Morgunblaðið - 13.07.2016, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 13.07.2016, Qupperneq 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLÍ 2016 ✝ Sigríður GuðnýBjarnveig Georgsdóttir fædd- ist að Miðhúsum, Breiðuvíkurhreppi, Snæfellsnesi 23. júlí 1926. Hún lést á Sól- vangi í Hafnarfirði 4. júlí 2016. Foreldrar henn- ar voru Georg Júl- íus Ásmundsson, f. 1891, d. 1983, og Guðmunda Lára Guðmunds- dóttir, f. 1895, d. 1973. Sigríður var fjórða í röð níu systkina. Þau eru: Guðmundur Kristófer, f. 1923, d. 1997, Gunnhildur Ingi- björg, f. 1923, d. 2006, Að- alheiður Ása, f. 1923, d. 2013, Þorbjörg, f. 1928, d. 2010, Sveinn Haukur, f. 1929, Pálína, f. 1932, d. 2010, Guðrún, f. 1933, og Reimar, f. 1937. Eiginmaður Sig- ríðar var Albert Egilsson, f. 13. júní 1923, d. 16. nóv- ember 1953. Börn þeirra eru Guðrún Albertsdóttir og Al- bert Sigurður Al- bertsson. Guðrún er gift Sverri Jak- obssyni og eiga þau fjögur börn og 15 barnabörn. Albert er giftur Ingibjörgu Halldóru Bjarnadóttur og eiga þau þrjú börn og sex barnabörn. Sigríður starfaði við sauma, verslunarstörf og umönnun sjúkra. Síðustu tuttugu starfs- árin vann hún sem ræsting- arstjóri á St. Jósefsspítala í Hafn- arfirði. Útför hennar fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 13. júlí 2016, klukkan 13. Elsku amma, afskaplega er ég þakklát fyrir tímann sem við fengum saman og minningarnar eru margar og góðar. Ég man svo vel eftir því hvað þú varst dugleg að leyfa mér að vesenast í handavinnu. Þú hjálp- aðir mér að prjóna og við tilraunir mínar til að hekla. Þú leyfðir mér líka að prófa að mála á disk og brenna eins og þú gerðir. Afskap- lega var ég stolt af litla disknum mínum. Ég á ennþá jólaskrautið sem þú málaðir og gafst mér. Það eru ekki jól nema jólakirkjan góða sé komin á náttborðið. Mér þykir svo vænt um minningarnar úr öllum fjölskylduboðunum sem voru haldin á Skúlaskeiðinu. Þar var þröngt setið og öllu til tjaldað. Oftar en ekki sótti ég gosið upp á háaloft og mér fannst það alltaf svolítið spennandi því það var svo mikið af allskyns dóti á háaloftinu. Allar stundirnar í sveitinni, ættarmótin, miðhús og svo kofinn þinn sem þér þótti svo vænt um, er eitthvað sem ég mun alltaf muna eftir og hugsa til með þakk- læti og hlýju. Sú minning sem mér þykir þó einna vænst um er þegar við keyrðum tvær saman í sveitina þegar hugur þinn var að- eins farinn að gefa eftir. Þá sagð- irðu mér sögur frá því þegar þú varst ung, sagðir mér frá afa og hvernig lífið hafði gengið fyrir sig. Elsku amma, þú varst nagli. Ég sakna þín og elska þig en ég veit að loksins ertu komin til afa sem þú saknaðir svo mikið. Sigrún Lára Sverrisdóttir. Er hugur minn leitar til þín sé ég þig fyrir mér á góðum stað. Sumarkvöld við Miðhúsavatn, vatnið spegilslétt og jökullinn speglast í vatninu. Það heyrist í lómnum og einstaka kría lætur í sér heyra. Í Hafnarfjörðinn var líka gott að koma. Það voru ófáar næturnar sem að ég fékk að gista þegar ég var barn. Þetta var viss ævintýraheimur, svæðið