Víkurfréttir


Víkurfréttir - 17.07.2003, Blaðsíða 10

Víkurfréttir - 17.07.2003, Blaðsíða 10
4myÍͧ.3.WJJ.íjjjJj}± Keflvískt þjóðhátíðarlag Gunnar Ingi Guð- mundsson samdi þjóð- hátíðarlagVest- mannaeyja fyrir árið 2003 og skipar sér þar með á bekk með ýmsum þjóðþekktum cinstaklingum í gegnum tíð- ina. Gunnar Ingi er 24 ára Keflvíkingur og hefur komið að tóniist töluvert lengi, en Gunnar var í hljómsveitinni Topaz sem var starfandi frá 1999 til 2002. Vinur Gunnars, Eliert Rúnarsson úr Keflavík sem starfar sem margmiðl- unarfræðingur í Danmörku samdi texta fagsins sem heitir „Draumur um þjóðhátíð”. Gunnar Ingi segir að hann hafi rekist á auglýsingu í Morgunblaðinu þar sem aug- lýst var eftir lögum í sam- keppni um Þjóðhátíðariag Vestmannaeyja. í kjölfarið settist Gunnar niður og samdi lagið. „Þegar ég var búinn að semja lagið hafði ég samband við Ellert í Dan- mörku og spilaði lagið fyrir harrn í gegnum síma. Ellert hefúr stúdíó aðstöðu þama úti og hann fór í að skrifa texta og taka lagið upp. Hann sendi síð- an lagið í keppnina.” Lagið sigraði keppnina, en 12 manna dómnefhd valdi úr inn- sendum lögum sem vom alls 23 talsins. Gunnar segir að þeir hafi vitað að þeir væm með nokkuð sterkt lag og vom nokkuð sigurvissir. „Það var haft samband við mig og mér tilkynnt að lagið hefði unnið. Eg var að sjálfsögðu mjög ánægður með sigurinn,” segir Gunnar. Lagið „Draumur um þjóðhá- tíð” hljómar nú á öldum ljós- vakans og er mikið spilað. Lag- ið er flutt af Skítamóral og seg- ir Gunnar að hann sé ánægður með útkomuna. „Eg útsetti lag- ið sjálfur og er mjög ánægður.” Gunnar segir að stefhan sé tek- in í áffamhaldandi rafbassanám í tónlistarskóla FÍH. „Ég hef mikinn áhuga á því að koma að tónsmíðum í framtíðinni og set stefhuna þangað,” segir Gunn- ar, en hann semur talsvert af lögum og segist eiga 30 lög á lager. Aðspurður hvort Gunnar ætli á þjóðhátíð segist hann ekki komast. „Hvorki ég né Ellert komumst á þjóðhátíð, enda er nóg fyrir mig að heyra lagið í útvarpinu,” segir Gunnar að lokum. Skemmtiieg viðbót við heilsuiindina Bláa lónið hefur verið tekin í notkun. Viðbótin felst í fossi, eimbaði, gufubaði og sérhönn- uðu svæði fyrir nudd- og líkamsmeðferðir og hafa viðbæturnar hlotið góðar viðtökur mcðal gesta heiisuiindarinnar. Tveggja metra hár foss sem í rennur Bláa lóns vatn setur skemmtilegan svip á svæðið. Gestir geta staðið undir fossinum og upplifað end- umærandi vatnsnudd. Samspil hrauns, kísils og lóns myndar heillandi umgjörð um eimbaðið enda minna veggimir á kísil og blátt lónið rennur inn í það. Gufa eimbaðsins er sölt og fyrir vikið verður öndun léttari inni í eimbaðinu. Auðvelt er að njóta útsýnis yfir lónið úr gufubaði en framhlið þess er að mestu leyti úr gleri. Þá geta gestir kælt sig með því að ganga í gegnum léttan vatnsúða. Að bera á sig hvítan kísil er fyrir marga ómissandi hluti af heimsókn í Bláa lónið. Kislinum hefur verið komið fyrir í sérhönnuðum trékössum sem staðsétt- ir eru við lónið og hefur aðgengi að kíslinum því verið auðveldað. Sigríður Sigþórsdóttir, VA Arkitektum ehf, er aðal- hönnuður aðstöðunnar, en hún er einnig aðalhönn- uður heilsulindarinnar. Skemmtileg viðbót við heilsulindina Bláa lónið hefur verið tekin í notkun. Viðbótin felst í fossi, eimbaði, gufubaði og sérhönnuðu svæði fyrir nudd- og líkamsmeðferðir og hafa viðbæturnar hlotið góðar viðtökur meðal gesta heilsulindarinnar. Þessir drengir tóku þátt í Búnaðarbanka/Lotto-móti 7. flokks karla 11.-13. júli á Akranesi. Þeir unnu til verðlauna og voru félaginu í alla staði til sóma. Bestu þakkir til allra þeirra sem studdu okkur en m.a voru það SPKEF, Nesprýði, Toyota-salurinn, Hertz ofl. Foreldraráð 7.flokks Keflavíkur. 10 VÍKURFRÉTTIRÁ NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.