Morgunblaðið - 13.07.2016, Qupperneq 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLÍ 2016
✝ Guðjón Guð-laugsson fædd-
ist 15. janúar 1938
á Akureyri. Hann
lést á líknardeild
Landspítalans í
Kópavogi 5. júlí
2016.
Foreldrar hans
voru Guðlaugur
Kristjánsson, f.
1883, d. 1945, og
Bjarney Pálína
Guðjónsdóttir, f. 1898, d. 1977.
Systkini: Sigurður, Margrét,
Valdimar, Pálína Ragnheiður,
Kristján, Anna, Jón Viðar,
Sigurjón, Guðlaugur.
Guðjón kvæntist Kristínu
Pálsdóttur. Börn þeirra eru
Guðlaugur, maki Elísabet
María Garðarsdóttir. Börn
hans Guðjón Þór frá fyrra
sambandi, og hennar Erna
Björk og Ragna Guðfinna
Ólafsdætur. Jón Örn, maki
Sigríður Harpa Wolfram. Börn
þeirra Askur Logi
og Katrín Lilja.
Börn Kristínar frá
fyrra sambandi:
Björgvin Páll og
Róbert Friðriks-
synir.
Guðjón ólst upp
og bjó á Akureyri
fram yfir gagn-
fræðaskóla en
fluttist þá til
Reykjavíkur og
vann ýmist á Keflavíkurflug-
velli eða á sjó en hann var
meðal annars á varðskipi og á
tankskipinu Kyndli. Hann fór
svo til Bandaríkjanna árið
1965 til að læra flugvirkjun í
Tulsa Oklahoma og starfaði
við það mestallan sinn starfs-
feril, eða þar til hann fór á
eftirlaun 67 ára.
Útför hans fer fram frá
Fossvogskirkju í dag, 13. júlí
2016, klukkan 13.
Bless, elsku pabbi minn.
Undanfarna daga hafa minn-
ingarnar streymt fram og ég hef
verið að minnast bíltúranna sem
oftar en ekki enduðu niðri á höfn
eða eitthvers staðar úti á Granda
að skoða skip og báta eða bara
að horfa út á hafið. Ég með gos
og þú með pilsner og ég veit að
afastrákurinn þinn og nafni á
mjög svipaðar bíltúrsminningar.
Eins minnist ég allra ferða-
laganna sem við fjölskyldan fór-
um í, bæði í sumarbústaði og
tjald. Eins og þá var siður var
oft smurt nesti fyrir lengri
ferðalögin og stoppað á einhverj-
um fallegum stað, breitt úr tepp-
um og drukkið kaffi af hitabrúsa
og annað hvort djús eða kakó-
malt úr flösku, eftir akstur í ryki
og holum á drekkhlöðnum bíln-
um.
Einnig minningar þar sem við
fórum í heimsóknir til vina eða
ættingja til að laga biluð heim-
ilistæki, því að pabbi minn var
ótrúlega lunkinn í að gera við
flest allt, sérstaklega man ég eft-
ir þvottavélum og ísskápum.
En síðustu 20 og eitthvað árin
þá hjálpaði ég honum við við-
haldið á húsinu og þá vorum við
oftast tveir saman og þá komu
oft skemmtilegar sögur, til dæm-
is síðan hann var á sjónum eða í
námi í Bandaríkjunum.
Ég á eftir að sakna þessara
stunda.
Guðlaugur Guðjónsson.
Elsku pabbi. Þótt ég hafi vilj-
að hafa tímann lengri saman þá
er ég samt svo þakklátur fyrir
tímann sem við höfðum þó sam-
an.
Þegar svona gerist fer maður
að hugsa til baka og brosi ég
mikið þegar ég hugsa til þess
þegar við fórum saman í Þjórs-
árdalinn, ég, þú og Gulli, að
sækja kofann. Hvað við hömuð-
umst við að ná þessu í sundur og
bárum þakið. Og þú hélst þig all-
an við verkið eins og ekkert væri
sjálfsagðara. Fórst margar ferð-
ir fram og til baka með rusl til að
henda og hljópst með hverja
spýtuna á fætur annarri í kerr-
una svo að barnabörnin gætu nú
fengið leikkofa. Dagurinn eftir
var víst slæmur hjá þér … get
rétt ímyndað mér það þar sem
ég, 38 ára gamall, var allur bólg-
inn og sár eftir átökin og þú þá
74 ára. Já, aðeins tvö ár liðin,
samt hefur svo margt gerst.
Eins brosi ég þegar ég rifja
upp þegar við fórum að kaupa
tösku undir rafmagnsgítarinn
minn og sölumaðurinn átti bara
eina tösku sem hafði lent undir
dóti hjá þeim og var öll brotin.
