Víkurfréttir - 25.04.2003, Qupperneq 6
Útgefandi:
Víkurfréttir ehf. kt. 710183-0319,
Grundarvegi 23, 260 Njarðvík
Simi 421 0000 (15 línur)
Fax 421 0020
Ritstjóri og ábm.:
Páll Ketilsson,
sími 421 0007, pket@vf.is
Fréttastjóri:
Hilmar Bragi Bárðarson,
sími 421 0002, hbb@vf.is
Sölu- og markaðsstjóri:
Jónas Franz Siguijónsson,
simi 421 0001, franz@vf.is
Auglýsingar:
Kristín Njálsdóttir,
sími 421 0008 kristin@vf.is,
Jófriöur Leifsdóttir,
sími 421 0009 jofridur@vf.is
Blaðamenn:
Jóhannes Kr. Kristjánsson
simi 421 0004 johannes@vf.is
Sævar Sævarsson,
sími 421 0003 saevar@vf.is
Hönnun/umbrot:
Stefan Swales,
stefan@vf.is,
Hallur Guðmundsson,
hallur@vf.is
Skrifstofa:
Stefania Jónsdóttir,
Aldís Jónsdóttir
Útlit, umbrot og prentvistun:
Víkurfréttir ehf.
Prenhrinnsla:
Prentsmiðjan Oddi hf.
Dreifing:
Fréttabiaóið dreifing s: 515 7520
Dagleg stafræn útgáfa:
www.vf.is og vikurfrettir.is
Aðrir fjölmiðlar
Víkurfrétta ehf. eru:
VF - Vikulega í Firðinum
Tímarit Víkurfrétta,
The White Falcon,
Kapaisjónvarp Víkurfrétta.
Er ég nokkuð eins og
auglýsing frá Bláa lóninu?
Gleðilegt sumar!
BORÐAÐI PÁSKAEGGIÐ í útlöndum og Kall-
inum leið vel. Kallinn keypti sér páskaegg númer 4
frá Nóa. Gott páskaegg það!
HAFIÐ ÞIÐ eitthvað
velt því fyrir ykkur
hver staðan í lækna-
málum á Suðurnesj-
um er í dag? Hafið
þið velt því fyrir ykk-
ur hvernig málin hafa
þróast? Hafið þið
horft á þingmennina,
ráðherrann og ýmsa
aðra tjá sig um heilsu-
gæslumálin? Ef svo er
þá hljótið þið að sjá
að það er eitthvað sem
enginn skilur í gangi. Kallinn er orðinn leiður á því
að skrifa um þessi mál - það virðist ekkert gerast í
þessum málum.
ÍBÚAR SUÐURNESJA eru að láta hafa sig að
fíflum. Alþingiskosningar eru framundan og lítið
heyrist frá frambjóðendum um ástandið á heilsu-
gæslunni. Árni Ragnar lét þó aðeins í sér heyra í
morgunsjónvarpinu í vikunni þar sem hann ásakaði
heilbrigðisráðherra um að hafa látið læknana af-
skiptalausa fram að þeim tíma þegar þeir hurfu á
braut. Hjálmar hefiir líka látið þá skoðun í ljós að
þetta séu samankomin ráð heilsugæslulæknanna og
liður í kjarabaráttu þeirra. Það er ekki nóg að tala -
eitthvað verður að gerast.
ÞAÐ HLÝTUR AÐ vera krafa Suðumesjamanna
að á Suðumesjum starfi heilsugæslulæknar eins og
annarsstaðar á landinu. Það hlýtur einnig að vera
krafa íbúanna að þeir aðilar sem standa nú í kosn-
ingabaráttu á Suðurnesjum taki til sinna ráða og
komi málum á hreyfingu. Það heyrist varla frá
þeim. Eru íbúar Suðurnesja alveg gjörsamlega
áhugalausir um að þetta ástand lagist? Jaml, japl og
fuður Kallsins em orðin þreytt - en það verður að
berjast fyrir þessum málum - hér er um mannrétt-
indi að ræða.
KALLINUM FINNST ekki mikið um að vera í
pólitíkinni á Suðumesjum. Það er enginn kraftur í
fólki né framboðum. Kannski er ástæðan sú að kjör-
dæmið er orðið það stórt að ffambjóðendur þurfa að
sleikja fólk upp alla leið austur á Homafjörð! Það
heyrist ekki einu sinni í Kristjáni Pálssyni, manns-
ins sem Kallinn hélt að yrði öflugastur á Suðumesj-
um fyrir þessar kosningar.
KOSNINGASLAGURINN er bragðdaufur og
Kallinn nennir varla að skrifa um hann - enda lítið
að skrifa um annað en endalaus boð í kaffisamsæti,
grillveislur og opnanir ráðherra. Lítið varið í það!
BARA EIN skilaboð til þessarar blessuðu fram-
bjóðenda sem ekkert heyrist í: reynið að vinna í
málum sem skipta Suðurnesjamenn máli. Komið
þið læknamálunum á hreyfingu - fyrir það uppsker-
ið þið atkvæði. Þið eigið að vinna fyrir Suðumesja-
menn - sýnið hvað í ykkur býr!