bak við Skúlaskeið og Hellisgerði. Þú varst okkur ávallt svo góð. Stund- um svolítið hörð því þú vildir vernda okkur. Ég sakna þín mjög mikið, elsku amma. Fyrir nokkrum árum fórstu með okkur niður á reka. Þú, mamma, Sigrún, ég og stelpurnar mínar og Axel. Hitinn var yfir 20 gráður og ég á svo fallega mynd af ykkur sitjandi á rekadrumbi. Þær voru ófáar ferðirnar niður á reka og alltaf var það jafn gaman. Þá rifjast upp fyrir mér þegar ég var barn var ég á bakinu á þér og þú að vaða með mig yfir á reka. Þetta er einn af fallegustu stöðum á landinu og kyrrðin sem getur skapast er dásamleg. Einnig fékk ég að fara með þér í sauðburðinn og mér þykir enn það vera afskaplega róandi stund að liggja í jötu um nótt að bíða eftir kind við það að bera, hlusta á jarmið og einstaka lamb nartar í mann ef það hefur kjark- inn til. Elsku amma, ég vona að þú sért á svona stað og sameinuð á ný með afa sem dó svo ungur. Ásdís Linda Sverrisdóttir. Sigríður Guðný Bjarnveig Georgsdóttir ✝ Erla KristólínaSigurðardóttir, fæddist í Ásbergi á Skagaströnd 4. des- ember 1926. Hún lést á sjúkrahúsi Akureyrar 24. júní 2016. Foreldrar henn- ar voru Sigurður Sölvason, kaup- maður á Skaga- strönd, f. 14.1. 1898, d. 24.9. 1968, og Ragnheiður Árnadóttir, f. 8.5. 1895, d. 14.4. 1935. Seinni kona Sigurðar var Margrét Konráðsdóttir, f. 2.10. 1899, d. 1974. Bræður Erlu voru Árni Melsteð, f. 18.8. 1925, d. 4.10. 2013, og Hallgrímur, f. 7.8. 1928, d. 1.8. 1981. Fjögurra ára fór Erla í fóstur vegna veikinda móður sinnar til Ingunnar Þorvaldsdóttur og Magnúsar Tómassonar, sem var hálfbróðir Ragnheiðar móður hennar, þau bjuggu á Skeggja- stöðum A-Húnavatnssýslu. Þessi góðu hjón og afkomendur voru hennar önnur fjölskylda. Erla giftist 2. júní 1947 Ólafi Guðmundi Guðmundssyni, f. Arnór, Freyja Rós, Hrefna Dís og Brynja Rún. Jóna Gígja, f. 1978, maki Björn Huldar Björnsson, synir þeirra: Aron Hafliði, Guð- mundur Heiðar og Hákon Harri. Ólöf Elsa, f. 1986, sambýliskona Ylfa Lárusdóttir. Margrét Sig- rún, f. 1954, maki Sigurður Pétur Ingólfsson, f. 1953, börn þeirra: Pétur Eyfjörð, f. 1974, maki Agnes Björnsdóttir, þeirra börn: Aron Vikar, Veigar Leví og Em- ilía Von. Erlingur, f. 1976, maki Thelma Guðjónsdóttir, dóttir þeirra: Dagný Sara. Áður átti Er- lingur Jón Pétur með Maríu Lillý Jónsdóttur sambýliskonu. Sigríð- ur Soffía, f. 1988, maki Maríusz Kulesza, börn þeirra Natalía Perla og Alexander Pétur. Gunn- laug Jóna, f. 1955. Sigfús, f. 1966, dóttir Sara, móðir Jóna Guð- mundsdóttir. Erla ólst upp á Skeggjastöð- um A-Húnavatnssýslu. 15 ára fór hún til föður síns á Skaga- strönd og vann hjá honum, fór síðan til Reykjavíkur og vann þar, m.a. á saumastofu og lærði kjólasaum á Húsmæðraskóla Blönduóss. Hún var mjög hand- lagin og mikil hannyrðakona. Erla starfaði að heimili sínu og sem kirkjuvörður í 45 ár og þreif hjá embætti sýslumanns í 18 ár. Útför Erlu fer fram frá Ólafs- fjarðarkirkju í dag, 13. júlí, klukkan 14. 19.8. 1911, d. 24.8. 