Víkurfréttir - 10.07.2003, Síða 9
Hluti af smábátahöfninni í Sandgerði.
Smábátahöfnin í
Sandgerði vinsæl
Það eru að jafnaði á milli 60 til 70 smábátar í höfninni í
Sandgerði sem gera þaðan út. Töluvert er af bátum úr
Hafnarfirði sem leggja upp í Sandgerði, en á sumrin eru
einnig bátar af Suðurnesjum sem halda til veiða á Vestfjörðum.
Karl Einarsson starfsmaður Sandgerðishafnar sagði í samtaii við
Víkurfréttir að bátarnir færu niður í 60 á vetrarvertíðinni.
„Það er ágætist líf á höíhinni í kringum smábátana og einnig í kringum
Nesfisksbátana.”
„Ég hef þó á tilfinningunni að breytingar á atvinnulífinu á Suðurnesjum í tengslum við
samdrátt hjá hernum verði ekki eins miklar og margir vilja láta. Ef miðað er við fram-
kvæmdagleði í húsbyggingum eru Sandgerðingar a.m.k. ágætlega bjartsýnir í dag“.
tveimur árum verðum við Sand-
gerðingar að ákveða hvort við
viljum áfram vera sjálfstætt sveit-
arfélag eða sameinast nágrönn-
um okkar hér á Suðumesjum.
Það er margt í umhverfinu sem
kallar á að sveitarfélög sameinist
og við bæjarfulltrúar verðum að
skoða þessi mál gaumgæfilega,
við megum ekki stinga höfðinu i
sandinn og segja að sameining
séu ekki á dagskrá. Viðverðum
að draga ffam kostina og gallana
við sameiningu og
síðan láta bæjarbúa sjálfa ákveða
það hvort Sandgerðisbær eigi að
sameinast öðmm sveitarfélögum.
Ég hef sjálfur ekki gert upp hug
minn varðandi sameiningu, mér
finnst ég þurfa að grafa enn
dýpra í málin til að geta tekið af-
stöðu með eða á móti.
UNGLINGAVINNAN:
Hvað eru margir unglingar að
vinna á vegum Sandgerðisbæj-
ar?
Það er töluverður fjöldi unglinga
sem vinnur hjá Sandgerðisbæ.
Því miður virðist erfiðara fyrir
krakkana að fá sumarvinnu en
oft áður og sem betur fer hefur
bærinn getað tekið þau flest í
vinnu. Ef allt er talið saman eru
það rúmlega 100 ungmenni á
aldrinum 13 til 20 ára sem fá
sumarvinnu í lengri eða skemmri
tíma hjá Sandgerðisbæ.
Nú stjórnar þú þessari vinnu.
Hvernig er að vinna með
krökkunum?
Það er náttúmlega alveg ffábært.
Það er oft í mörg hom að líta og
mikið um að vera, en ég er með
ffábært starfsfólk sem sér til þess
að allt gangi upp. Unglingar eru
ótrúlega skemmtilegir, frjóir og
fjörugir. Það vantar svo sannar-
lega ekki efniviðinn hér í Sand-
gerði.
Hvaða verkefni eru þau helst
að vinna?
Vinnuskólin vinnur mest að
hreinsun og hirðingu bæjarfé-
lagsins. Eldri krakkamir fást við
slátt, málun kantsteina og margt
fleira. Síðan erum við með hóp
af unglingum fæddum 1986 í
mjög skemmtilegu verkefhi sem
heitir Land-Nám og er það unnið
í samvinnu við Gróður fyrir fólk
í landnámi Ingólfs. Krakkamir
em að platna öjám eftir ákveð-
inni aðferðarff æði og verður for-
vitnilegt að sjá árangurinn af
starfi þeirra eftir nokkur ár.
HLJÓMSVEITIN FLUGAN
ýmsum hljómsveitum. Forveri
Flugunnar var Konukvöl sem var
þekkt fyrir einstaklega skemmti-
legar uppákomur. Við sem emm
elstir í hljómsveitinni vomm með
sítt að aftan þegar við byijuðum
að spila á hljóðfæri.
Hvemig tónlist spilið þið?
Það er alltaf erfitt að skilgreina
tónlistina sem maður er að búa
til. Tónlist Flugunnar er líklega
hægt að flokka sem melódískt
rokkskotið popp.
Hvenær fóruð þið að vinna að
þessari plötu sem nú er komin
út?
Upphafið af plötunni var að vet-
urinn 1999-2000 hittumst við
strákamir á kvöldin heima hjá
mér yfir kaffibolla og höfðum
gítarana við höndina. Eftir nokk-
uð mörg svoleiðis kvöld sátum
við uppi með 20-30 ný ffumsam-
in lög sem að vísu vom misjöfh
að gæðum. Það var síðan í febr-
úar 2001 sem við fórum í stúdíó-
ið og tókum upp fyrstu lögin.
Síðan höfhm við tekið nokkrar
vinnuskorpur og góðar pásur á
milli. Síðustu tónamir vom spil-
aðir inn núna í vor og eftir standa
10 lög sem koma út á plötunni
Háaloftinu. Hann Kiddi upp-
tökumaður hefur verið alveg
ótrúlega þolinmóður við okkur.
Það má heldur ekki gleyma því
að elsta plötufyrirtæki landsins,
Geimsteinn, gefur plötuna út.
Er tónlistarferill kannski í
uppsiglingu?
Það er ekkert skemmtilegra en að
skapa góða tónlist og ég get ekki
ímyndað mér lífið án gítarsins.
Hins vegar er ég líklega ekki til-
búinn til að færa þær fómir sem
þarf til að vera atvinnutónlistar-
maður á Islandi. Það er samt
aldrei að vita.
Við munum halda útgáfutónleika
í haust. Sá sem trommar hvað
mest á plötunni heitir Villi og er
mikill snillingur með kjuðana.
Því miður fyrir Fluguna er hann
staddur í svaðilfor í ffumskógum
Suður-Ameríku í sumar, en
sleppur vonandi heill heim í
haust til að spila með Flugunni. í
staðinn fyrir tónleika ætlum við
að halda myndarlegt útgáfuteiti
fostudaginn 11. júlí á Mamma
Mía í Sandgerði og vera á ferð-
inni með kassagítarana okkar
fram eftir sumri.
Hvað ertu búinn að vera lengi í
hljómsveitinni Flugunni?
Við emm fjórir í Flugunni og
höfum starfað saman í þessari
mynd síðan 1999. Það erþó mun
lengra síðan við fórum að bralla
eitthvað saman á tónlistarsviðinu
og erum búnir að starfa saman í
Fótboltaþjálfun alla daga íSandgerði
Það er svo sannarlega mikið að gerast í fótboltanum í Sandgerði um þessar mundir en á hverjum degi standa yfir æfingar hjá krökkum á aldrinum 4 til 14 ára. Elvar Grét-
arsson þjálfari segir að krakkarnir séu ánægð með æfingarnar og að margar upprennandi fótboltastjörnur séu í hópnum. “Krakkarnir eru að fá nóg af fótbolta og eru
mjög ánægð með þetta. Hópurinn héðan tók þátt í Borgarnesmótinu í fótbolta fyrir stuttu og kom heim með fjóra bikara,” sagði Elvar.
VÍKURFRÉTTIR I 28. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGURINN10.JÚLÍ 2003 I9