Fréttablaðið - 20.01.2017, Side 10
ÍtalÍa Björgunarfólk telur allt að
þrjátíu og fimm sé saknað á Rigo
pianohótelinu í Abruzzohéraði
Ítalíu. Snjóflóð féll á hótelið í fyrri
nótt og er það talið hafa orsakast af
jarðskjálfta.
Unnið var hörðum höndum að
því að grafa niður að hótelinu en
erfiðar aðstæður hafa torveldað
verkið. Til að mynda eru vegir í
kringum hótelið lokaðir vegna
flóðsins og hefur björgunarfólk
komist að hótelinu meðal annars á
gönguskíðum.
Heimildarmenn BBC úr röðum
björgunarmanna sögðu í gær að
þrír hefðu fundist látnir í snjónum
en tveir á lífi. Flestir séu þó enn
ófundnir. Að sögn heimildarmanns
voru líklega margir látnir á hótelinu
í gær.
Þegar snjóflóðið skall á hótelinu
hrundi þak þess. Talið er að tutt
ugu ferðamenn hið minnsta og sjö
starfsmenn hafi verið inni á hótel
inu þegar þakið hrundi. Hringt var
í hótelið og ferðamenn í gærmorgun
en enginn svaraði í símann.
„Það hafa margir farist,“ sagði
Antonio Crocetta, svæðisstjóri
björgunarsveitarinnar á svæðinu,
við ítölsku fréttastofuna Corriere
della Sera.
Á meðal hótelgesta voru nokkur
börn. Fjölmiðlar á Ítalíu greina frá
því að nokkur eða öll þeirra hafi trú
lega farist í hamförunum.
Annar þeirra sem fundust á lífi,
Giampaolo Parete, sagði í samtali
við fjölmiðla að hann hafi ætlað út
í bíl að sækja eitthvað skömmu áður
en flóðið skall á.
„Ég var á kafi í snjó en náði að
grafa mig upp. Bíllinn var ekki á
kafi og ég beið eftir björgunarfólki,“
sagði Parete við fréttastofu Ansa.
Hann bætti því við að kona hans og
tvö börn væru inni á hótelinu.
Mikið hefur snjóað í Abruzzo og
nærliggjandi héruðum, Marche og
Lazio, undanfarna daga. Einn hefur
fundist látinn í Lazio í vikunni og þá
er annars saknað.
Snjóflóðið og jarðskjálftarnir hafa
valdið því að rafmagnslínur hafa
skemmst víða í héraðinu og eru
mörg þorp í héraðinu án rafmagns.
Tíðir jarðskjálftar hafa riðið yfir
MiðÍtalíu undanfarna mánuði. Í
október reið jarðskjálfti yfir svæðið
en engan sakaði þar sem flestir náðu
að koma sér í skjól. Jarðskjálftinn
mældist 6,6 stig á Richter og var sá
stærsti í 36 ár. Í ágúst síðastliðnum
fórust hins vegar 298 manns í öfl
ugum skjálfta.
thorgnyr@frettabladid.is
Mikið mannfall í skíðaparadís
Snjóflóð féll á Rigopiano-hótelið á Ítalíu. Þrír hafa fundist látinn og tveir á lífi. Allt að þrjátíu og fimm er enn
saknað. BBC greinir frá því að margir á hótelinu kunni að hafa farist í hamförunum í Abruzzo-héraðinu.
Mynd frá slökkviliði sem sýnir hótelið úr lofti. Nordicphotos/AFp
Á meðal hótelgesta voru
nokkur börn. Fjölmiðlar á
Ítalíu greina frá því að
nokkur eða öll þeirra hafi
trúlega farist í hamförunum.
KATLA MANAGER SELECTION
Investment Company with Variable Capital governed by Luxembourg law
9, boulevard Prince Henri, L-1724 Luxembourg
R.C.S. Luxembourg B 72.942
CONVENING NOTICE
The Board of Directors is pleased to convene the shareholders of KATLA MANAGER SELECTION (the “SICAV”)
to attend an extraordinary general meeting to be held at the registered office of the SICAV on 7 February 2017 at
11.30 a.m. (the “Meeting”) with the following agenda:
1. Approve the documents related to the merger of the sub-fund KATLA MANAGER SELECTION – GLOBAL EQUITY
into the sub-fund KATLA FUND – GLOBAL VALUE according to article 1 (20) a) of the law of 17 December 2010
as amended (the “2010 Law”);
2. Fix the effective date of the merger on 15 February 2017, according to the 2010 Law;
3. Declare the dissolution of the SICAV with effect on 15 February 2017 by virtue of the merger by absorption of
the remaining sub-funds of the SICAV.
