Fréttablaðið - 20.01.2017, Side 40

Fréttablaðið - 20.01.2017, Side 40
Það er ekki að undra að fram komi myndar- legur hópur af fólki úr skemmtana- bransanum til að glæða Þennan við- burð Þeim dýrðarljóma sem mikil- vægasta embætti á jörðinni kallar á. TónlisTarmaður Teitur Magnússon PlaY FOllOW Föstudagsplaylista Lífsins má einnig finna á Spotify undir notandanafninu Vísir.  7 Seconds ft. Neneh Cherry Youssou N’Dour Om Numah Shivaya Apache Indian Heaven The Psychedelic Furs So Good At Being in Trouble Unknown Mortal Orchestra Life as a Wall Jae Tyler Pundið Vilhjálmur Vilhjálmsson Hey Nineteen Steeley Dan Alan Parsons Project Eye in the Sky Pavement Major Leagues lag FlYTjandi föstudags- playlisti Lífsins Teitur, sem er þessa stundina að vinna að nýrri breiðskífu, setti saman þennan fjölbreytta og hressa föstudagslagalista fyrir lesendur Lífsins. Kántríhetjan Toby Keith slær á þjóðernissinnaða strengi á meðan 3 doors down rymja Kryptonite. nOrdic PhOTOs/geTTY staðfestir listamenn Þeir listamenn sem afÞökkuðu Það verður vafalaust mikið um dýrðir þegar næsti forseti Bandaríkjanna, Donald Trump, verður vígður til embættis í dag. Trump hefur, líkt og Ronald Reagan á undan honum, verið viðloðandi skemmtanabrans- ann en hann var með sinn eigin raunveruleikaþátt, The Apprentice, og hefur komið fram í kvikmyndum eins og til dæmis Home Alone 2. Því er ekki að undra að fram komi myndar legur hópur af fólki úr skemmtanabransanum til að gæða viðburðinn þeim dýrðarljóma sem eitt mikil- vægasta embætti á jörðinni kallar á. Nokkrir listamenn kusu að sniðganga viðburðinn, væntanlega vegna þess að þeir studdu Hillary Clinton í barátt- unni um embættið en það ætti nú ekki að koma að sök þó að nokkrir útbrunnir popparar mæti ekki þegar svona einvalalið listamanna hefur þegar boðað komu sína. stefanthor@frettabladid.is stjörnum prýdd vígsluathöfn trumpsDonald Trump verður vígður fer- tugasti og fimmti for- seti Banda- ríkjanna í dag. Há- tíðarhöldin hófust í gær og teygja sig fram á laugar dag. Vígslan verð- ur stjörnum prýdd þó að ekki hafi allir sem boðið var að koma fram þekkst boðið. 3 dOOrs dOWn Hljómsveitin 3 Doors Down var gríðarlega heit í kringum 2003, en frægustu lög sveitarinnar eru Kryptonite og Here Without You sem voru gríðarlega vinsæl á handboltaleikjum á sínum tíma. Þeir eru þó ekki dauðir úr öllum æðum þrátt fyrir að ekki hafi heyrst mikið í þeim síðustu árin en 3 Doors Down gáfu út plötuna Us and the Night í fyrra og er um þessar mundir á tónleikaferða- lagi þar sem sveitin mun, ásamt því að koma fram við vígslu Trumps, spila í nokkr- um spila- vítum í Kanada og á jarðar- berja- hátíð í Flórída. Aðdáendur 3 Doors Down virðast margir hverjir ekkert sérstaklega ánægðir með Trump-giggið, en á Facebook-síðu sveitarinnar eru nokkuð margir sem tjá óánægju sína. TObY KeiTh Aðdáendur Toby Keith eru hins vegar örugglega ekki ósáttir við að goðið þeirra spili við vígsluathöfn Donalds Trump. Kántrísöngvarinn er aðallega þekktur fyrir ákveðnar og íhaldssamar skoðanir en hann á smelli eins og Courtesy of the Red, White, & Blue og Made in America. Hann