Víkurfréttir


Víkurfréttir - 17.07.2003, Page 4

Víkurfréttir - 17.07.2003, Page 4
stuttar FRÉTTIR Vopnaðirverðir gæta Rockville Sett hefur verið upp skilli á hliðið við Rockville þar sem meðferðarheimilið Byrgið var áður þar sem fram kemur að vopnaðir verðir gæti svæðisins. A skiltinu stendur: „Þetta er samningssvæði Norður-Atlantshafsbanda- lagsins NATO. Þess er gætt af vopnuðum vörðum. Ovið- komandi stranglega bannaður aðgangur.” Skiltið er nokkuð komið til aldurs síns og við hliðið er enga vopnaða verði að sjá. Rólegir dagar og næturhjá lögreglu Nætur síðustu helgi hafa verið mjög ró- legar hjá Lögregl- unni í Keflavík og sagði varðstjóri hjá lögreglunni að honum hefði brugðið þegar síminn hringdi er Víkurfréttir leituðu frétta um atburði aðfaranætur sunnudags, því síminn hefði verið hljóður mjög lengi. Um klukkan 6 á sunnu- dagsmorgun var einn öku- maður stöðvaður fyrir utan veitingastað í Reykjanesbæ og er hann grunaður um ölvun við akstur. Fcrskasta hlaðið á Suðurnesjum í suniar! Undirbúningur Ljósanætur ífullum gangi Undirbúningur Ljósanæt- ur, scm fram fer dagana 3.-6. september, er í full- um gangi að sögn Steinþórs Jónssonar formanns undir- búningsnefndar. Nú er m.a. frestur útrunninn til að skila inn lögum í Ljósalagskeppnina og verið er að ganga frá stað- festingu á helstu viðburðum hátíðarinnar. Alls bárust 84 lög í Ljósa- lagskeppnina og er Steinþór ánægður með afraksturinn. „Eg er bæði ánægður með þann fjölda laga sem barst inn og hve mörg þeirra eru mjög góð. Við berum því miklar væntingar til lagsins í ár og munum gera allt í okkar valdi til að þessi tónlistar- uppákoma takist sem best en nú er sérstök ástæða til að gera tón- listinni hátt undir höfði því í ár verða Hljómar 40 ára eins og all- ir vita.” Sérstök Ljósalagsnefnd hefur verið skipuð sem er í nánu samstarfi við undirbúningsnefnd- ina. Að sögn Steinþórs er tölu- verð vinna í kringum þennan við- burð í ár enda hefúr sú breyting orðið á að nefndin sér um aðal- umgjörð keppninnar í stað þess að fá einn framkvæmdaaðila til þess eins og gert var í fyrra. Nefndin mun velja 10 lög úr þeim sem send voru inn og verða þau gefin út á geisladisk 20. ágúst. Fólk getur keypt diskinn og byrjað að hita upp en lagið verður valið með viðhöfh laugar- dagskvöldið 5. september á stórdansleik í Stapanum og þar geta gestir tekið þátt í að velja lagið. Hvað varðar annan undirbúning þá segir Steinþór að verið sé að leita eftir menningar- og íþrótta- viðburðum þessa daga og er þeg- ar komin einhver mynd á dag- skránna. „M.a. er áætluð hnefa- leikakeppni á fyrsta degi hátíðar- innar, þ._e. fimmtudeginum, í Stapa. A föstudagskvöldinu verður svo áður nefndur stórdansleikur í Stapa með mat og öllu tilheyrandi. Hápunkturinn verður svo að sjálfsögðu á laug- ardeginum 6. september eins og fyrri ár en á sunnudeginum munu svo Keflavík og Njarðvík keppa sín á milli i knattspymu í fyrstu deildinni og ætlunin er að byggja upp stemningu í kringum þennan leik með Ljósanætur yfirbragði.” Steinþór segir að á hátíðinni muni allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi og hvetur bæjarbúa til að koma með ferkari hug- myndir um viðburði. Vefur Ljósanætur hefúr verið uppfærð- ur og þar er hægt að koma hug- myndum á framfæri auk þess sem að spjallþráður verður opn- aður á síðunni í næstu viku. 1 gegnum árin hafa einhvers kon- ar framkvæmdir alltaf tengst há- tíðinni og í þetta sinn mun efri hluti nýrrar Hafnargötu meðal annars vera tekinn í notkun á Ljósanótt. „Þá höfúm við sagt í gríni að uppfyllingin í Keflavík- inni sé fyrst og fremst gerð til að anna mannfjöldanum á hátíðinni og sé því dýrasta svið sem gert hefur verið fyrir hátíð sem þessa!” segir Steinþór. „I dag erum við m.a. að leita eft- ir styrkjum ffá fyrirtækjum bæði með framlögum og með uppá- komum í sínu fyrirtæki og vil ég hvetja fyrirtæki til að koma með hugmyndir um viðburði hjá sér sem allra fyrst til ljósanefhdar,” segir Steinþór að lokum. Hægt er að nálgast allar upplýs- ingar um hátíðina á heimasíðu hennar. Slóðin er www.ljosa- nott.is. Alltaf glæsileg tilboð á www.samhaefni.is Efnalaug Suðurnesja flytur á Iðavelli Efnalaug Suðurnesja er þessa dagana að flytja starfsemi sína frá Hafn- argötu 55 að Iðavöllum 11. Þar hefur Þvottahúsið Borg verið til húsa en nú verða bæði efna- laugin og þvottahúsið á sama stað. Afgreiðsla efnalaugarinn- ar verður þó eitthvað áfram á Hafnargötunni. Að sögn Brynju, eiganda beggja fyrirtækjanna, er ástæðan fyrst og fremst hagræði. „Nú verður þvottahúsið og efnalaugin á sama stað þannig að nú getur fólk mætt með það sem það vill þvo og hreinsa þangað, sama hvora þjónustuna það vill þiggja,” segir hún. Brynja segir að afgreiðslan verði smátt og smátt flutt yfir að Iða- völlum á næstu dögum. Efnalaug Suðurnesja er að flytja á Iðavellina í Keflavík. Víkurfréttaljósmynd: Hallgrímur Indriðason 4 VfKURFRÉTTIRÁ NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.