Morgunblaðið - 13.07.2016, Side 11

Morgunblaðið - 13.07.2016, Side 11
Morgunblaðið/Brynjar Gauti Reglur Það er að ýmsu að huga þegar kosningar eru undirbúnar og ýmis- konar lög og reglur sem þarf að fara eftir við framkvæmd þeirra. Elvar Ingimundarson elvar@mbl.is „Við höfum haft samráð við mjög marga í vinnuferlinu. Bæði aðila sem hafa áhuga á framkvæmd kosninga og sérstaka hags- munahópa,“ segir Þórir Haralds- son, formaður vinnuhóps um end- urskoðun kosningalaga, en vinnuhópurinn hefur skilað inn drögum að frumvarpi til laga og vinnuskýrslu sinni til umsagnar. Þórir segir skýrslu hópsins snú- ast um undirbúning og fram- kvæmd kosninga fremur en póli- tísk álitaefni. Langt sé síðan kosningalögin voru endurskoðuð í heild sinni. Tímamörk kosninga breytast Samkvæmt tillögum vinnuhóps- ins mun framboðsfrestur og upp- hafstími utankjörfundaratkvæða- greiðslu breytast. „Þessi tímamörk hafa færst í sundur og gerðu það síðast 1987 og hafa verið í svipuðu horfi síðan þá. Markmiðið með þessari breyt- ingu er að það liggi fyrir hverjir eru í kjöri áður en kosning hefst,“ segir Þórir en ÖSE, Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu, hefur gert athugasemdir við það að ut- ankjörfundaratkvæðagreiðsla sé hafin áður en öll framboð hafa bor- ist. „Við leggjum því til að fram- boðsfrestur fari úr því að vera 15 dagar í það að vera 36 dagar. Það er auðvitað mikil breyting ekki síst í nútímasamfélagi þar sem vær- ingar eru á stjórnmálasviðinu og ný framboð að koma fram,“ segir Þórir. Að hans mati er breyting fram- boðsfrests nauðsynleg svo hægt sé að hefja utanatkvæðagreiðslu tím- anlega. „Við leggjum til að tími utan- kjörfundaratkvæðagreiðslu breyt- ist úr átta vikum í 29 daga fyrir kjördag. Það er auðvitað helm- ingun á tíma en þessi tímamörk hanga saman því að frá því að framboð berast þarf að úrskurða um þau,“ segir hann. Nýtt verklag á kjörfundi Í tillögum vinnuhópsins er lagt til að nýtt verklag verði tekið upp í kjörfundarstofum. Þannig fái kjós- andi kjörseðil afhentan þegar hann kemur inn í stofuna. Síðan fari hann í kjörklefann og kjósi. Að því loknu geri hann grein fyrir sér við kjörstjórn sem stimplar bakhlið kjörseðils hans, sé hann á kjör- skrá. Að því búnu leggi kjósandinn kjörseðilinn í atkvæðakassann. „Þetta eru viðbrögð við því að prenttækni hefur farið fram og það er auðveldara en áður að út- búa eftirlíkingu af kjörseðli. Þess vegna viljum við fara sömu leið og farin er í nágrannalöndunum að skilyrði fyrir því að blað verði að kjörseðli er að kjörstjórn stimpli það með sérstökum stimpli. Þetta er í raun öryggisatriði. Það getur verið fullt af blöðum í umferð sem líta út eins og kjörseðlar en blað verður ekki að kjörseðli nema það fái stimpilinn og eftir það fer það beint í kassann,“ segir Þórir Hefja talningu fyrr en áður „Það er heimilt samkvæmt nú- gildandi lögum að hefja flokkun at- kvæða fyrir luktum dyrum. Það er auðvitað umdeilt hvað felst í flokk- un og hvað felst í talningu að minnsta kosti þegar fyrstu tölur birtast í sjónvarpi mínútum eftir að kjörstöðum er lokað,“ segir Þórir en vinnuhópurinn leggur til að hefja megi flokkun og talningu atkvæða fyrir luktum dyrum áður en kjörstöðum er lokað. Það þýðir að búið verður að telja mun fleiri atkvæði en áður þegar fyrstu tölur eru birtar. Þórir telur það vera nauðsyn- lega lagaskýringu til að hægt sé að tryggja að öll framkvæmd talning- arinnar sé í samræmi við lög. Í tillögum vinnuhópsins er einn- ig lagt til að stjórnmálasamtök haldi listabókstaf sínum meðan þau bjóða fram til kosninga. Bjóði samtök ekki fram við tvennar kosningar missa þau listabókstaf sinn og þurfa að sækja um hann aftur. Fyrstu tölur verða nákvæm- ari en áður  Lagðar hafa verið til fjölbreyttar úrbætur á framkvæmd kosninga FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLÍ 2016 Vertu upplýstur! blattafram.is MÖRG ÞEKKJUM VIÐ BÆÐI ÞOLENDUR OG GERENDUR KYNFERÐISOFBELDIS PERSÓNULEGA. ERUM VIÐ AÐ SAMÞYKKJA ÞAÐ MEÐ ÞÖGNINNI? Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170 TAX FREE Verið velkomin Túnikur Sumarbolir Peysur Leggings Kvartbuxur Skart Töskur ÚTSALA ÚTSALA ÚTSALA Fylgist með okkur á facebook 40% afsláttur Kringlunni 4c – Sími 568 4900 kjólar kápur jakkar frakkar skyrtur pils peysur o.m.fl buxur blússur Ferðamönnum stendur nú til boða að gista í svokölluðum saf- ari-tjöldum á tjaldsvæðinu í Laugardal. Tjöldin sem eru fjögur talsins eru afar rúmgóð og minna á saf- aritjöld úr bíómyndum fyrri ára- tuga. Í hverju tjaldi er uppbúið tveggja manna rúm auk þráð- lauss nets og tveggja stóla og því er hægt að samtvinna þann lúxus sem gisting undir þaki býður upp á og ævintýri útilegunnar. Heiti gistingarinnar á ensku er Reykjavík Safari Camping en um er að ræða nýjung í íslenskri ferðaþjónustu sem unnin er í samstarfi við fyrirtækið Rent-A- Tent. Tjaldstæðið í Laugardal er stærsti gististaður landsins en þar geta allt að 950 manns gist í einu. Í ár var þjónustutími tjald- svæðisins lengdur töluvert og opnað í fyrsta sinn þann 1. maí en tjaldstæðinu verður lokað 30. september og því opið í fimm mánuði alls. Á þessu ári er gert ráð fyrir að gistinætur á tjald- stæðinu verði í kringum 53.000 talsins, segir í fréttatilkynningu frá Farfuglum. Safari tjaldgisting í Laugardalnum Lúxus Safari-tjald með þráðlausu neti og uppbúnu rúmi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.