Fengum við hana fyrir lítið og
þú hélst að það væri nú lítið mál
að laga þetta. Tókst hana með
þér í vinunna og þegar vaktar-
törnin var búin komstu heim
með heila tösku með þessum
flotta álrenningi á toppnum til að
halda henni saman. Er þessi
taska til enn í dag og virkar fínt.
Svona varstu flinkur í höndun-
um. Allt dót var límt og lagað
þar til maður skemmdi það svo
mikið að enginn hefði getað lag-
að það.
Elsku pabbi, tengdapabbi, afi.
Takk fyrir tímann og minning-
arnar. Við vitum að alfaðirinn
hugsar vel um þig þar til við
náum að skála saman aftur.
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama;
en orðstír
deyr aldregi,
hveim er sér góðan getur.
(Úr Hávamálum)
Jón Örn Guðjónsson, Sigríð-
ur Harpa Wolfram, Askur
Logi Wolfram Jónsson,
Katrín Lilja Wolfram Jóns-
dóttir.
Guðjón
Guðlaugsson
HINSTA KVEÐJA
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Ástkær eiginkona.
✝ Valborg Jón-ína Jónsdóttir
fæddist 5. okóber
1926 á Grund í
Stöðvarfirði. Hún
lést á hjúkrunar-
deild FSN á Nes-
kaupstað þann 7.
júlí 2016.
Foreldrar henn-
ar voru Jón
Einarsson, f. 14.
maí 1894 í Kol-
staðagerði, Vallarhreppi, S-
Múlasýslu, d. 18. júlí 1973, og
Þórstína Pálsdóttir, f. 5. janúar
1896 á Þiljuvöllum í Berufirði,
d. 12. febrúar 1982. Bræður
Valborgar eru Björgvin Guð-
leifur Jónsson, f. 6. desember
1928, Lárus Jónsson, f. 30. júlí
1932, d. 29. ágúst 1957, Þor-
steinn Jónsson, f. 27. ágúst
1934, d. 17. júlí 1958 og Sig-
urður Jónsson, f. 27. febrúar
1937. Hálfbræður Valborgar í
móðurætt eru Páll Þorsteins-
son, f. 16. október 1918, d. 31.
mars 1960, Jóhann Þorsteins-
son, f. 23. október 1919, d. 2.
apríl 1939, Stefán Þorsteinsson,
f. 20. janúar 1921, d. 5. janúar
1971, og Þorsteinn Þorsteins-
son f. 15. febrúar
1923, d. í ágúst
1934.
Þann 11. nóvem-
ber 1944 giftist
Valborg Hauki
Ólafssyni, skip-
stjóra, d. 26. des-
ember 2012. Börn
þeirra eru: 1) Ólaf-
ur Jóhann, f. 24.
mars 1944, kvænt-
ur Guðbjörgu
Svölu Guðjónsdóttir og eiga
þau eina dóttur, 2) Sigur-
bergur, f. 31. október 1947,
kvæntur Álfdísi Ingvarsdóttur
og eiga þau eina dóttir og þrjá
syni. 3) Þór Sigurbjörn, f. 29.
nóvember 1950, kvæntur Maríu
Kjartansdóttur og eiga þau
eina dóttur og þrjá syni. Barna-
börnin eru níu, barnabarna-
börnin eru 21 og eitt barna-
barnabarnabarn.
Valborg hefur auk hús-
móðurstarfa unnið utan heim-
ilis við ýmis störf en lengst af í
brauðgerð Kaupfélagsins Fram.
Útför Valborgar fer fram frá
Norðfjarðarkirkju í dag, 13.
júlí 2016, og hefst athöfnin
klukkan 14.
Í dag kveð ég elsku fallegu
ömmu mína, Valborgu Jóns-
dóttur. Amma hefði orðið 90
ára þann 5. október næstkom-
andi og hefur átt langa og góða
ævi og veit ég að afi hefur tekið
fagnandi á móti henni.
Mér finnst ég vera heppin að
eiga ömmu mína svona lengi og
minningarnar um þau ömmu og
afa munu lifa áfram.
Amma var yndisleg kona og
væntumþykja hennar fyrir öllu
sínu fólki var alltaf mikil. Hún
var fín frú og aldrei var farið út
úr húsi nema búið væri að farða
sig og klæða sig upp. Hún
reyndi líka aðeins að hafa áhrif
á afa ef henni fannst hann ekki
líta alveg nógu vel út svona
þegar haldið var á stað.
Þegar ég var unglingur var
ég heilu sumrin í Neskaupstað
hjá ömmu og afa og þar fékk ég
mína fyrstu vinnu eða í salt-
fisknum. Amma kenndi mér
strax að maður ætti að vera
duglegur og taka alla þá vinnu
sem væri í boði. Við vorum
sammála um að peningurinn
færi inn á bankabók og ég
skammtaði mér hverju ég
mætti eyða eða við saman. Þeg-
ar ég hélt heim á haustin átti ég
ágætis summu og þá lagði hún
áherslu á að þetta skyldi ég nú
fara vel með. Þetta var góður
skóli og þessi sumur fyrir aust-
an voru yndisleg.
