Fréttablaðið - 20.01.2017, Qupperneq 6
Minnast skírnar Krists með ísbaði
Ungur rússneskur drengur baðaði sig í ísköldu vatni í gær í Kholmy-þorpi í Rússlandi. Meðlimir rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar baða sig með
þessum hætti til þess að minnast skírnar Jesú Krists og á athöfnin að líkja eftir því þegar Jesús var skírður í ánni Jórdan. nordicphotos/Getty
Öryggismál Neyðarlínan er með
sex eftirlitsmyndavélar í geymslu
sem beðið er eftir að verði settar upp
miðsvæðis í Reykjavík. Þetta segir
Þórhallur Ólafsson, forstjóri Neyðar
línunnar, í samtali við Fréttablaðið.
Hann segir að vélarnar verði settar
upp á næstu mánuðum og nú liggi
fyrir tillögur um átta nýja staði.
Samkvæmt sam komu lagi um
rekst ur og viðhald eft ir lits mynda vél a
milli lög reglu stjór ans á höfuðborg ar
svæðinu, Neyðarlín unn ar og Reykja
vík ur borg ar tekur Reykja vík ur borg
að sér að kaupa eftirlitsmynda vél
ar, Neyðarlína sér um upp setn ingu,
viðhald þeirra og flutn ing merk is og
lög regl an sér um enda búnað vegna
viðtöku merk is, vökt un og viðbragð.
Þórhallur segir að það sé lögregl
unnar að ákveða hvar vélarnar átta
verða settar upp og Neyðarlínan
bregðist við því. „Það er verið að fara
yfir stöðuna, hvar fæst leyfi til að setja
upp,“ segir Þórhallur.
Í Fréttablaðinu í gær var sagt að
eftirlitsmyndavélar hafi verið settar
upp árið 1997. Snorri Magnússon,
formaður Landssambands lögreglu
manna, sagði að fjárhagsstaða lög
reglunnar væri slík að hann teldi úti
lokað að vélum hefði verið bætt við
frá þeim tíma eða þær endurnýjaðar.
Þetta kemur ekki heim og saman
við fréttaflutning frá árinu 2012 af
kaupum á nýjum myndavélum á
þeim tíma. Þórhallur segir að í mið
bænum séu núna nítján myndavélar.
Tíu frá árinu 2012 og níu vélar sem
eru tveggja ára gamlar eða yngri. „Og
nú eru uppi hugmyndir um að fjölga
þessu verulega og breyta um aðferða
fræði. Myndavélar af fullkomnustu
gerð kosta ekki mikið. Þessi mynda
vélavæðing í símum hefur alveg gjör
breytt þessu landslagi, þróunin hefur
verið mjög hröð,“ segir hann.
Þórhallur segir aftur á móti að
viðhorf fólks hafi löngum verið nei
kvætt gagnvart eftirlitsmyndavélum
og það hafi gert það erfiðara að koma
myndavélunum fyrir. Viðhorfið sé
hins vegar að breytast. „Það er himinn
og haf á milli þess sem var fyrir fimm
árum og núna,“ segir hann.
jonhakon@frettabladid.is
Gjörbreytt viðhorf
til eftirlitsmyndavéla
Sex myndavélar bíða þess að verða settar upp í miðborg Reykjavíkur. Tortryggni
sem hefur ríkt í samfélaginu gagnvart myndavélum er á undanhaldi. Nítján
myndavélar eru núna í miðbænum. Neyðarlínan segir þær elstu vera frá 2012.
ein af nítján öryggismyndavélum í bænum er framan á center hotels. Beðið er eftir
því að hægt sé að setja fleiri myndavélar upp. FréttaBlaðið/Vilhelm
Þessi myndavéla-
væðing í símum
hefur alveg gjörbreytt þessu
landslagi, þróunin
hefur verið
mjög hröð.
Þórhallur Ólafs-
son, forstjóri
Neyðarlínunnar
INNKÖLLUN HLUTABRÉFA
Stjórn Gámaþjónustunnar hf., kt. 410283-0349, hefur ákveðið að
hlutabréf í félaginu verði tekin til rafrænnar skráningar í kerfi Nasdaq
verðbréfamiðstöðvar hf. Rafræn skráning tekur gildi 30. apríl 2017,
kl. 9:00 árdegis. Frá þeim tíma ógildast hin áþreifanlegu hlutabréf í
félaginu í samræmi ákvæði laga um rafræna eignaskráningu verð-
bréfa.
