Morgunblaðið - 13.07.2016, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 13.07.2016, Qupperneq 6
 Góður árangur í Fljótum  45 kílómetrar af rörum í jörðu Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Góður árangur var af borun eftir heitu vatni við Langhús í Fljótum og skilar ný borhola þar margfalt því sem þörf var á vegna hitaveitu á svæðinu. Indriði Þ. Einarsson, sviðs- stjóri veitu- og framkvæmdasviðs Skagafjarðar, segir að nauðsynlegt hafi verið að afla 4-5 lítra á sekúndu úr þessari holu í viðbót við það sem þegar var til staðar í borholum á svæðinu. Niðurstaðan hafi verið 30- 35 sekúndulítrar af rúmlega 100 gráða heitu vatni og er það sjálfrenn- andi. Kostnaðaráætlun 240 milljónir Hann segir að framkvæmdir við hitaveitulögn í Vestur- og Austur- Fljótum hafi hafist í fyrrasumar og var byrjað í Austur-Fljótum og Stíflu, en ráðgert er að ljúka lögninni á þessu ári. Alls verði lagðar um 45 kílómetrar af rörum í jörðu og lík- lega verði tengingar um 50 talsins í býli, sumarhús og aðra starfsemi. Borverktaki við Langhús var fyrir- tækið VKC ehf. og á næstu dögum verður lagt mat á heildarrennsli og þrýsting úr holunni. Indriði segir að enn sé miðað við upphaflega kostnaðaráætlun upp á 240 milljónir króna, en kostnaður við borun hafi farið eitthvað fram yfir áætlun. Miðað er við skiptingu kostnaðar þannig að Skagafjarðar- veitur beri 102 milljónir, framlag frá ríkinu nemi 36 milljónum og notend- ur greiði 102 milljónir í heimæðar- gjöld. Nú eru 85-90% heimila í Skagafirði hituð upp með jarðhita Ýmsir möguleikar Aðspurður segir Indriði að vissu- lega gefi svo mikið af heitu vatni úr borholunni ýmsa möguleika í at- vinnuuppbyggingu, en hann segir að ekkert slíkt hafi verið rætt. Víða í Fljótum er jarðhiti og rétt við Lang- hús er sundlaug; að Sólgörðum. Íslenskar orkurannsóknir (ÍSOR), voru ráðgjafar Skagafjarðarveitna við verkefnið. Á vef ÍSOR er greint frá fyrri borunum við Langhús, en þetta er fjórða borholan á svæðinu, árangrinum núna og baráttunni við sjóðandi vatnið í lok borunar. Þar segir m.a.: Harðsótt að ná borstrengnum „Skolvatnshiti hækkaði þegar komið var í 140 m dýpi, þá var sjálf- rennsli 5 l á sek. í stuttu stoppi. Ljóst var að ásættanlegur árangur hafði orðið en jafnframt að það yrði að bora dýpra til að ná niður fyrir inn- rennslisæðina og tryggja að hún kafnaði ekki ef holan félli saman. Áfram var borað í 170 m en þá var holan farin að gjósa í borun og ljóst að í óefni var komið því ekki var nægt vatn til kælingar. Harðsótt var að ná borstrengnum upp enda var rennslið upp með stangalengjunni 20-30 l á sek. og vatnið sjóðandi. Strókurinn upp úr holunni var eftir því geysilegur. Ekki var síður frækilegt að setja stýringar á holutoppinn og lempa holuloka niður á flans á holutoppn- um. Það var ekki síður fagmannlega gert í sjóðandi vatnsflaumi og það undir töluverðum þrýstingi. Þetta gerðu veitumenn og borarar saman og stóðu vel að verki.“ Borholan gefur marg- falt það sem þörf var á Við Langhús Krafturinn leynir sér ekki, en á myndinni er holan opin, það er áður en lokanum var komið fyrir. Heita vatnið býður upp á ýmsa möguleika. 6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLÍ 2016 Árni Grétar Finnsson agf@mbl.is Skýrsla starfshóps um skoðun á raf- orkustreng milli Íslands og Evrópu var kynnt í atvinnuvega- og nýsköp- unarráðuneytinu í gær. Fram kom að margvíslegur ávinningur kunni að vera af því að tengja raforkukerfi Íslands og Bretlands saman með sæstreng. Gengið er útfrá því að lagður verði 1.200 kílómetra langur sæstrengur með 1.000 MW aflgetu en til samanburðar má geta þess að afl Kárahnjúkavirkjunar er 690MW. Í tilkynningu frá ráðuneytinu er tekið fram að skýrslunni var skilað fyrir Brexit, þegar meirihluti Breta kaus útgöngu úr Evrópusamband- inu, og þar af leiðandi er engin um- fjöllun um möguleg áhrif Brexit á sæstrengsverkefnið. Óljóst er þó hvaða áhrif útganga Breta úr Evrópusambandinu kann að hafa á orkustefnu Breta og hvort það leiði til þess að Bretar dragi úr áherslum sínum og markmiðum um að auka