1988, sjómanni, síð- ar starfsmanni Pósts og síma og kirkjugarðsverði Ólafsfirði. For- eldrar hans voru Guðmundur Steins- son, f. 15.10. 1871, d. 11.7. 1960, og Að- albjörg Þórey Ólafs- dóttir, f. 19.2. 1877, d. 8.4. 1961. Erla og Ólafur bjuggu alla tíð í Kirkjuvegi 5, Ólafsfirði, og eign- uðust sex börn: Aðalbjörg Þórey, f. 1949, maki Gísli Þ. Elíasson, f. 1951. Ragnar Sigurður, f. 1950, maki Svandís Júlíusdóttir, f. 1949, dætur þeirra: Erla, f. 1975, maki Adam Chapman, börn þeirra Tristan, Mia Sol og Ynja. Harpa, f. 1979, maki Danny Win- andy. Sonur þeirra Gabriel. Áður átti Ragnar Sigurður Kristjönu, f. 1974, móðir Björk Þorgríms- dóttir, f. 1953, d. 2013. Dóttir Kristjönu er Signý Eir, f. 24.2. 2001. Guðmundur, f. 1952, maki Hafdís E. Jónsdóttir, f. 1953, dæt- ur þeirra: Díana, f. 1977 maki Héðinn Jónsson, börn þeirra: Jón Mamma, elsku mamma man ég augun þín í þeim las ég alla elskuna til mín. Mamma, elsku mamma man ég þína hönd bar hún mig og benti björt á dýrðarlönd. Mamma, elsku mamma man ég brosið þitt; gengu hlýir geislar gegnum hjarta mitt. Mamma, elsku mamma, mér í huga skín bjarmi þinna bæna, blessuð versin þín. Mamma, elsku mamma, man ég lengst og best hjartað blíða, heita, hjarta er sakna ég mest. (Sumarliði Halldórsson.) Móðir okkar var einstök kona, hún var kletturinn í lífi okkar, ávallt til staðar í gleði og sorg. Hún tranaði sér aldrei fram, var kærleiksrík, réttlát og þakklát. Hún hafði létta lund og var mikill gleðigjafi. Móðir okkar naut lífs- ins og gladdist yfir hverjum degi sem hún tók á móti með bros á vör og þakkaði fyrir að kvöldi. Hún hafði mikla ánægju af að fá ættingja þeirra pabba og vini í heimsókn, enginn kom að tómum kofanum hjá henni. Hún var hús- móðir af gamla tímanum, smá- kökusortirnar voru á annan tug hér á árum áður. Og ekki var hægt að sleppa bakstri fyrir páska því þá styttist í komu sum- argestanna. Það var mikið um að vera fyrir hver jól, saumavélin tekin fram á kvöldin og tifaði fram á nótt, þá urðu til kjólar, buxur, skyrtur, vesti, náttföt og fleira. Ekki má gleyma dásam- lega rúgbrauðinu hennar og flat- kökunum hennar sem hún bakaði og pabbi hljóp með út um allan bæ til að gleðja ættingja og vini, oft var lítið eftir handa heimilis- fólkinu en þá var bara að baka meira. Svo voru rúllur og perm- anent sett í hár nágranna- og vin- kvenna, mamma hafði alltaf tíma fyrir aðra. Ólafur faðir okkar var heima á sínum banabeði og annaðist hún hann í veikindum hans. Æðru- leysi og andlegur styrkur ein- kenndi hana í veikindum hennar, sagði alltaf allt gott, þegar hún var spurð um líðan sína. Ein af hjúkrunarfræðingunum sem önnuðust móður okkar í veikind- um hennar sagði að við ættum einstakt eintak af móður og voru það sannarlega sönn orð. Ömmubörnin kvaddi hún, hvert af öðru með fallegum ósk- um út í lífið. Elsku móðir okkar, við erum svo óendanlega stolt af þér. Hjartans þakkir fyrir allt og allt. Við elskum þig og söknum. Blessuð sé minning þín. Guð geymi þig. Þórey og systkini. Elsku amma okkar. Hér að hinstu leiðarlokum ljúf og fögur