Eitt af því sem amma elskaði
voru heimsóknir og tókum við
ófáar heimsóknirnar saman.
Henni leiddist ekki að fara í bíl-
túra og var annt um fjörðinn
sinn, vildi hafa þar allt hreint
og snyrtilegt í bænum.
Amma var mikil húsmóðir og
þau afi áttu fallegt heimili sem
var haldið vel til haga. Hún var
mikil handavinnukona og eftir
hana liggur margt fallegt hand-
verk.
Amma sýndi öllu áhuga sem
við hin vorum að gera. Eitt af
því sem við höfðum fyrir reglu
var að þegar ég var með stór-
leiki sem þjálfari þá var síðasta
símtal fyrir leik til ömmu. Ég
man að ég var ekki róleg fyrr
en ég hafði náð í hana. Þá spáði
hún fyrir um úrslitin og yfirleitt
var það góð spá.
Mörg samtöl áttum við um
gömlu dagana þegar hún var
ung og hvernig lífið var í þá
daga. Hún varð ung móðir og
lífið var ekki alltaf dans á rós-
um þegar hún var ein með
strákana sína og afi lengst á
hafi úti.
Að lokum vil ég þakka elsku
ömmu fyrir tímann okkar sam-
an og minningin um yndislega
konu mun alltaf lifa með mér.
Helena Ólafsdóttir.
Elsku amma, þá hefur þú
kvatt okkur í hinsta sinn, nú
hafið þið afi sameinast á ný.
Mikið er ég þakklát fyrir að
hafa getað haft ykkur svona
lengi í lífi mínu, Sigtryggs og
barnanna okkar og getað fengið
að hjálpa ykkar þegar þið
þurftuð á að halda eftir að árin
færðust yfir. Alltaf voruð þið
tilbúin að aðstoða okkur ömmu-
börnin eins og þið gátuð og
heimilið ykkar alltaf fullt af ást
og hlýju, ég á heilt bókasafn af
minningum með þér og afa sem
ég geymi í hjarta mér. Ég vona
að ég nái að baka jafn flottar
pönnukökur og þú einhvern
tímann, ekki getur maður
gleymt þeim eða þegar þú hit-
aðir alltaf sængina mína á ofn-
inum áður en ég fór að sofa
þegar ég gisti hjá ykkur.
Elsku amma, ég á eftir að
sakna þess að hitta þig ekki eða
heyra ekki af þér á hverjum
degi en ég veit að þú ert komin
á góðan stað og afi hefur tekið
vel á móti þér.
Hvíldu í friði, elsku amma
mín.
Þín,
Rósa Dögg.
Mér er ljúft að minnast
elskulegrar frænku minnar,
Valborgar Jónsdóttur, sem nú
er látin. Við vorum bræðradæt-
ur en henni kynntist ég fyrst er
ég kom til Neskaupstaðar fyrir
57 árum og myndaðist djúp vin-
átta með okkur sem aldrei bar
skugga á. Valborg og eiginmað-
ur hennar Haukur reyndust
föður mínum og fjölskyldunni
allri afskaplega vel. Þau áttu
fallegt heimili sem gott og gam-
an var að koma á. Þau hjónin
fóru mikið til útlanda meðan
heilsan leyfði og alltaf kom Val-
borg færandi hendi með eitt-
hvað fallegt handa mér og
börnunum.
Ég kveð frænku mína með
söknuði og þakka henni sam-
fylgdina, um leið votta ég son-
um hennar, tengdadætrum og
afkomendum mína dýpstu sam-
úð.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Steinunn Stefánsdóttir
(Denna) og fjölskylda.
Valborg Jónína
Jónsdóttir
✝ Svala Gísla-dóttir fæddist
11. október 1939 í
Tálknafirði. Hún
lést á Sjúkrahúsinu
á Akureyri 20. júní
2016.
Foreldrar henn-
ar voru Gísli Jóns-
son frá Tálknafirði,
f. 14. febrúar 1912,
d. 27. janúar 1983,
og Lovísa Magnús-
dóttir frá Tálknafirði, f. 30.
október 1913, d. 18. júní 1993.
Svala var næstyngst fimm
systkina, elst var Magndís Guð-
rún, f. 1932, d. 1993, Jón Óli, f.
1934, Erla Dalrós, f. 1938, d.
2015, og Jón Björn, f. 1946.
Þann 7. júlí 1960 giftist Svala
júlí 1990, og Lovísa Margrét, f.
