Víkurfréttir


Víkurfréttir - 27.03.2003, Síða 21

Víkurfréttir - 27.03.2003, Síða 21
FERMINGIN 2003 Þegar hringt er í skrifstof- ur Reykjanesbæjar svar- ar kona í símann sem er með mjög þýða og þægilega rödd. Konan á bakvið röddina heitir Ada Elísabet Benjamíns- dóttir en hún verður 67 ára gömul þann 4. apríl nk. Ada Elísabet fermdist á hvíta- sunnudag árið 1950 og segir hún að fermingarundirbúningurinn hafi verið yndislegur: „Undir- búningurinn var skemmtilegur, en það var Sr. Guðmundur Helgason, faðir Gylfa Guð- mundssonar sem sá um að fræða okkur krakkana. Maður drakk í sig kristilegan fróðleik," segir Ada eða Lella eins og hún er jafhan kölluð og bætir við að sér hafi liðið vel þegar fermingar- hópurinn gekk upp að altarinu: „Mér leið vel en var auðvitað svolítið kvíðin. Fyrirkomulagið þá var öðruvísi en það er í dag því þá var öllum hópnum komið fyrir upp að grátunum og síðan var kallað upp eftir stafrófsröð. Og ég var náttúrulega fyrst í staf- rófsröðinni," segir Ada og hlær. A fermingardaginn var hún klædd í hvítan, síðan Atlassylkikjól og hvíta háhælaða skó. Fermingarveislan var haldin heima hjá Lellu og hún segir að í veisluna hafi vinir og ættingjar kornið: „Það var boðið upp á kökur, brauð og kaífi. Mér þótti það voða merkilegt að það var boðið upp á ís, en það þekktist varia í þá daga. Eg man svo vel eftir þessu því pabbi þurfti að fara með ísinn í frysti- húsið í frystinn þar, því þá voru frystar ekki á heimilum fólks. Þegar ísinn var svo kominn heim þurfti að geyma fötuna með ísnum í salti til að halda kuldanunt." Lella segir að hún hafi fengið pakka, en ekkert í líkingu við það sem þekk- ist i dag: „Ég fékk armbandsúr frá mömmu og pabba, skartgripi og síðan fékk ég bækur. Fermingin lifir í huga mínum og er skemmtileg minn- ing sem lifir áffam.“ „Þá var allur hóp- urinn tekinn upp að grátunum“ segir Ada Elísabet Benjamínsdóttir sem fermdist á hvítasunnudag árið 1950 Diddi bróðir passaði peningana Jón Gunnarsson, fjórði maður á lista Sam- fylkingarinnar í Suður- kjördæmi fermdist fyrir þrem- ur áratugum síðan. Hann lýsir þvisvo: Það var stór stund fyrir 30 árum síðan þegar fermingin stóð fyrir dyrum. Séra Guðmundur prestur á Utskálum sá um að uppfræða hópinn í kristilegum málum og hefur það ekki alltaf verið skemmtilegt starf hjá honum því hópurinn var nokkuð baldinn. Stuttu fyrir ferm- ingu var haldin æfing í Hvalsnes- kirkju og er það í fyrsta og eina skiptið sem ég hef ferðast í lögreglu- bíl milli staða, því Guðni lögga keyrði hópinn í „Svörtu Maríu“ frá Sandgerði og út á Hvalsnes. Fermingarveislan var haldin heima á Vallargötunni og ég man að ég skipaði Didda bróðir sérstakan fjárvörslumann þar sem algengt var að ættingjar færðu fermingar- baminu peningagjafir. Hann til- kynnti mér síðan reglulega hver staðan væri á sjóðnum. Veislan tókst vel en verra þótti mér þegar fjarskyldar ffænkur sem ég hafði lítið séð af áður svifu á mig, vel varalitaðar, og smelltu á ntig kossi. Það var ánægður og stór- ríkur peyi (að eigin mati) sem fór í rúmið um kvöldið", sagði Jón Gunnarsson. www.isb.is Vertu meó allt á hreinu! Framtídarreikningur er frábær fermingargjöf Munið gjafabréfin' Framtídarreikningur er frábær fermingargjöf og gott veganesti fyrir ungt fólk út í lífid því ad reikningurinn ber ávallt hæstu innlánsvexti sem í bodi eru í bankanum. Innstæda á Framtídarreikningi er gjöf sem vex og dafnar og med tímanum eignast fermingarbarnid sjód sem þad getur notad til ad láta framtídardrauma sína rætast. Hægt er ad fá Framtídarreikninginn í fallegum gjafaumbúdum í öllum útibúum okkar. Ávallt hæstu innlánsvextir Hámarksöryggi Verdtrygging Sveigjanleiki Hægt að leggja inn hvenær sem er Fæst í fallegum gjafaumbúðum Laus við 18 ára aldur Gjöf sem vex Fáðu nánari upplýsingar í næsta útibúi okkar, kíktu á isb.is eða hringdu í þjónustuverió í síma 440 4000. ISLANDSBANKI 21

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.