minning skín. Elskulega amma góða um hin mörgu gæði þín. Allt frá fyrstu æskudögum áttum skjól í faðmi þér. Hjörtun ungu ástúð vafðir okkur gjöf sú dýrmæt er. Hvar sem okkar leiðir liggja lýsa göfug áhrif þín. Eins og geisli á okkar brautum amma góð, þótt hverfir sýn. Athvarf hlýtt við áttum hjá þér ástrík skildir bros og tár. Í samleik björt, sem sólskinsdagur samfylgd þín um horfin ár. Fyrir allt sem okkur varstu ástarþakkir færum þér. Gæði og tryggð er gafstu í verki góðri konu vitni ber. Aðalsmerkið: elska og fórna yfir þínum sporum skín. Hlý og björt í hugum okkar hjartkær lifir minning þín. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Elskum þig og söknum. Blessuð sé minning þín. Sara og Sigríður Soffía. Erla Kristólína Sigurðardóttir Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, PÉTUR PÉTURSSON múrari, lést á dvalarheimilinu Kumbaravogi, Stokkseyri, laugardaginn 9. júlí. Útför hans fer fram frá Stokkseyrarkirkju föstudaginn 15. júlí klukkan 15. . Birkir Pétursson, Ragnheiður Hallgrímsdóttir, Agnar Pétursson, Hjördís Þorfinnsdóttir, Gylfi Pétursson, Hafdís Sigurðardóttir og fjölskyldur. Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, VALGARÐ BIRKIR GUÐMUNDSSON frá Tunguhlíð, lést á Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Sauðárkróki 9. júlí. Útförin fer fram frá Mælifellskirkju þriðjudaginn 19. júlí kl. 14. . Rut Valdimarsdóttir, Gunnar Valgarðsson, Sigríður Kr. Jónsdóttir, Valdimar Valgarðsson, Sigurjón Valgarðsson, Bogdís Hermannsdóttir, Guðbjörg Ósk Valgarðsdóttir, Jakob Einarsson, börn og barnabörn. Yndisleg eiginkona mín, móðir okkar og dóttir, SOFFÍA GUÐMUNDSDÓTTIR kennari og söngkona, er látin. Jarðarförin fer fram frá Hallgrímskirkju miðvikudaginn 20. júlí klukkan 15. . Sverrir Bergmann, Berglind Bergmann, Hanna Soffía Bergmann og Sigríður Kristjánsdóttir. Móðir okkar, ÞÓRA SIGURJÓNSDÓTTIR, Lækjarbakka, Flóahreppi, lést fimmtudaginn 7. júlí. Útför hennar fer fram frá Selfosskirkju föstudaginn 15. júlí klukkan 11. . Börn og fjölskyldur hinnar látnu. Ástkær eiginkona mín og móðir okkar, GUÐRÚN BIRNA WENDEL ÓLAFSDÓTTIR sagnfræðingur og kennari, Langagerði 114, Reykjavík, lést 28. júní. Útförin fór fram í kyrrþey. Þökkum auðsýnda samúð, . Þór Jes Þórisson, Daníella Jóhanna Þórsdóttir, Michael Jes Þórsson, Theodór Wendel Þórsson. Ástkær sambýlismaður minn, faðir okkar, sonur, bróðir og mágur, JÓHANNES HILMAR JÓHANNESSON, Sóltúni 2, Garði, lést af slysförum fimmtudaginn 7. júlí. Útför fer fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju laugardaginn 16. júlí klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hans er bent á söfnunarreikning sem stofnaður hefur verið fyrir fjölskyldu hans: R.nr. 0542-14-405500, kt. 080282-3629. . Jóna Rut Gísladóttir, Sólveig A. Jóhannesdóttir, Jóhannes K. Jóhannesson, Ólafur G. Jóhannesson, Jóhannes K. Jóhannesson, Þórey Á. Hilmarsdóttir, Guðrún Inga Jóhannesd., Arnoddur Þ. Jónsson, Katrín Ósk Jóhannesd.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.