Víkurfréttir - 17.07.2003, Side 12
Víkurfrétlaviðtalið
AFREKSFÓLK í SUNDIÚR REYKJANESBÆ
Texti og mynd: Hallgrímur Indriðason
- hinn 36 ára Eðvarð vann ein gullverðlaun á SMÍ
Iþróttabandalag Reykjanesbæjar hafði mikla yfirburði á Sundmeistaramóti ís-
lands utanhúss sem fram fór í Hveragerði um síðustu helgi. Hvorki fleiri né færri en 23 gullverðlaun féllu
ÍRB í skaut en alls var keppt á 38 greinum á mótinu. ÍRB sigraði því í sex af hverjum tíu greinum mótsins og
hlaut auk þess fjölda silfur- og bronsverðlaun eins og sjá má í úrslitadálknum hér til hliðar. Næsta lið á eftir
vann aðeins sex gullverðlaun og er það til marks um yfirburði Suðurnesjaliðsins.
Eðvarð Þór Eðvarðsson annar
þjálfara ÍBR segir að þessir yfir-
burðir séu með því mesta sem
sést hafi á síðustu árum. „Þetta
veit auðvitað á gott fyrir okkur
en vonandi verður það líka til
þess að hin félögin herði sig. Það
er ekkert gaman að vera enda-
laust á toppnum og fá enga sam-
keppni.”
Eðvarð segir krakkana í félaginu
ffamsýna og vita hvert þeir stef-
na sem sé lykilatriði í svona þol-
inmæðisíþrótt. „Stjórnin er líka
að vinna vel á bak við tjöldin
þannig að starfið er mjög gott á
öllum sviðum.”
Þó að sigur hafi unnist í svo
mörgum greinum voru tímarnir
kannski ekki upp á það besta. Iris
Edda Heimisdóttir og Örn Amar-
son voru ekki að taka mikið á,
enda fóru þau strax á mánudags-
morguninn til Spánar þar sem
þau munu keppa um næstu helgi.
Birkir Már Jónsson og Erla Dögg
Haraldsdóttir sáu hins vegar að-
allega um að safna verðlaunum
til síns félags, en þau fengu hvort
um sig fjögur gullverðlaun.
Það er því ljóst að mikill upp-
gangur er í sundinu í IRB. Eð-
varð óskar þess þó að fleiri félög
blandi sér í toppslaginn. ÍRB og
Sundfélag Hafnarfjarðar hafa
verið í nokkram sérflokki síðustu
árin og vonast hann til að fleiri
félög blandi sér í toppslaginn á
næstunni.
Eðvarð í bikarliðið?
Það afrek sem hefur þó vakið
mesta athygli á mótinu, og
kannski skyggt dálítið á árangur
annarra keppenda, er Islands-
meistaratitill Eðvarðs sjálfs í 50
m baksundi. „Eg er bara háður
vatninu, hvort sem maður horfir
ofan i það eða er ofan í því, og
hef alltaf synt 3-4 sinnum í viku
frá því að ég hætti að æfa. Það
þurfti því kannski ekki gríðarlega
viðbót til að þessi árangur kæmi í
ljós.”
Eðvarð keppti síðast í Danmörku
fyrir tveimur árum þegar hann
varð Norðurlandameistari garpa.
„Mér hefur alltaf fundist gríðar-
leg gaman að keppa og vil ekki
missa af því. Ég reyni því alltaf
að keppa reglulega. Það kom mér
hins vegar nokkuð á óvart að ég
skyldi vinna þetta þó að ég hafi
reyndar verið ákveðinn í því þeg-
ar ég lagði af stað. Mér finnst
gaman að vera á toppnum.”
Eðvarð vonar að yngri kynslóðin
líti á þetta sem hvatningu um að
gera betur. „Það hlýtur að vera
hundleiðinlegt að tapa fyrir
svona gömlum manni og ég veit
að ég myndi ganga grátandi í
burtu ef ég myndi tapa fyrir 55
ára gömlum manni. Ég ætla því
að vona að þessi yngri skilji
tugguna því að þeir eru að leggja
meira á sig og eiga að vera undir
það búnir að láta til sín taka þeg-
ar á reynir. Ég vona því að þetta
virki sem jákvæð skilaboð, þ.e.
að þetta sé hægt á þessum aldri
en að það sé algjörlega óþarfi að
hleypa svona gömlum manni
framúr sér!”
