Morgunblaðið - 13.07.2016, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLÍ 2016
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is
Hönnun fyrir lífið
Besta vörumerkið í Þýskalandi 2015
Góð hönnun á ekki aðeins við um útlit hlutar, heldur einnig upplifun
notandans á honum. Nýju innbyggðu eldhústækin fráMiele eru
hönnuðmeð þessa hugmyndafræði í huga. Tækin passa öll
fullkomlega saman hvað varðar útlit, áferð og virkni.
Líttu við hjá okkur og fáðu tilboð í eldhústækin og innréttinguna
og tryggðu þér raunveruleg gæði á réttu verði.
Hönnun og ráðgjöf á staðnum.
best
brands
IIIJlillr 11
við niðurstöðu Hæstaréttar,“
segir í bréfinu.
Isavia svaraði innanríkisráðu-
neytinu með bréfi dagsettu 5. júlí
þess efnis að lokun brautarinnar
hefði verið framkvæmd.
Fram kemur í bréfi Isavia að um-
rædd flugbraut hafi ekki verið í
notkun í nokkrar vikur, m.a. vegna
skorts á stæðum fyrir flugvélar,
sem hér hafa tímabundna viðkomu.
„Jafnframt verður merkingum flug-
brautarinnar breytt, til stendur að
hún verði nýtt sem akbraut að hluta
og fyrir lagningu loftfara að hluta,
eftir því sem við á,“ segir í bréfi
Isavia til ráðuneytisins.
Umhverfis- og skipulagsráð
Reykjavíkur hefur samþykkt að
auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyr-
ir götuna Starhaga vegna uppsetn-
ingar aðflugsljósa fyrir Reykjavík-
urflugvöll samkvæmt uppdrætti
Teiknistofunnar Storð.
Umrædd aðflugsljós verða sett
upp við vesturenda austur/vestur
flugbrautar vallarins en aðflugsljós
eru þegar til staðar við austurenda
brautarinnar.
Umhverfis- og skipulagsráð bók-
aði eftirfarandi í tilefni af þessari
samþykkt: „Til þess að standa við
samkomulag Reykjavíkurborgar og
ríkisins um málefni flugvallarins í
Vatnsmýri er skipulagstillaga þessi
auglýst. Umhverfis- og skipulags-
ráð telur mikilvægt að leitað sé álits
Minjastofnunar á framkvæmdunum
enda ljóst að a.m.k. eitt mannvirki
sé innan minjasvæðis. Lagt er til að
tillagan sé einnig send Borgar-
sögusafni og hverfisráði Vestur-
bæjar. Ráðið leggur áherslu á að öll
mannvirki verði felld að umhverfinu
á eins látlausan hátt og mögulegt er
og að öllum framkvæmdum verði
haldið í lágmarki.“
Samkomulagið sem hér er vísað
til gerðu Hanna Birna Kristjáns-
dóttir, þáverandi innanríkis-
ráðherra, og Jón Gnarr, þáverandi
borgarstjóri, 25. október 2013.
Milda sjónræn áhrif
Í samkomulaginu sagði orðrétt:
„Þegar lokun NA/SV brautarinnar
hefur verið staðfest verða ný lend-
ingarljós tekin í notkun í samræmi
við breytt deiliskipulag og nauðsyn-
legur fjöldi trjáa í Öskjuhlíð felldur
í þágu flugstarfseminnar. Aðilar
leiti þó sameiginlega leiða til að
milda sjónræn áhrif hinna nýju
lendingarljósa frá fyrirliggjandi til-
lögum og takmarka fellingu trjáa í
Öskjuhlíð. Óháð öðrum verkþáttum
sem í samkomulaginu felast munu
innanríkisráðuneytið og Isavia hafa
forgöngu um að kennslu- og einka-
flugi verði fundinn nýr staður í ná-
grenni borgarinnar í samræmi við
áður gefin fyrirheit vegna endur-
byggingar vallarins um síðustu
aldamót og skal stefnt að því að
framkvæmdir verði hafnar eins
fljótt og verða má.“
Morgunblaðið/RAX
Flugbraut 06/24 Hinni umdeildu neyðarbraut hefur nú verið lokað. Hún verður akbraut að hluta og einnig notuð sem stæði fyrir flugvélar. Hin þekkta DC 3 flugvél Páll Sveinsson stendur þar.
Neyðarbraut breytt í stæði
Isavia hefur lokað flugbraut 06/24 á Reykjavíkurflugvelli að kröfu ráðuneytisins Brautin verður
stæði fyrir flugvélar og akbraut að hluta Undirbúningur hafinn að aðflugsljósum við Starhaga
FRÉTTASKÝRING
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Isavia hefur lokað flugbraut 06/24 á
Reykjavíkurflugvelli, neyðarbraut-
innu svokölluðu. Um þessa braut
hefur verið hart deilt undanfarin
misseri. Jafnframt er hafinn undir-
búningur að uppsetningu aðflugs-
ljósa við vesturenda austur/vestur
flugbrautar vallarins í samræmi við
samkomulag sem ríki og Reykjavík-
urborg gerðu í október 2013.
Sem kunnugt er var það niður-
staða Hæstaréttar að loka skyldi
neyðarbrautinni eins og kveðið var
á um í umræddu samkomulagi frá
2013. Í framhaldi af því sendi inn-
anríkisráðuneytið bréf til Isavia 30.
júní sl. þess efnis að loka bæri flug-
brautinni án tafa og taka hana úr
notkun.
Endurskoða skipulagsreglur
Sama dag skrifaði ráðuneytið
Degi B. Eggertssyni borgar-
stjóra bréf þar sem tilkynnt var
um þessa ákvörðun. Í bréfinu
kemur jafnframt fram að Sam-
göngustofu hafi verið falið að
hefja þegar vinnu við drög að
endurskoðun á skipulagsreglum
Reykjavíkurflugvallar með hlið-
sjón af þeim breytingum sem af
lokun brautarinnar leiðir. „Með
þessu hefur ráðuneytið brugðist
Í samkomulaginu frá 2013 er til-
tekið að fella skuli tré í Öskjuhlíð „í
þágu flugstarfseminnar“ eins og
þar segir. Þetta hefur ekki verið
framkvæmt ennþá.
Borgin og Isavia ætla að gefa sér
sumarið til að fara betur yfir stöð-
una á trjánum í Öskjuhlíð, að sögn
Þórólfs Jónssonar, deildarstjóra
náttúru og garða hjá Reykjavíkur-
borg.
„Við ætlum að fara yfir mælingar
sem voru gerðar 2013 og jafnvel
endurtaka mælingar því trén hafa
auðvitað haldið áfram að vaxa. Í
framhaldi af því munum við skipu-
leggja aðgerðir í samvinnu við
Isavia. Það er ekki búið að tíma-
setja þær aðgerðir en þær gætu
auðvitað orðið með haustinu,“ segir
Þórólfur.
Að hans sögn snýst þetta um
grenitré og á ákveðnu svæði þyrfti
að fella hæstu trén. Á svæðum sem
um ræðir er yfirleitt um að ræða
blandaðan skóg, þó hæstu trén séu
tekin stæðu eftir lægri tré, bæði
greni og tré af öðrum tegundum.
Það sé undantekning ef það þyrfti
að fella heilan lund af grenitrjám.
Morgunblaðið/RAX
Öskjuhlíð Á svæðinu er yfirleitt um að ræða blandaðan skóg.
Tré í Öskjuhlíð mögu-
lega felld með haustinu