Víkurfréttir - 17.07.2003, Blaðsíða 2
Garðaúðunin SPRETTUR ehf.
c/o sturlangur Ólafsson
Úða gegn roðamaur og óþrifum
á plöntum. Eyði illgresi úr gras-
flötum. Eyði gróðri úrstéttum og
innkeyrslum. teiðandi þjónusta.
Upplýsingar í símum 421 1199,
821 4454 og 820 2905
UÐA SAMDÆGURS EF OSKAÐ ER...OG EF VEÐUR LEYFIR
Hafnargötu 7b, Grindavík • Sími 426 9888
Auglýsingasímínn er 4210000
SAMBMO
KEFLAVÍK 'Cf 421 1170
Ferskasla blaöið á Suðurnesjum í sumar!
Víkurfréttaljósmynd: Hilmar Bragi Bárðarson
Her- og flugminjasafn í Rockville?
Hcr- og flugminjasafn
verður sett upp í
Rockville á Miðnesheiði
ef hugmyndir áhugamanna um
slíkt verkefni ná fram að
ganga. Hjálmar Árnason al-
þingismaður sagði í samtali við
Víkurfréttir að hugmyndir um
slíkt safn í Rockville væri að-
eins eitt af þeim verkefnum
sem verið væri að skoða varð-
andi uppbyggingu á svæðinu.
„Þessi áhugahópur um upp-
byggingu her- og flugminja-
safns hér á Suðumesjum hefur
hist reglulega í nokkur ár og
meðal annars fékk hópurinn
úthlutun á ljárlögum til undir-
búnings verkinu. Hugmyndin
gengur út á að koma þarna
upp sögulegu safni sem tengist
her- og flugmálum á Islandi.”
Hjálmar segir að ýmis fyrirtæki
og félög í flugiðnaðinum hafi
þegar líst yfir áhuga á samstarfi
um verkefnið, auk Varnarliðsins.
Hlaðnir seðlum og
pöntuðu glæsimáltíð
Nokkuð hefur borið á ný-
ríkum rússum í Leifs-
stöð síðustu misseri. Síð-
ast á mánudag höfðu viðkomu
í flugstöðinni rússneskir auð-
kýfingar sem höfðu sérstakan
smekk. Ekkert boðlegt var að
finna á matseðli flugstöðvar-
innar og því var sent eftir veit-
ingum frá þekktu veitingahúsi í
Reykjavík. Var leigubíll sendur
úr höfuðborginni með humar
og sérstakt og sérvalið hvítvín.
Að sögn heimildarmanns í
flugstöðinni ráku margir upp
stór augu þegar kom að því að
greiða fyrir veitingarnar, því
rússarnir höfðu meðferðis
skjalatösku af stærri gerðinni
sem var hlaðin „grænum og
ilmandi” dollurum, eins og
hann orðaði það og þeir fóru
ekkert með það í felur að task-
an væri full af seðlum. Rúss-
arnir munu hafa yfirgefið
landið eftir tveggja tima stopp.
Nýverið lenti hér einnig einka-
þota sem varð að millilenda hér
vegna bilunar. Kona sem ferðað-
ist með vélinni hafði hund með
sér á ferðalaginu og stóð til að
hún tæki vél Flugleiða vestur um
haf. Þegar ljóst var að hún mætti
ekki hafa hundinn með sér inni í
Flugleiðavélinni, hringdi hún er-
lendis og lét senda aðra einka-
þotu eftir sér og hundinum. Að-
stoðarfólk hennar fór hins vegar
utan með vél Flugleiða.
Föstudag - sunnudag sýnd kl.: 5.50,8 og 10.15
Mánudag - fimmtudags sýnd kl.: 8 og 10.15
Vordagar hjá Sirrý
Útsala er hafin
Mikil verðlækkun á völdum
vörum kr. 800, kr. 1.200
og kr. 1.300.
30% afsláttur af öðrum vörum
OPIÐ
Mán. - fös.
kl.14-18 og 20-22.
Lau. kl. 14-18.
'Vershmin
Sivrýs
sluttar
FRÉTTIR
Lausaganga fjár
ogfiskúrgangurá
Reykjanesbraut
Ivikunni sem leið kærði
Lögreglan í Keflavík
nokkra ökumenn fyrir
umferðarlagabrot og flest á
Reykjanesbraut þar sem
ökumenn virðast freistast til
að stíga aðeins of fast á
bensíngjöfina. Á mánudag
féll fiskúrgangur af vörubif-
reið sem þurfti að snögg-
hemla að Fitjum og kalla
þurfti út Brunavarnir Suð-
urnesja til hreinsunarstarfa.
Á mánudag var tilkynnt um
lausagöngu búíjár við Voga-
veg og létu Iögreglumenn
starfsfólk Vatnsleysustrand-
arhrepps vita af rollunum.
Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 • Afgreiðsla, ritstjórn og auglýsingar: Grundarvegi 23,260 Njarðvík, Sími 421 0000 (15 línur) Fax 421 0020
Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími 4210007, pket@vf.is • Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is • Blaðamenn: Jóhannes Kr.
Kristjánsson, sími 421 0004, johannes@vf.is, Sævar Sævarsson, sími 421 0003, saevar@vf.is • Sölu- og markaðsstjóri: Jónas Franz Sigurjónsson, sími
421 0001, jonas@vf.is • Auglýsingadeild: Kristín Gyða Njálsdóttir, sími 421 0008, kristin@vf.is, Jófríður Leifsdóttir, sími 421 0009, jofridur@vf.is • Útlit,
umbrot og prentvistun: Víkurfréttir ehf. • Prentvinnsla: Prentsmiðjan Oddi hf. • Dagleg stafræn útgáfa: www.vf.is og vikurfrettir.is
2
VfKURFRÉTTIRÁ NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!