Víkurfréttir


Víkurfréttir - 17.07.2003, Blaðsíða 8

Víkurfréttir - 17.07.2003, Blaðsíða 8
Fyrirtæki til sölu Til sölu lítið en gott og rótgróið þjónustufyrirtæki í Keflavík. Þægilegur og öruggur rekstur sem stendur fyrir 1 starfsmann, gæti einnig fallið vel saman við annan rekstur. Góður tækjabúnaður og glæsileg aðstaða. Mikil tækifæri fyrir markaðshugsandi og þjónustuglaða einstaklinga með góða tölvukunnáttu. Rekstur til leígu Rekstur veitingahússins Vör í Grindavík er laus frá og með I. ágúst 2003. Um er að ræða allan veitingarekstur í húsinu, sem er í fullum rekstri í dag og er vel tækjum búið. Veítingasalur fyrir 120-1 50 manns. Upplýsingar á skrifstofu Sjómanna vélstjórafélagsins í Grindavík eða í síma 426 8400. A meðfylgjandi mynd eru (f.v.): Geirmundur Kristinsson, sparisjóðsstjóri, Guðný Húnbogadóttirfyrir Gunnhildi Þórðardóttur, Lovísa Gunnarsdóttirfyrir Jónínu Helgu Hermannsdóttur, Margrét Aðalsteinsdóttir, Kristján Guðmundsson og Baldur Guðmundsson, markaðsstjóri. Námsstyrkir Námsmannaþjónustu Sparisjóðsins í Arlegum námsstyrkjum í Námsmannaþjón- ustu Sparisjóðsins í Keflavík hefur verið úthlutaö. Eftirtaldir námsmenn fengu styrk að upphæð kr. 125.000 í ár: Gunnhildur Þórðardóttir en hún lauk B.A. gráðu í listfræði frá Listháskólanum í Cambridge, Jónína Helga Hermannsdóttir, sem lauk Kandídatsprófi í Afbrotafræði frá Háskólanum í Osló, Kristján Guð- mundsson sem útskrifaðist með B.S. gráðu í véla- og iðnaðarverkfræði frá Háskóla Islands og Margrét Aðalsteinsdóttir en hún útskrifaðist með B.S. gráðu í umhverfis- og byggingarverkfræði frá Háskóla Is- lands. Dómnefndin sem sá um valið á styrkþegum er skip- uð eftirtöldum aðilum: Ólafur Ambjömsson, skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurnesja, formaður dómnefndar, Skúli Thorodd- Keflavík veittir sen, forstöðumaður Miðstöðvar símenntunar á Suð- urnesjum og Aðalheiður Héðinsdóttir, fram- kvæmdastjóri Kaffitárs. I gegnum tíðina hefur Sparisjóðurinn í Keflavík stutt við bakið á námsfólki frá Suðumesjum með ýmsum hætti og eru styrkveitingarnar hluti af Námsmannaþjónustu Sparisjóðsins. Hjá Spari- sjóðnum stendur námsmönnum til boða margvisleg fjármálaþjónusta og má þar m.a. nefna hagstæð lán til námsmanna vegna tölvukaupa og bókastyrki sem úthlutaðir eru til 25 námsmanna í byrjun hverr- ar skólaannar. Sparisjóðurinn í Keflavík hefur ætíð styrkt íþrótta- og menningarstarf á starfssvæði sínu og em náms- styrkimir mikilvægur hluti af því starfi. Námsstyrk- ir liafa nú verið veittir þrettán ár í röð og hafa sam- tals 49 námsmenn fengið styrki. Vikurtréttaljösmynd:Johannes Kr. Kristjánsson Á myndinni má sjá hóp vinnuskólakrakka sem voru að vinnu við Hringbrautina í Keflavík. Hressir krakkar í unglingavinnunni Sumarið er svo sannarlega tíminn þegar íbúar hinna ýmsu bæjarfélaga verða varir við unglinga skreyta garða, sópa götur, þökuleggja og dytta að ýmsu til að fegra bæjarfélagið. I Reykjanesbæ eru nú um 420 unglingar að vinna í Vinnuskóla bæj- arins og að sögn Ragnars Arnar Péturssonar yfirmanns Vinnuskólans hefur starfið gengið vel í sumar. „Helstu framkvæmd- ir sem unnið hefur verið að eru tyrfingar víða um bæjarfélagið, sláttur, rakstur og almenn hverfahreinsun. Við höfum verið heppin með veður frá því við byrjuðum og vonandi verður það ágætt þar til síðasti dagur vinnuskólans verður 8. ágúst,” sagði Ragnar Örn í samtali við Víkurfréttir. 8 VfKURFRÉTTIRÁ NETINU I wmm.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.