Víkurfréttir


Víkurfréttir - 17.07.2003, Blaðsíða 15

Víkurfréttir - 17.07.2003, Blaðsíða 15
84 lög bárust í Sönglaga- keppni Ljósanætur 2003 Alls bárust 84 lög í söng- lagasamkeppni Reykja- nesbæjar - Ljósanótt 2003 en á fimmtudaginn var skrifað undir samning um framkvæmd kcppninnar sem verður í höndum Stefáns Hjör- leifssonar og Jóns Ólafssonar líkt og síðasta ár. Dómnefed hefer nú valið tíu bestu lögin sem síðan verða út- sett og komið á geisladisk en hana skipa Stefán Hjörleifsson, Jón Ólafsson, Guðbrandur Ein- arsson, Baldur Guðmundsson, Valgerður Guðmundsdóttir, Iris Jónsdóttir, Ámi Hinrik Hjartar- son og Ragnar Öm Pétursson. Ljósanæturdiskinum verður dreift fyrir lokakvöldið sem hald- ið verður í Stapa fostudaginn 5. september og gefst fólki því kostur á að meta lögin og taka svo þátt í aðalkosningunni sem verður þá um kvöldið. Ný dómneftd verður skipuð fyrir úrslitakvöldið. Fyrstu verðlaun fyrir Ljósanætur- lagið eru kr. 400.000,2. verðlaun kr. 150.000 og 3. verðlaun kr. 100.000. Nánari upplýsingar um Ljósanæturlagið verða á www.ljosanott.is og tonlist.is. 0MOVE • HYDRA-MOVE • Wimhl CREME Di íor DÍOr kynning Komdu ÍApótek Keflavíkur föstudaginn 18. júlíkl. 13.00-18.00. Kynnum ný andlitskrem, sólvörur og flotta sumarliti. Dior ráðgjafi á staðnum! Glæsilegur kaupauki fylgir ef verslað er fyrir kr. 3.900,- og yfir. VLyf&heilsa A P Ó T E K Hemmi og Maggi umhverfis jörðina: www.vf.is/heimsreisa REYKJANESBÆR Tjarnargötu 12 • Póstfang 230 • S: 421 6700 * Fax: 421 4667 * reykjanesbaer@reykjanesbaer.is REYKJANESBÆR AUGLÝSIR FJÖGUR NÝ STÖRF LAUS TIL UMSÓKNAR UMSJÓNARMENN FRÍSTUNDASKÓLA/HEILSDAGSSKÓLA Reykjanesbær mun hefja rekstur Frístundaskóla fyrir börn í 1.-4. bekk, í öllum fjórum grunnskólum bæjarins í haust. Verkefnið er unnið samkvæmt markmiðum Reykjanesbæjar um heilsdagsskóla þar sem grunnskólabörnum skulu bjóðast fjölþætt áhugaverð verkefni, fþróttir og frístundastarf í kjölfar hefðbundins skóladags. Markmíðið er að sem flest börn hafi lokið starfsdegi sínum á sama tíma og hefðbundnum vinnudegi foreldra lýkur. Frístundaskólinn mun því bjóða fjölbreytt starf, á sviði fræðslu, lista og íþrótta til kl. 17 á daginn, auk þess að veita börnum athvarf sem þess óska, þegar hefðbundnum skóladegi 6-9 ára barna iýkur. Fyrirhugað er að Frístundaskólinn taki til starfa þann 15. september nk. Menningar- íþrótta og tómstundasvið hefur yfirumsjón með rekstri Frístundaskólans, en daglegur rekstur, faglegt starf og stjórnun starfsmanna er í höndum umsjónarmanns. Verkefnið verður unnið í góðu samráði við skólastjórnendur og Fræðsluskrifstofu. Um er að ræða fjórar heilar stöður umsjónarmanna, eina í hverjum grunnskóla, og tilheyra um 40% starfsins umsjón og undirbúningi verkefna og 60% beinu leiðbeinendastarfi í tómstundaskólanum, t.d. í íþróttum, fræðslu eða listum. Umsjónarmenn skulu hafa uppeldismenntun eða menntun á sviði tómstundamála og/eða fjölbreytta reynslu af starfi með börnum. Flugmyndaauðgi, stjórnunar- og skipulagshæfileiki, metnaður og samskiptahæfni eru lykilþættir til árangurs í þessum störfum auk áhuga á að efla þjónustu Reykjanesbæjar við bæjarbúa á þessu sviði. Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf 1. ágúst nk. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags Suðurnesja eða viðkomandi stéttarfélags og Launanefndar sveitarfélaga. Umsóknir skulu berast starfsmannaþjónustu Reykjanesbæjar, Tjarnargötu 12, 230 Reykjanesbæ, fyrir 30. júlí nk. merktar ,,Frístundaskóli."Einnig er hægt að senda inn rafrænar umsóknir á vef Reykjanesbæjar, reykjanesbaer.is. Nánari upplýsingar veita Ragnar Örn Pétursson forvarnar-og æskulýðsfulltrúi í síma 421 6752 og Helga Jóhanna Oddsdóttir starfsþróunarstjóri í síma 421 6700. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað eftir að ráðið hefur verið í stöðurnar. Starfsþróunarstjóri inningar-, íþrótta- og tómstundasvið reykjanesbaer. is VÍKURFRÉTTIR I 29. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGURINN17. JÚLi 2003 115

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.