hlutfall endurnýjanlegra orkugjafa í sínum orkubúskap. Það hefði neikvæð áhrif á verkefnið eins og kemur fram í tilkynningu at- vinnu- og nýsköpunarráðuneytisins. Á hinn bóginn kom einnig fram möguleg óvissa, t.d. hvort Íslend- ingar gætu framleitt raforku til við- bótar í nægjanlegu magni til að standa undir útflutningi í gegnum 1.000 MW sæstreng. Þá er ljóst að ein stærsta hindrunin, sem þarf að komast yfir ef af verkefninu á að verða, er sameiginleg ákvörðun um ásættanlegt viðskiptalíkan og reglu- verk sem gerir verkefnið mögulegt og fengist samþykkt af eftirlits- aðilum. Engin ákvörðun tekin ennþá Starfshópurinn lítur svo á að við- ræður á milli íslenskra og breskra stjórnvalda hafi almennt verið gagn- legar og að ýmislegt hafi skýrst í þeim, en hins vegar var sameigin- legur skilningur til staðar frá upp- hafi hjá báðum aðilum að markmið viðræðnanna væri ekki samninga- viðræður heldur fyrst og fremst gagnkvæm upplýsingaöflun með það að markmiði að vera liður í því að ráðamenn geti tekið upplýsta ákvörðun um næstu skref í málinu. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, þáverandi forsætisráðherra, og David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, ákváðu á fundi sínum hinn 28. október í fyrra að setja á laggirnar vinnuhóp til að kanna mögulega tengingu landanna í gegnum sæstreng og athuga nánar þau efnahagslegu og félagslegu áhrif sem lagning sæstrengs gæti haft í för með sér. Bresk stjórnvöld áhugasöm Í skýrslunni segir m.a. að bresk stjórnvöld hafi almennt til þessa verið áhugasöm um möguleika á sæ- streng milli landanna. Bretar hafa í dag fjórar samteng- ingar við önnur lönd en níu sæ- strengsverkefni, sem þó eru mis- langt komin, eru til skoðunar hjá yfirvöldum. Á fundum starfshópsins útskýrðu Bretar að almennt væru þrjú hefðbundin regluverk og við- skiptalíkön í boði fyrir sæstrengi en það eru markaðslíkan, tekjuþaks- og gólfkerfi, og reglugerðarlíkan. Það síðastnefnda hefur ekki verið notað í Bretlandi en er algengt í Evrópu. Í skýrslunni segir að sam- anburður á regluverki og við- skiptalíkönum fyrir sæstreng sé lykilatriði varðandi könnun á fýsi- leika sæstrengsverkefnis milli Ís- lands og Bretlands og fór því stór hluti viðræðnanna í slík mál. Fjár- hagsleg hagkvæmni verkefnisins veltur að miklu leyti á vali á við- skiptalíkani sem ákvarðar greiðslur og tekjustrauma á Íslandi og í Bret- landi. Þó er ljóst að verkefnið verð- ur ekki að veruleika án sérstaks stuðningskerfis frá breskum stjórn- völdum. Veruleg óvissa tengd sæstreng  Starfshópur um skoðun á raforkustreng skilar niðurstöðum  Fjárhagslegur stuðningur breskra stjórnvalda er forsenda  Skýrslunni var skilað fyrir Brexit og því óljóst um orkustefnu Breta Morgunblaðið/Árni Sæberg Handaband Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og David Cameron takast í hendur eftir tvíhliða fund þeirra hinn 28. október 2015, þar sem m.a. voru rædd öryggis- og varnarmál auk þess sem samstarf í orkumálum var rætt. Samkvæmt niðurstöðum skýrsl- unnar mun sæstrengur leiða til hærra raforkuverðs á Íslandi. Er áætlað að áhrifin geti orðið á bilinu 0,85 - 1,7 kr./kWst. Bent er á að algengt heildarraf- orkuverð heimila er um 17 kr./ kWst og getur hækkunin því verið um 5-10% á einingaverði flestra heimila. Þó eru áhrifin mismunandi eftir svæðum. Sigurður Atli Jónsson, for- stjóri Kviku, sagði á blaða- mannafundinum að það gæti þýtt um 350 til 710 króna hækk- un á raforkuverði á mánuði fyrir meðalheimili. Þó væri t.d. hægt að lækka virðusaukaskatt á raf- orku til að mæta hækkun raf- orkuverðs, að sögn Sigurðar. Leiðir til hærra verðs ÁHRIF Á RAFORKUVERÐ Rafmagnsverð til evrópskra heimila Verð í evrum, án skatta og leiðslukostnaðar (EUR/MWh) 160 140 Bretland Ísland120 100 80 60 40 Ký pu r Ír la nd Íta lía G rik kl an d H ol la nd Li ec ht en st ei n Au st ur rík i B el gí a Kr óa tía Fi nn la nd B úl ga ría Li th áe n U ng ve rja la nd D an m ör k Sv ar tf ja lla la nd Té kk la nd Le tt la nd Se rb ía 20 0 Heimild : Kvika

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.