Morgunblaðið - 13.07.2016, Qupperneq 13
María er búsett í Svíþjóð. „Ég er að
leita mér að vinnu fyrir veturinn og
stefni svo á háskólanám í djasssöng.“
Júlía er búsett á Selfossi en stefnir á
að flytja í bæinn í haust og starfa á
leikskóla.
Með blogginu vilja systurnar fá
fólk til að líta öðrum augum á vegan-
lífsstílinn. „Maður þarf ekki að eiga
fullt af pening eða eyða öllum deg-
inum í matargerð þegar maður er
vegan. Það er ekkert mál að elda
venjulegan, fljótlegan, ódýran, nær-
ingarríkan, fjölbreyttan og spenn-
andi mat án þess að nota dýra-
afurðir,“ segir Júlía Sif.
Vilja upplýsa almenning
Tilgangur bloggsins er einnig að
upplýsa fólk betur um hvað felst í því
að vera vegan. „Við höfum oft lent í
því að fólk haldi að við megum ekki
borða óhollt. Við höfum fengið spurn-
ingar eins og: „Bíddu, þið megið ekki
borða sykur og hveiti er það?“ Eins
hefur fólk oft hugmyndir um það að
vegan-fólk borði óspennandi mat og
að við munum deyja úr næringar-
skorti og að við fáum ekkert prótein
úr matnum okkar. Þetta er allt mjög
fjarri sanni,“ segir Helga María.
Systrunum finnst því mikilvægt að
fólk sé betur frætt um veganismann.
„Samtök grænmetisæta á Íslandi
hafa verið dugleg að halda viðburði
og fyrirlestra um veganisma. Eins
eru til góðar bækur og heimildar-
myndir um þessa hluti. Svo eru
bloggsíður og Youtube-rásir einnig
mikilvægar því þar er fólk sem talar
af eigin reynslu,“ segir Júlía Sif.
Systurnar eru sammála um að
heimur grænmetisæta, eða græn-
kera, sé alltaf að opnast og að fleiri
möguleikar séu í boði nú en áður.
„Fyrir fimm árum þegar ég gerðist
vegan þekkti ég enga aðra grænkera.
Það voru nokkrar grænmetisætur
með mér í MH en enginn var vegan.
Veitingastaðir buðu sjaldan upp á
vegan-rétti og grænmetisréttirnir
þeirra voru yfirleitt löðrandi í rjóma-
sósu eða osti og majónesi. Þetta hefur
breyst með tímanum og núna er
Reykjavík ein af bestu borgunum
fyrir vegan-fólk að heimsækja,“ segir
Helga María.
Svíþjóð himnaríki grænkera
Helga María segir Svíana þó
vera komna töluvert lengra í ferlinu
en okkur Íslendingana. „Svíþjóð er
himnaríki fyrir vegan-fólk. Þar færðu
allskonar vegan-vörur í öllum versl-
unum og nánast hver einasti veitinga-
staður er með vegan-rétti á matseðl-
inum. Þar er einnig mjög algengt að
fólk sem borðar kjöt velji samt græn-
metiskostinn þar sem hann er í boði.“
Eldamennska og bakstur er
meðal helstu áhugamála systranna.
„Við erum báðar miklir kokkar en
Júlía er öruggari þegar kemur að
bakstri,“ segir Helga María. „Ég hef
bakað frá því ég var ung. Helga
María hringir oft í mig þegar hún er
hrædd um að hún sé að klúðra
bakstrinum,“ segir Júlía Sif. „Þegar
við erum saman finnst okkur æðis-
legt að elda og baka og okkur líður
báðum mjög vel í eldhúsinu.“
Þær eiga erfitt með að nefna
uppáhaldsmat en vegan-sushi er í
miklu uppáhaldi hjá Helgu Maríu og
Júlía Sif er mikið fyrir mexíkóskan
mat. „Svo borðar Helga María tahini,
eða sesamsmjör, með öllu,“ segir Júl-
ía Sif og hlær.
Enchiladas Júlía er mikið fyrir mexíkóska matargerð. Þessi réttur er með
fyllingu úr baunum, sætri kartöflu og kryddum, rúllað inn í vefjur.
Hægt er að fylgjast með
systrunum á www.veganistur.is
og á Instagram og Snapchat undir
nafninu Veganistur.
Tveir spennandi kostir
CLA og CLA Shooting Break
Mercedes-Benz CLA er góður kostur fyrir fólk á ferð og flugi.
