Víkurfréttir - 17.07.2003, Blaðsíða 13
Áhugaverður fundur um Hafnargötuna:
Mikill áhugi á frekara
átaki við götuna!
- víðtæk miðbæjarsamtök að verða til
Undirbúningsfundur fyrir
stofnun miðbæjarsam-
taka í Reykjanesbse var
haldinn á mánudagskvöld.
Fundurinn, sem fór fram á
Ránni, var vel sóttur og áhuga-
verður. Árni Sigfússon, bæjar-
stjóri, kynnti yfirstandandi
umhverfisframkvæmdir fyrir
fundarmönnum. Lokið verður
við endurbyggingu Hafnargöt-
unnar frá DIJUS húsum og
upp að Faxabraut fyrir Ijósa-
nótt á næsta ári en í ár verður
lokið við götuna frá DUUS
húsum og að Tjarnargötu að
gatnamótunum þar meðtöld-
um.
Rúnar Hannah fór fyrir hópi
kaupmanna sem eru í undirbún-
ingsnefnd þess sem menn kalla í
dag miðbæjarsamtök en félags-
skapurinn er í mótun en fram eru
komnar hugmyndir um að sam-
Ólafur Halldórsson, grafískur hönnuður, kastaði fram hugmynd um
skrautleg og litskrúðug torg. Þau fengu góðan hljómgrunn.
tökin verði fyrir verslun og þjón-
ustu frá Fitjum og að Gróf. Á
Fitjum hefur verið mikil upp-
bygging í þjónustu og þar er fyr-
irhugað að reisa sýningarskála
fyrir Islending en það er vilji
bæjaryfirvalda að Hafnargatan
og Njarðarbrautin séu hugsaðar
sem ein þjónustulína og aðilar í
verslun og þjónustu á þessu
svæði hafi gott samráð.
Miklar umræður urðu um það
hvemig aðilar í verslun og þjón-
ustu myndu taka á málum eins og
málningarvinnu og annarri snyrt-
ingu í kjölfar umhverfisátaks
bæjarins. Málarar og annað fag-
fólk, s.s. arkitektar, vom skipaðir
í nefnd á fundinum til að vinna
að tillögum um samræmt litaval
fyrir byggingar við götuna.
Einnig vom fundarmenn beðnir
um afstöðu til lita á ljósakúplum
á nýjum ljósastaumm við götuna.
Fram komu skemmtilegar hug-
myndir um að skapa listaverk í
götuna með mislitum hellum og
vísað til mynda úr bók frá
Barcelona á Spáni. Þá var sagt
frá hugmynd um bæjarlæk við
Hafhargötuna, kastað fram hug-
myndum um skúlptúra og sam-
ræmdara merkingar á verslanir
og þjónustufyrirtæki.
Áhugahópurinn um miðbæjar-
samtökin kemur saman á mánu-
dagskvöldum á Ránni kl. 20 og
eru allir áhugamenn um málefhi
Hafnargötunnar og næsta ná-
grennis velkomnir. Formlegur
stofnfundur verður síðan 18.
ágúst. Hann verður kynntur nán-
ar síðar.
Efnalaug Suðurnesja
Iðavellir llb • 230 Keflavík • Sími 4211584
Móttaka verður áfram að
Hafnargötu 55b um
að Iðavöllum llb
(beint á móti Dósaseli)
ViKURFRÉTTIR I 29. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGURINN17.JÚLÍ 2003 113