðjón lítur á fenningar- myndina hlær hann: „Ég er af- skaplega bamalegur á myndinni og það er ótrúlegt miðað við hvaða uppátæki maður var far- inn að fremja á þessum árum,“ segir Guðjón og bætir því við að fermingarfræðslan sé ekki gleymd þó nokkuð langt sé nið- ur á hana: „Ég held að ég hafi nýtt mér lítið af fenningarund- irbúningnum. Manni em kennd góð gildi og þetta var allt hamr- að í mann á þessum árum. Þetta er allt þama ennþá og ég er viss um að maður á eftir að nýta sér þetta í framtíðinni. Nettari og sígildari skartgripir vinsælir Ura og skartgripaversl- unin hefur selt ferming- argjafir í 35 ár. Að sögn Rúnars Hannah hefur tískan í gegnum árin vitaskuld breyst mikið og í stað stórra og grófra skartgripa hér áður fyrr, eru nettari og klassískari skart- gripir vinsælir. I úrunum er tískan hins vegar þannig að stærri og grófari úr verða fyrir valinu og mörg úr em nú keimlík þeim sem voru á boðstólnum þegar foreldrarnir fermdust. Fyrir stúlkur er það helst silf- urskargripir sem eru teknir. Einnig er nokkuð um það að vandaðir gullskartgripir verði fyrir valinu sem gjöf frá náskyld- um ættingjum. Fyrir drengi hefur úrval af skartgripum aukist mikið og em armbönd, hálsmen og hringir teknir fýrir þá. Rúnar segir úr ailtaf vera sígilda fermingargjöf og segir hann að verslunin sé með öll helstu tískumerkin. Má þar nefna merki eins og Storm, DKNY, Fossil og Diesei. Einnig eru til vönduð svissnesk úr eins og Tissot, og Certina, en slík úr velja oft afinn og amman til að gefa bamabör- num sínum. Frá pottréttum upp í kalkúnaveislur Nú eru fermingar fram- undan og matvælafyr- irtæki á fullu í sínum undirbúningi, það er auðvitað ekkert öðruvísi hjá þeim í Mat- arlyst Atlanta. Þegar blaða- maður leit við hjá þeim félög- um mátti greinilega sjá að það kraumaöi vel í pottunum og smá stress var farið að segja tii sín, enda eru fermingarnar margar. Að sögn Axels Jónssonar fram- kvæmdastjóra hafa orðið miklar breytingar á fermingarveislum frá því að hann byijaði 1978: „Þá var bara ein gerð af veislum, kalt borð og eins fyrir alla. Mig minnir að fýrsta verulega breyt- ingin hafi verið um 1979 þegar einn af okkar viðskiptavinum vildi bjóða sínum gestum uppá sjávarréttaborð sem þótti mjög nýstárlegt, en gestimir vom hæst ánægðir með þessa ákvörðun gestgjafans að veislunni lokinni. Nú em allskonar veislur í boði, allt frá einfoldustu pottréttum og upp í hinar stórglæsilegu kalkúnaveislur og allt þar í milli,“ sagði Axel. IRafbúð RÓ eru seldir ali- skyns vinsælir borðlampar fyrir stelpur og stráka í miklu úrvali. Verslunin hefur undanfarið aukið úrvai sitt í rafmagns hársnyrtivörum, s.s. hárblásara, sléttujárn, gas- krullujárnum og fleira. Þá segir starfsfólk verslunarinnar að rakvélar séu alltaf vinsælar fýrir fermingastrákana. Þess má geta að RÓ er með fall- egar seríur í allskyns litum sem hægt væri að nota á fermingar- borðin til skrauts og gæti það myndað skemmtilega stemningu á fermingardaginn. 20

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.