Einstaklega öflugur, sportlegur og skemmtilegur í akstri en jafnframt
eyðslugrannur og umhverfismildur. Hann fæst í ótal útfærslum, t.d.
framhjóladrifinn eða með 4MATIC fjórhjóladrifinu, einnig með
aukabúnaði við hæfi hvers og eins. Fyrir þá sem þurfa meira rými er
Shooting Brake hlaðbaksútfærslan kjörin.
ASKJA · Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík · Sími 590 2100 · askja.is
Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili Mercedes-Benz á Íslandi
Þú finnur „Mercedes-Benz Ísland“
á Facebook
CLA 180 með 7 þrepa sjálfskiptingu
Verð frá 5.500.000 kr.
Eyðir frá 4,0 l/100 km í blönduðum akstri
CLA 180 Shooting Brake með 7 þrepa sjálfskiptingu
Verð frá 5.600.000 kr.
Eyðir frá 4,2 l/100 km í blönduðum akstri
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLÍ 2016
Veganismi er ein hugmynd inn-
an grænmetishyggjunnar. Fólk
sem aðhyllist veganisma kallast
almennt vegan-grænmetisætur
eða grænkerar. Grænkerar
borða engar afurðir dýra, hvorki
líkama þeirra, mjólk né egg. Að
sama skapi forðast vegan alla
nýtingu varnings sem prófaður
hefur verið eða unninn að ein-
hverju leyti úr dýrum, t.a.m. leð-
ur, ull, silki og snyrtivörur sem
innihalda dýraafurðir eða hafa
verið prófaðar á dýrum.
Grænkerar
HVAÐ ER VEGAN?
„Okkur finnst gaman að prófa eitt-
hvað nýtt þegar kemur að matar-
gerð. Ég ákvað fyrir stuttu að
prófa að baka brownies úr svört-
um baunum,“ segir Helga María,
sem hafði ekki miklar væntingar
og það kom henni því skemmtilega
á óvart hversu bragðgóðar kök-
urnar voru. Hún fór strax í það að
þróa sína eigin uppskrift af svo-
leiðis kökum, hér er útkoman:
1 ½ bolli soðnar svartar baunir.
½ bolli glúteinlaust eða venju-
legt haframjöl.
½ bolli hrísgrjónahveiti
1 tsk. matarsódi
1⁄4 tsk. salt
½ bolli kakóduft
4 msk. olía. Ég mæli mest með
bráðinni kókosolíu eða sólblóma-
olíu
1 tsk. eplaedik
½ bolli vatn
½ bolli agave- eða hlynsíróp
1 bolli brytjað suðusúkkulaði
Aðferð
1. Byrjið á því að hita ofninn á
175°C með blæstri.
2. Hellið haframjölinu í skál og
malið það niður með töfrasprota
eða í matvinnsluvél þar til áferðin
verður svipuð hveiti. Leggið til
hliðar.
3. Sigtið baunirnar og skolið vel
með köldu vatni. Hellið þeim í
stóra skál, maukið þær vel og
passið að engin baun sé heil.
4. Hellið vatni, sírópi, eplaediki
og olíu saman við og maukið vel.
5. Bætið haframjölinu, hrís-
grjónahveitinu, kakóinu, saltinu og
matarsódanum saman við og
maukið þar til engir kekkir eru.
6. Hellið helmingnum af súkku-
laðinu út í og blandið saman við
deigið með sleif.
7. Penslið muffins-ofnskúffu-
form með olíu. Formið sem ég nota
gerir 12 kökur og deigið passar ná-
kvæmlega í það.
8. Stráið hinum helmingnum af
súkkulaðinu yfir kökurnar. Það er
hægt að leika sér aðeins þarna og
setja á kökurnar hnetur, þurrkaða
ávexti, kókosmjöl eða bara það
sem manni dettur í hug.
9. Bakið kökurnar í 20-30 mín-
útur. Það er stundum mismunandi
eftir ofnum hversu langan tíma
tekur að baka kökurnar en mínar
tóku sirka 26 mínútur. Leyfið kök-
unum að kólna í 10 mínútur áður
en þið takið þær úr muffins-
forminu. Gott er að bera kökurnar
fram með þeyttum kókosrjóma.
Uppskrift má finna á www.veg-
anistur.is.
Svartbauna-brownies
GAMAN AÐ PRÓFA NÝJUNGAR Í ELDHÚSINU