Öll hlutabréf í félaginu verða tekin til rafrænnar skráningar. Hlutabréfin
eru öll í einum flokki, gefin út á nafn og kennitölu hluthafa.
Við rafræna útgáfu hlutabréfanna er nafnverð hluta ákveðið ein króna
eða margfeldi þar af. Greiði Gámaþjónustan hf. arð á komandi árum
verður það gert í gegnum kerfi Nasdaq verðbréfamiðstöðvar hf.
Hér með er skorað á alla eigendur framangreindra hlutabréfa, sem telja
nokkurn vafa leika á að eignahald þeirra sé réttilega fært í hlutaskrá
Gámaþjónustunnar hf., að staðreyna skráninguna með fyrirspurn til
Bernharðs Hreinssonar, skrifstofustjóra félagsins á skrifstofu félagsins
að Berghellu 1, Hafnarfirði eða með tölvupósti á netfangið bernhard@
gamar.is. Komi í ljós við slíka könnun að eigendaskipti hafi ekki verið
skráð ber eigendum að færa sönnur á þau gagnvart félaginu innan
þriggja mánaða frá síðari birtingu innköllunar þessarar.
Enn fremur er skorað á alla þá sem eiga takmörkuð réttindi til framan-
greindra hlutabréfa, svo sem veðréttindi, að koma þeim á framfæri
við fullgilda reikningsstofnun, sem gert hefur aðildarsamning við
Nasdaq verðbréfamiðstöð hf., innan þriggja mánaða frá síðari birtingu
innköllunar þessarar.
Að lokinni rafrænni skráningu geta hluthafar falið reikningsstofnun
umsjón með eignarhlut sínum í félaginu til að geta framselt hluti sína,
svo sem vegna sölu eða skipta. Hluthafar munu fá sendar tilkynningar
og reikningsyfirlit í samræmi við ákvæði reglugerðar nr. 397/2000.
Hluthöfum félagsins verður send skrifleg tilkynning þar sem framan-
greint er kynnt.
Stjórn Gámaþjónustunnar hf.
Kjaramál „Við erum ekkert sérlega
bjartsýn á að það takist að semja áður
en það kemur til verkfallsaðgerða,“
segir Sturla Óskar Bragason, vara
formaður Flugfreyjufélags Íslands.
Félagar í Flugfreyjufélagi Íslands sam
þykktu á miðvikudag að boða til verk
fallsaðgerða ef ekki takist að semja á
næstum dögum í kjaradeilu flugfreyja
við Flugfélag Íslands. Um 70 prósent
greiddu atkvæði með aðgerðinni en
rúm 25 prósent gegn henni.
Flugfreyjur hjá Flugfélagi Íslands
hafa staðið í kjaradeilu síðan á
gamlárs dag 2015. Í tvígang hafa
samningar náðst en báðir voru felldir
í atkvæðagreiðslu. Flugfreyjur hafa
því verið samningslausar í rúmt ár.
Náist ekki að semja á næstu dögum
mun þriggja daga verkfall hefjast að
morgni laugardagsins 27. janúar.
Þá er gert ráð fyrir ótímabundnu
verkfalli frá morgni sjötta febrúar.
Verkfallið hefur í för með sér að allt
innanlandsflug Flugfélags Íslands
fellur niður ásamt flugi félagsins til
Skotlands og Grænlands.
Samninganefndir Flugfreyjufélags
ins og Flugfélags Íslands munu funda í
dag hjá ríkissáttasemjara. – þh
Verkfall í
háloftunum
Flugfreyjur hjá Flugfélagi Íslands hafa
boðað til verkfallsaðgerða sem hefjast
þann 27. janúar. FréttaBlaðið/GVa
2 0 . j a n ú a r 2 0 1 7 F Ö s T U D a g U r6 F r é T T i r ∙ F r é T T a B l a ð i ð
2
0
-0
1
-2
0
1
7
0
4
:3
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
0
0
-4
4
3
0
1
C
0
0
-4
2
F
4
1
C
0
0
-4
1
B
8
1
C
0
0
-4
0
7
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
8
s
_
1
9
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K