12. október 1993. 3) Selma
Dröfn, f. 26.3. 1966, m. Aðal-
steinn Dagsson, sonur þeirra er
Ágúst Svan, f. 15.8. 1988. 4)
Sigurbjörn, f. 18.4. 1970. Lang-
ömmubörnin eru orðin sjö.
Fyrstu æviárin bjó Svala í
Tálknafriði en 1946 fluttist fjöl-
skyldan til Patreksfjarðar og
ólst Svala þar upp.
Hún vann í frystihúsinu á
Patreksfirði og á sjúkrahúsinu á
Patreksfirði.
Eftir að námi lauk á Patreks-
firði fór Svala í Laugaskóla í
Reykjadal og stundaði nám á
Laugum árin 1955-1957 og í
Húsmæðraskólanum á Laugum
1957-1958.
Svala fluttist á Stöng í Mý-
vatnssveit eftir skólavist á
Laugum og bjó þar til æviloka.
Jarðarför Svölu fór fram 4.
júlí 2016.
Ásmundi Jóni
Kristjánssyni, f.
13.12. 1938 frá
Stöng í Mývatns-
sveit.
Börn þeirra: 1)
Kristín Lára, f.
23.1. 1963. Börn
hennar og Jóns
Inga Guðmunds-
sonar eru Guð-
mundur Örn, f.
14.2. 1985, Svala
Björk, f. 23.5. 1991, og Rannveig
Anna, f. 23.1. 1995. 2) Kristján,
f. 16.12. 1963, m. Hrafnhildur
Snorradóttir. Sonur Kristjáns
og Jóhönnu Bárðardóttur er Ás-
mundur, f. 18.6. 1986. Börn
Kristjáns og Sveinbjargar Ólafs-
dóttur eru Jóhann Ólafur, f. 9.
Okkur Guðmund langar til að
minnast Svölu Gísladóttur. Hún
var nágranni okkar og einn af
okkar bestu vinum. Fráfall henn-
ar var áfall fyrir okkur. Eitthvað
sem hvorki við eða nokkur annar
átti von á. Verst er þetta fyrir
hennar nánustu. Í þeim stóra
hópi var hún kletturinn og kraft-
urinn sem allir gátu leitað til. Við
sem erum á hliðarlínunni erum í
sárum. Hvað þá þau.
Við Guðmundur erum ákaf-
lega heppin með nágranna og
leitum óspart til þeirra þegar
þörf krefur. Til Svölu og Ás-
mundar leituðum við oft. Bæði
um ráð í vanda og hjálp við ýmis
verk. Það var alveg sama hvað
var. Alltaf fengum við það sem
leitað var eftir. Slíkt er ómet-
anlegt í hinum dreifðu byggðum.
Svala var einstaklega dugleg
og kraftmikil kona. Hún byggði
upp með manni sínum og öðrum
á Stöng glæsilega gisti- og veit-
ingaþjónustu. Þau gerðu þetta
hægt og af vandvirkni. Fóru
aldrei fram úr sér eða tóku
áhættu. Margur mætti taka þau
sér til fyrirmyndar í þessum efn-
um.
Svala var ekki bara dugleg
svo af bar. Hún var líka
skemmtileg, hnyttin og kankvís.
Hún fann sig vel á Stöng þótt
hún kæmi frá sjávarþorpi fyrir
vestan. Hún elskaði útsýnið,
grösin, sveppina og fuglana. Allri
brauðmylsnu dreifði hún út á
hlað þar sem smáfuglarnir fengu
sína veislu og gáfu ungunum
með sér. Fuglakonan ég tók eftir
þessu. Allt sem Svala gerði var
vel gert, af natni og vandvirkni.
Öllum átti að líða vel á Stöng.
Mönnum og dýrum. Gesta- og
veitingaþjónustan er rómuð og
verður örugglega áfram. Grunn-
urinn er sterkur. Það er Svölu og
Ásmundi og öðru góðu fólki að
þakka.
Það kom til okkar gestur um
daginn. Hann hafði ekið fram hjá
Stöng og svo áfram til okkar.
Hann gat ekki orða bundist og
talaði um hvað alltaf væri fallegt
á Stöng. Og svo þvotturinn!
Blaktandi á snúrunum í sólinni.
„Þetta er sjaldgæf sjón í dag,“
sagði þessi maður. Ég gat sagt
honum að Svala þurrkaði alltaf
þvott úti þegar veður leyfði.
„Þeir sem gista hjá okkur eiga
að njóta útiilmsins,“ sagði hún,
náttúrubarnið að vestan sem tók
ástfóstri við bæinn sinn í Mý-
vatnssveit.
Okkar innilegustu þakkir og
samúðarkveðjur til ykkar á
Stöng og annarra ættingja og
vina þeirra.
Kristlaug Pálsdóttir, Guð-
mundur Wium, Engidal.
Svala Gísladóttir
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Minningargreinar