Morgunblaðið - 13.07.2016, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 13.07.2016, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLÍ 2016 Um síðustu mánaðamót lækk-aði tryggingagjaldið um 0,5% og er þá komið niður í 6,85%. Þetta er skref í rétta átt og í frétt á vef Samtaka at- vinnulífsins er bent á að það sé stigið á grundvelli samkomulags samtakanna við stjórnvöld frá því í janúar og sé ætlað að mæta að hluta stórauknum fram- lögum atvinnulífsins til lífeyris- mála.    Samkomulagið feli í sér aðtryggingagjaldið lækki um sama hlutfall á næsta og þarnæsta ári og verði því komið í 5,85%. Það verði því komið í svipað horf og það var í áður en hækkanir dundu yfir hjá vinstri stjórninni eftir bankahrunið, en fyrir var það raunar enn lægra, eða 5,34%.    Árið 2010 var vinstri stjórninbúin að keyra gjaldið upp í 8,65% og réttlætti með miklu at- vinnuleysi. Þetta gerði fyrir- tækjum vitaskuld erfitt fyrir að ráða fólk í vinnu og hægði þannig á bata í atvinnumálum.    Nú er atvinnuleysi ekki vanda-mál og fyrri rök því enn síð- ur gild nú en þá.    Þrátt fyrir jákvætt skref ertryggingagjaldið enn allt of hátt og full ástæða til að stíga skref til lækkunar hraðar en rætt hefur verið um. Ríkisvaldið á ekki að þurfa samkomulag við atvinnu- lífið til að vilja lækka skatta, það á að lækka skatta eins og kostur er og um leið og tækifæri gefst til.    Það tækifæri er sannarlega fyr-ir hendi nú. Tækifærið er nú STAKSTEINAR Veður víða um heim 12.7., kl. 18.00 Reykjavík 15 skýjað Bolungarvík 8 skýjað Akureyri 9 alskýjað Nuuk 11 léttskýjað Þórshöfn 11 alskýjað Ósló 18 rigning Kaupmannahöfn 20 skýjað Stokkhólmur 18 skúrir Helsinki 20 léttskýjað Lúxemborg 24 heiðskírt Brussel 18 skúrir Dublin 15 skýjað Glasgow 14 alskýjað London 15 skúrir París 20 léttskýjað Amsterdam 19 skúrir Hamborg 19 léttskýjað Berlín 26 heiðskírt Vín 20 rigning Moskva 25 léttskýjað Algarve 33 heiðskírt Madríd 31 léttskýjað Barcelona 26 heiðskírt Mallorca 28 heiðskírt Róm 31 heiðskírt Aþena 30 heiðskírt Winnipeg 17 skúrir Montreal 25 skýjað New York 26 skýjað Chicago 29 skýjað Orlando 32 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 13. júlí Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 3:38 23:31 ÍSAFJÖRÐUR 3:01 24:17 SIGLUFJÖRÐUR 2:42 24:02 DJÚPIVOGUR 2:58 23:09 Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í gær ís- lenska ríkið af öll- um kröfum manns sem fór fram á ógildingu ákvörðunar ríkis- lögreglustjóra og úrskurðar innanríkisráðuneytis um að veita honum neikvæða umsögn vegna umsóknar hans um aðgangs- kort að haftasvæði flugverndar. Óumdeilt er að þegar umsókn ISAVIA um bakgrunnsathugun mannsins var til meðferðar hjá ríkis- lögreglustjóra hafði kæra verið lögð fram á hendur honum fyrir ætlaða líkamsárás en óheimilt er sam- kvæmt lögum að veita aðgengi að svæðinu sé viðkomandi með opið mál í réttarvörslukerfinu. Þá má ætlað brot ekki vera stórfellt. „Fallast ber á mat stefnda á því að umrætt ætlað brot stefnanda teljist stórfellt,“ segir í dómi héraðsdóms og ríkislögreglustjóra því rétt að veita neikvæða umsögn og var ISAVIA óheimilt skv. lögum að fara gegn því mati. Neitað um aðgengi að haftasvæði  Ekki fallist á ógild- ingu ákvörðunarinnar Ný drög innanríkisráðuneytisins að frumvarpi um mannanafnalög hafa orðið fyrir gagnrýni úr ýmsum átt- um. Ekki hefur legið fyrir hverjir höfundar frumvarpsins eru né hvað- an tillögur þeirra um að leggja niður flestar reglur um mannanöfn eru fengnar. „Þegar formlegir starfshópar eru skipaðir til að fjalla um mál eru í þeim utanaðkomandi sérfræðingar auk fulltrúa ráðuneytisins. Þá er greint frá því hvaða einstaklingar áttu sæti í hópnum en það var ekki um það að ræða í þessu tilviki,“ segir Þorleifur Óskarsson hjá innanrík- isráðuneytinu en drögin voru samin á skrifstofu mannréttinda og sveit- arfélaga í ráðuneytinu. Byrjaði með þingfrumvarpi Að sögn Þorleifs er aðdragandi málsins sá að á þinginu 2013-2014 lögðu 14 þingmenn með Óttarr Proppé í broddi fylkingar fram frumvarp um breytingar á lögum um mannanöfn. Allsherjarnefnd hafi þá vísað málinu til ráðuneytisins sem byrjaði á því að gera könnun á við- horfum almennings til manna- nafnalaga og var það gert með skoð- anakönnun. 60% aðspurðra sögðust hlynntir rýmkun á löggjöfinni. Ráðuneytið bauð þá fólki að senda sér umsagnir um þrjá möguleika á rýmkun regln- anna. Flestar umsagnir bárust um þann möguleika að fella úr manna- nafnalögum takmarkanir á nafngjöf. Starfsmenn ráðuneytisins sömdu síðan drög að frumvarpi og lögðu fram til umsagnar. Þorleifur er hissa á því hve fáar umsagnir hafi borist til ráðuneytisins vegna málsins. „Það hafa einungis borist fimm umsagnir til okkar vegna þessa máls, við birt- um drögin til að fá viðbrögð við þeim,“ segir Þorleifur. elvar@mbl.is Óháðir sérfræðingar ekki kallaðir til  Enginn formlegur starfshópur á bak við ný drög að lögum um mannanöfn Hrein samviska í 25 ár Gylfaflöt 5 | 112 Reykjavík | 520 2200 | sorpa@sorpa.is B ra n d e n b u rg |s ía

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.