KALLINN MINNIR á að í Víkurfréttum fyrir
kosningar mun Kallinn gefa efstu mönnum af Suð-
umesjum sem em í framboði einkunn fyrir aðkomu
þeirra að heilsugæsludeilunni. Kallinn hvetur les-
endur til að gefa þessum mönnum einkunnir og
senda á kallinn@vf.is.
Kveðja, Kailinn
Kallinn á kassanum
kallinn@vf.is
FRÉTTIR
Reynt að
brjótast inn
á gamla konu
Skömmu fyrir mið-
nætti að kvöldi skír-
dags var óskað eftir
lögreglu að húsi í Keflavík,
þar sem húsráðandi, gömul
kona, varð vör við að ein-
hverjir menn voru að reyna
að opna hjá henni útihurð
sem snýr út í garð. Þegar
lögreglumenn komu á stað-
inn voru mennirnir farnir.
Skemmdir urðu á giugga-
pósti. Ekki er vitað hverjir
voru þarna að verki.
Hávaðasamir
í heitum potti
héldu vöku
fyrir fólki
Skömmu eftir miðnætti
aðfararnótt föstudags-
ins langa barst kvört-
un um röskun svefnfriðar til
lögreglunnar, vegna hávaða
frá fóiki sem var að
skemmta sér í heitum potti
við heimahús í Keflavík.
Lögreglumenn fóru á stað-
inn og fengu fólkið til að
hætta iðju sinni og komst þá
ró á.
500 milljónir í Manngildis-
sjóð sýndarmennska?
Nýr Manngildissjóður Reykjanes-
bæjar var talsvert til umræðu á síð-
asta fundi bæjarstjórnar Reykja-
nesbæjar nú fyrir páska. Jóhann Geirdal,
bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar lagði
fram eftirfarandi bókun fyrir hönd minni-
hlutans og meirihlutinn svaraði með
annarri bókun um málið:
Þegar bærinn leggur inn fasteignir fyrir kr. 3,5
milljarða í Eignarhaldsfélagið Fasteign h.f.
losnar um fjármagn sem við teljum að best sé
að nota til að greiða niður lán bæjarins.
Þannig munu haldast í hendur minni eign
bæjarins og samsvarandi minnkun skulda að
því undanskildu að 525 milljónir fara sem
hlutafé Reykjanesbæjar í Eignarhaldsfélaginu
Fasteign hf.
Með því að leggja 500 milljónir í sjóð og nota
vextina af þeirri upphæð til að sinna hlutverki
Manngildissjóðs er í raun verið að fresta nið-
urgreiðslu lána sem nemur kr. 500 milljónum
með tilheyrandi flármagnskostnaði. Því er
það í raun bærinn sem á ári hverju leggur
fram þessa íjárhæð. Við teljum því eðlilegra
að fjárveiting til Manngildissjóðs verið tekin
tii afgreiðslu og samþykkt við gerð fjárhagsá-
ætlunar ár hvert.
Ætlan Sjálfstæðismanna, að leggja kr. 500
milljónir í Manngildissjóð þar sem höfuð-
stóllinn ásamt verðtryggingu verði ávaxtaður
og raunávöxtun hvers árs nýtt sem úthlutunar-
fé sjóðsins, er því lítið annað en sýndar-
mennska.
Jóhann Geirdal, Sveindís Valdimarsdóttir,
Guðbrandur Einarsson, Ólafur Thordersen
ogKjartan M. Kjartansson.
Til máls tók Böðvar Jónsson er lagði fram
eftirfarandi bókun:
Bókun bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins
vegna Manngildissjóðs:
Manngildissjóður er stofnaður með það að
markmiði að veita stuðning við sértæk verk-
efhi á sviði fræðslu, íþrótta, lista, tómstunda,
félagsþjónustu, umhverfisverndar og fjöl-
skyldu- og forvamarmála. Með 500 millj. kr.
stofhfé sem stefnt er að því að ávaxta í Spari-
sjóðnum í Keflavík, með 6,2% raunávöxtun,
verður raunávöxtunin nýtt í margvísleg verk-
efhi Manngildissjóðs í samræmi við ákvarð-
anir sviða hveiju sinni.
Meðal mikilvægra verkefha á þessu ári sem
sjálfstæðismenn í bæjarstjóm telja brýnt að
fýlgja eftir í gegnum Manngildissjóð er öflugt
starf grunnskóla og leikskóla, s.s. lestrar-
menningarverkefni, heilsdagsskóli, átaks-
verkefni í einstaka námsgreinum og að brúa
bilið á milli skólastiga. Einnig ber að leggja
áherslu á þjálfun yngstu aldurshópa í íþrótt-
um og styðja við aukna fagmennsku í starfi
tómstunda- og íþróttafélaga. Þá gefur Mann-
gildissjóður ný tækifæri til stuðnings rann-
sóknarvinnu í félags- fjölskyldu- og forvam-
armálum.
Fjármunum vegna breytinga á eignarformi
fasteigna Reykjanesbæjar er að stærstum
hluta varið til niðurgreiðslu lána. Nú er unnið
að þvf að greiða niður 1500 milljónir króna af
langtímalánum, 455 milljónir kr. af skamm-
tímalánum.
Böðvar Jónsson, Arni Sigfússon, Björk Guð-
jónsdóttir, Garðar K. Vilhjálmsson og Sigríð-
urJ. Jóhannesdóttir.
6
VÍKURFRÉTTIR Á NETINU www.vf.is LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!