Shareholders are advised that a quorum of fifty percent of the share capital of the SICAV is required for the
Meeting and that decisions will be taken by a majority of two thirds of the votes cast. Proxies are available free
of charge at the registered office of the SICAV. Shareholders who wish to attend the Meeting must inform the
Board of Directors at least five calendar days prior to the Meeting.
Shareholders may consult the documents of the merger with the registered office of the SICAV.
The Board of Directors
Þýskaland Stjórnlagadómstóll
Þýskalands hefur hafnað því að
banna flokk þýskra þjóðernissinna,
NPD.
Þýsku sambandslöndin fóru fram
á að flokkurinn yrði bannaður þar
sem stefna hans og starfsemi bryti
gegn 21. grein þýsku stjórnarskrár
innar. Samkvæmt þeirri grein má
banna starfsemi stjórnmálaflokka
ef stefna þeirra og starfsemi beinist
gegn lýðræðislegu stjórnskipulagi
Þýskalands.
Stjórnlagadómstóllinn, sem hefur
meðal annars það hlutverk að stað
festa slíkt bann, kvað upp sinn
úrskurð í gærmorgun. Í úrskurð
inum segir að flokkurinn hafi vissu
lega stefnu sem vinni gegn lýð
ræðisskipulagi landsins. Hann vilji
beinlínis kollvarpa núverandi stjórn
skipan til að geta komið í staðinn á
einhvers konar alræði byggðu á þjóð
ernishugmyndum.
Hins vegar sé ekki sjáanlegt að
flokkurinn hafi, í það minnsta ekki
sem stendur, neina möguleika á því
að hrinda þessari andlýðræðisstefnu
sinni í framkvæmd. Þess vegna sé
engin þörf á því að banna flokkinn.
NPD, eða Nationaldemokratische
Partei Deutschlands, hefur starfað
síðan 1964 og var um tíma nokkuð
öflugur en á síðustu árum hefur
kvarnast verulega úr flokknum.
Fylgið hefur í staðinn leitað yfir í
AfDflokkinn sem hefur bæði nærst á
og alið á ótta við flóttafólk og and
stöðu við Evrópusambandið. – gb
Þýski NPD-flokkurinn ekki bannaður
BandarÍkin Donald Trump, forseti
Bandaríkjanna, sver embættiseið
klukkan fimm að íslenskum tíma
í dag. Stuttu áður sver Mike Pence
embættiseið varaforseta.
Athöfnin fer fram á tröppum
þinghússins í Washington, höfuð
borg Bandaríkjanna. Forseti hæsta
réttar, John Roberts, mun setja
Trump og Pence í embætti.
Því næst munu fráfarandi forseta
hjónin, Barack og Michelle Obama,
yfirgefa svæðið í þyrlu. Trump
heldur því næst innsetningarræðu
sína og hlýðir á tónlist. Um kvöldið
verða svo fjölmargar veislur.
Obama, sem hefur gegnt embætt
inu í átta ár, hélt sinn síðasta blaða
mannafund í gær. Þar stiklaði hann
á stóru og óskaði forsetahjónunum
fyrrverandi, George H. W. Bush og
Barböru Bush, skjóts bata en þau
voru lögð inn á spítala í vikunni.
„Ég hef notið þess að vinna með
ykkur. Það þýðir þó ekki að ég hafi
notið hverrar einustu fréttar sem
þið hafið flutt en það er eðli fjöl
miðla. Þið eigið ekki að vera aðdá
endur heldur gagnrýnendur. Þið
eigið að spyrja krefjandi spurninga,“
sagði Obama við blaðamenn.
