Víkurfréttir - 10.07.2003, Blaðsíða 6
stlittar
FRÉTTIR
Fjörug umræða
um17.júní
-bæjarstjóri baðst
afsökunaráaðekki
hafirigntUjúní
Töluverð umræða
spratt upp á bæjar-
stjórnarfundi í síðustu
viku um að hátíðarhöld
vegna 17. júní hafi verið
færð inn í Reykjaneshöil.
Skiptar skoðanir voru
vegna málsins þar sem sum-
ir vildu að hátíðarhöldin
væru öll í Reykjaneshöll og
aðrir vildu að hluti þeirra
yrði í Skrúðgarðinum og
hluti í höliinni. Meðal
spurninga sem komu fram í
umræðunni var hver hefði
tekið ákvörðun um að há-
tíðarhöldin yrðu færð inn
og upplýsti bæjarstjóri að
ákvörðunin hefði verið hans
í samráði við aðilar eru
komu að skipulagningu há-
tíðarinnar. Bæjarstjóri
sagði að hlustað hafi verið á
veðurfregnir og rætt við
veðurfræðing um veðurútlit
á 17.júní.
„Veðurfræðingurinn sagði að
það yrði úrhellisrigning og
ákvörðunin um að flytja há-
tíðarhöldin í Reykjaneshöllina
var mjög létt fyrir bæjarstjóra
að taka, en jafnframt mjög
röng,” sagði bæjarstjóri með
glettnissvip á fundinum í gær
og bætti við. „Ég biðst vel-
virðingar á því að það hafi
ekki rignt.”
Auglýsingasímmn
421OOOO
MUNDI
Er ekki málið að Árni
bæjarstjóri fái Sigga Storrn
á Stöð 2 til að skipuleggja
17. júní á næsta ári?
Einn pistill að austan
KALLIhíN GAT bara ekki setið á sér. Tvennt sem
hann vill skrifa um: Varnarliðið og breikkun
Reykjanesbrautarinnar.
MIKIÐ AGALEGA er Kall-
inn feginn að Vinstri Grænir
fengu ekki einn einasta þing-
mann kjörinn hér á Suður-
nesjum. Þetta kolvitlausa
græna lið hefði ekki verið
lengi að hrópa að Varnarliðs-
mönnum og stilla sér upp við
vamarhliðið og hrópa: ísland úr Nató - herinn burt!
Sem betur fer þurfum við Suðumesjamenn ekki að
horfa upp á slíkt.
KALLINUM FINNST það skoplegt að sjá nú Jó-
hann Geirdal standa upp og hrópa yfir allt að hann
vilji bjarga málurn. Maðurinn hefttr verið á móti
Varnarliðinu frá upphafi og nú kemur hann sem
prins á hvítum hesti, hrópandi “hér kem ég”! Kall-
inum finnst að hann eigi bara að halda sig við
kennsluna og leyfa öðmm að vinna í þessum mál-
um.
KALLINN TREYSTIR ríkisstjóminni fullkom-
lega til að ná samningum við bandarisk stjómvöld
um áframhaldandi vamarsamstarf. Davíð Oddsson
er besti maðurinn í verkið og Kallinn treystir honum
fiillkomlega í það. Kallinn er þess fullviss að herinn
verði áfram hér á íslandi. Það getur vel verið að ein-
hveijar breytingar verði gerðar, en þær verða ekki
stórvægilegar. Bíðum, sjáum og heyrum hvað
Davið hefitr að segja. Hann kann á Bush!
OG KALLINN hefur fengið það staðfest að ís-
lendingum var ekki boðið upp á völl á þjóðhátíðar-
dag Bandaríkjanna eins og venja hefur verið. Kami-
valhátíðin á vellinum hefur verið fastur liður hjá
mörgum bömum, en engin boð bárust af vellinum
þetta árið um að íslenskum börnum væri boðið.
Kallinn spyr: Er þetta merki um kalda striðið sem
íslensk stjórnvöld eiga í við bandarísk stjórnvöld?
Ja, spyr Kallinn sem ekkert veit!
MIKIÐ VILDI KALLINN að Suðurnesjamenn
ættu eins duglega þingmenn og þá sem em í Norð-
austurkjördæmi. Þeim tekst að gera allt vitiaust í
þjóðfélaginu yfír því að jarðgöngum ffá Siglufirði
til Ólafsfjarðar er frestað um tvö ár. Hvað er að í
þessu þjóðfélagi? Hvað er að gerast? Það hefur tek-
ið mörg ár að fá breikkun Reykjanesbrautarinnar í
gegn, þrátt fyrir að fjöldi manns hafí látist þar í um-
ferðarslysum síðustu áratugi.
OG EKKI NÓG með það! Breikkun brautarinnar
á að taka mörg ár! Gerum eitthvað - mótmælum!
KALLINN ER AFTUR farinn að Kárahnjúkum!
Honum líður vel fyrir austan.
Kallinn á kassanum
kallinn@vf.is
Sumarfréttavakt
ísíma 898 2222
Ábendingarum
skemmtilegt
mannlíf, fréttir
ogannaðallan
sólarhringinn!
Nýjar inn-
réttingar
í verslun
Kaskó
Unnið er að því að setja
upp nýjar innréttingar í
verslun Kaskó í Reykja-
nesbæ, auk þess sem vöruúrval
verður aukið. Að sögn Guðna
Grétarssonar hjá Samkaup
sem er umsjónarmaður breyt-
inganna verður vöruúrval auk-
ið og búðin gerð enn aðgengi-
legri fyrir viðskiptavini. „Það
verður sett upp nýtt kassakerfi
°g ný grænmetisdeild. Verið er
að vinna að uppsetningu á
nýju andyri á versluninni og
með því verður hún mun bjart-
ari.
Þessar breytingar eru liður í end-
urnýjun á Kaskó verslununum
sem Samkaup rekur,” segir
Guðni en reiknað er með að
framkvæmdum verði lokið í
ágúst. Starfsfólk Kaskó vonar að
viðskiptavinir verði fyrir sem
minnstum óþægindum á meðan
framkvæmdum stendur. Verslun
Kaskó verður opin á meðan
framkvæmdum stendur.
Nýtt andyri lítur senn dagsins Ijós í Kaskó versluninni í Reykjanesbæ.
VF-ljósmynd/Jóhannes Kr. Kristjánsson
Hestar í rólegheitum
Þau voru róieg hrossin sem iágu makindalega í garði í útjaðri
Grindavíkur á þriðjudag. Hrossin létu sér fátt um finnast
þó blaðamaður Víkurfrétta spígsporaði á götunni við hlið
þeirra, enda veðrið gott og virtust þau njóta þess að sleikja sólar-
geislana. Annað hrossið velti sér í rólegheitum, svona rétt til að
minna blaðamann á það að hve þeim liði vel, enda nóg að bíta hjá
Þeim- VF-ljósmynd/Jóhannes Kr. Kristjánsson
Bilafilmur
Hvernig væri að láta okkur skella
filmum í bílinn þinn fyrir sumarið?
..það er fallegra
..það er betra
í
Viö minnum á
vefsíöuna okkar
þar sem hægt er
aö panta bílaleigubíl
Erum einnig meö öryggisfilmur í hús
sandblásnar, glærar og litaöar.
Látum skera út nöfn í forstofuglugga
Gerum föst verötilboö.
^ (354) 421 3737
892 9700
Fax: 421 3732
Fitjabakki 1e Reykjanesbær
sacars^sgcarrental.is
www.sgcarrental.is
6
VfKURFRÉTTIRÁ NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DACLEGA!