Næst hyggst Eðvarð keppa á
Norðurlandsmeistaramóti garpa
sem verður haldið hér á landi í
október. „Ef vel tekst til þar er
vel hugsanlegt að ég reyni að
vinna mér sæti í bikarliði ÍRB,”
segir Eðvarð að lokum og er
greinileg hvergi nærri hættur að
keppa.
„Það hlýtur að vera hundleiðinlegt að tapa fyrir
svona gömlum manni og ég veit að ég myndi
ganga grátandi í burtu ef ég myndi tapa fyrir
55 ára gömlum manni. Ég ætla því að vona að
þessi yngri skilji tugguna því að þeir eru að
leggja meira á sig og eiga að vera undir það
búnir að láta til sín taka þegar á reynir“.
Karlar: 3. Guðlaugur Már Guðmundsson, 1:05.64 200 m skriðsund: 1. Örn Arnarson, 2:04.98 Konur: 100mflugsund: 1. Erla Dögg Haraldsdóttir, 1:06.92
50mbaksund: 50 m baksund:
1. Eðvarð Þór Eðvarðsson, 29.38 200mflugsund: 400 m skriðsund: 1. Erla Dögg Haraldsdóttir, 33.66
3. Birkir Már Jónsson, B0.62 1. Birkir Már Jónsson, 2:21.41 1. Birkir Már Jónsson, 4:32.55 200mflugsund:
3. Hilmar Pétur Sigurðsson, 2:27.78 2. Hilmar Pétur Sigurðsson, 4:34.39 200 m baksund: 2. Erla Dögg Haraldsdóttir, 2:34.26
100 m baksund: 2. Þóra Björg Sigurþórsdóttir,
1. Birkir Már Jónsson, 1:04,05. 200mfjórsund: 1500 m skriðsund: 2:44.78 50 m skriðsund:
2. Birkir Már Jónsson, 2:24.37 1. Hilmar Pétur Sigurðsson, 17:39.15 ISelma Óskarsdóttir, 33.10
200 m baksund: 50 m bringusund:
1. Örn Arnarson, 2:19.85 400 m fjórsund: 4x200 m skriðsund: 1. fris Edda Heimisdóttir, 35.27 4x200 m skriðsund:
1. Hilmir Pétur Sigurðsson, 5:07.36 1. Svert ÍRB, 8:38.83 3. Erla Dögg Haraldsdóttir, 35.79 2. SveitÍRB, 9:56.38
100mbringusund: 2. Guðni Emilsson, 1:14.73 50 m skriðsund: 4x100 m skriðsund: 100 m bringusund: 4x100 m skriðsund:
1. Guðlaugur Már Guðmundsson, 1. Sveit ÍRB, 3:54.46 1. Iris Edda Heimisdóttir, 1:14.91 3. SveitíRB, 4:31.43
200 m bringusund: 25.25
1. Guðni Emilsson, 2:42.85 3. Birkir Már Jónsson, 25.84 4x100 mfjórsund: 200 m bringusund: 4x100 m fjórsund:
ISveitíRB, 4:15.24 1. Erla Dögg Haraldsdóttir, 2:45,58. I.SveitlRB, 4:56.72
50mflugsund: 100 m skriðsund: 2. Helena Osk Ivarsdóttir, 2:50.66.
1. Örn Arnarson, 26.31 1. Örn Arnarson, 52.82 3. Guðlaugur Már Guðmundsson, 50mflugsund:
100mflugsund: 1. Birkir Már Jónsson, 1:00.88 57.18 1. Erla Dögg Haraldsdóttir, 29.84
jn
*o
JU
12
VfKURFRÉTTIRÁ NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DACLEGA!