Aðspurður um framtíð Banda
ríkjanna undir stjórn Trumps sagði
Obama: „Ég held að þetta verði allt
í lagi.“
Rík hefð er fyrir því að fyrrverandi
forsetar skipti sér ekki af verkum
eftirmanna sinna. Obama sagðist
þó tjá sig ef hann teldi grunngildum
Bandaríkjanna ógnað. – þea
Síðasti dagur Baracks Obama í embætti
obama á sínum síðasta blaðamannafundi sem forseti. Nordicphotos/AFp
Abruzzi héraðið
l Í héraðinu búa rúmlega 1,3
milljónir manna.
l Héraðið teygir sig frá Apennína-
fjöllum að Adríahafi.
l Í héraðinu má finna um 75
prósent af þeim lífverum sem
þrífast í Evrópu.
l Syðsta jökul Evrópu, Calderone,
er að finna í héraðinu.
dómsmál Fyrrverandi forstjóri
SPRON og fjórir fyrrverandi stjórn
armenn sparisjóðsins voru sýkn
aðir í Hæstarétti í gær af ákæru um
umboðssvik. Hæstiréttur staðfesti
niðurstöðu héraðsdóms.
Guðmundur Hauksson, fyrr
verandi sparisjóðsstjóri SPRON,
og fyrrverandi stjórnarmennirnir
Ari Bergmann Einarsson, Margrét
Guðmundsdóttir, Ásgeir Baldurs
og Rannveig Rist voru ákærð af sér
stökum saksóknara fyrir að hafa
misnotað umboð sitt með tveggja
milljarða króna lánveitingu til
eignarhaldsfélagsins Exista þann
30. september 2008. Lánið var veitt
daginn eftir að ríkið tilkynnti um
yfirtöku á Glitni og sex dögum áður
en neyðarlögin voru sett.
Saksóknari vildi meina að með
lánveitingunni hefðu fimmmenn
ingarnir farið út fyrir umboð sitt
og stefnt fé sparisjóðsins í veru
lega hættu með því að fara út fyrir
heimildir til lánveitinga. Í ákærunni
var byggt á því að lánið hefði verið
veitt Exista án trygginga og án þess
að lagt væri mat á greiðslugetu og
eignastöðu félagsins í samræmi við
útlánareglur. Taldi saksóknari að
um stórfelld brot væri að ræða.
Hæstiréttur taldi það ósannað af
hálfu ákæruvaldsins að forstjórinn
og stjórnarmenn hefðu misnotað
aðstöðu sína umrætt sinn og þann
ig gerst brotleg. Árshlutauppgjör
Exista fyrir fyrstu sex mánuði ársins
2008 hefði legið fyrir á stjórnarfund
inum þegar lánið var veitt, það verið
rætt þar og niðurstaða þess, sem
hefði sýnt afar sterka eiginfjárstöðu
félagsins með endurfjármögnun
tryggða fram í desember 2009, hefði
verið meginforsenda lánsins. – þh
Hæstiréttur
sýknaði alla
hæstiréttur sýknaði fimmmennn-
ingana af ákærum saksóknara í gær.
FréttAblAðið/GVA
GamBÍa Senegölsk yfirvöld hafa
sent hermenn til Gambíu vegna
valdabaráttu milli Adama Barrow,
sem var svarinn í embætti forseta
Gambíu í síðustu viku, og Yahya
Jammeh, fyrrverandi forseta lands
ins. Jammeh, sem tapaði í kosning
unum, neitar að gefa eftir forseta
stólinn. Hann krefst þess að kosið
verði á nýjan leik.
Leiðtogar vesturafrískra ríkja
hafa hótað því að stigi Jammeh ekki
til hliðar muni ríkin fjarlægja hann
með valdi. Öryggisráð Sameinuðu
þjóðanna styður við aðgerðir
ríkjanna en hvetur til háttvísrar
lausnar. -þh
Senda hermenn
til Gambíu
Fylgið hefur í staðinn
leitað yfir í AfD-flokkinn
sem hefur bæði nærst á og
alið á ótta við flóttafólk
2 0 . j a n ú a r 2 0 1 7 F Ö s t U d a G U r10 F r é t t i r ∙ F r é t t a B l a ð i ð
2
0
-0
1
-2
0
1
7
0
4
:3
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
0
0
-2
B
8
0
1
C
0
0
-2
A
4
4
1
C
0
0
-2
9
0
8
1
C
0
0
-2
7
C
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
8
s
_
1
9
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K