átti einnig í deilum við Dixie Chicks eftir að þær gagnrýndu George W. Bush. Ásamt kántrí- stjörnunni Toby Keith var það Lee Greenwood sem spilaði fyrir framan Lincoln-minnismerkið í gær til upphitunar fyrir aðalviðburðinn sem verður í kvöld. The PianO guYs YouTube-stjörnurnar í The Piano Guys ætla að koma fram og munu líklega spila á píanó. dj ravidrums Plötusnúðurinn og trommarinn DJ Ravidrums hefur komið víða við á ferlinum en hann var meðal annars plötusnúður þáttarins Howie Do It og keppti í raunveruleikaþættinum Dog Eat Dog, en hann og liðið hans unnu þó ekki keppnina. big & rich Þetta dúó spilar, og þetta kann að koma á óvart, kántrítónlist. Það gæti verið að hér sé eitthvert ákveðið þema eða mynstur. jacKie evanchO Söngkonan Jackie Evancho keppti í America’s Got Talent og hafnaði þar í öðru sæti. Hún hefur svolítið verið í því að koma fram við hinar og þessar athafnir þar sem hún syngur bandaríska þjóðsönginn og því er alls ekki ólíklegt að hún muni gera það við vígsluathöfn Donalds Trump. FranK sinaTra Allt í lagi, Sinatra átti ekki að koma fram, enda löngu látinn. En lag hans My Way verður spilað undir fyrsta dansi forsetans og Ivönku konu hans á Frelsisballinu, sem fer fram við þetta tækifæri. Nancy, dóttir Sinatra, virtist ekki vera sátt við þetta lagaval en aðspurð sagði hún bara: „Munið eftir fyrstu línum lagsins.“ Þess má geta að fyrstu línurnar eru „And now, the end is near“ (lauslega þýtt gæti það einfaldlega útlagst sem „enda- lokin nálgast“). Þess má einnig geta að Michael Flatley dansmeistari mun dansa á ballinu, hvorki meira né minna. celine diOn Söngdívan Celine Dion hafði ekki tíma til að mæta. elTOn jOhn Elton John var boðið því að Trump vildi vera svarinn í embætti og sýna sam- kynhneigðum stuðning um leið. Elton vildi þó ekki vera með en sagði að það væri ekkert per- sónulegt. Hann ýjaði þó að því að það væri vegna þess að hann og Trump væru ekki á sama báti þegar kæmi að pólitískum skoðunum. andrea bOcelli Meistari Bocelli átti að syngja dúett með Jackie Evancho en neitaði eftir að aðdáendur hans gjörsamlega sturluðust. mObY Og Fleiri sem segja þó að þeim haFi verið bOðið Moby sagðist aldrei mundu mæta á svona samkomu, hins vegar er ekki alveg ljóst hvort honum hafi yfirleitt verið boðið að spila á hátíðinni. Rapparinn Ice T tísti um að hafa verið boðið og segist hafa skellt á, menn efast þó um að það hafi gerst í alvörunni. The Dixie Chicks og fleiri voru spurð í viðtali hvort þau myndu samþykkja að spila fyrir Trump en sögðu að það mundi gera út af við ferilinn. KanYe WesT eKKi nógu heFðbundinn Kanye West fær ekki að mæta á athöfnina vegna þess að hún á að vera „hefðbundin og amerísk“. Það mætti halda að það sé verið að gefa eitthvað í skyn… Kanye West 2 0 . j a n ú a r 2 0 1 7 F Ö S T U D a G U r32 L í F i ð ∙ F r É T T a B L a ð i ð Lífið 2 0 -0 1 -2 0 1 7 0 4 :3 6 F B 0 4 8 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C 0 0 -3 0 7 0 1 C 0 0 -2 F 3 4 1 C 0 0 -2 D F 8 1 C 0 0 -2 C B C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 4 8 s _ 1 9 _ 1 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.