Morgunblaðið - 13.07.2016, Page 27

Morgunblaðið - 13.07.2016, Page 27
vímuvarnarfulltrúi bæjarfélagsins, sat í stjórn Sjálfstæðisfélags Garðabæjar, í foreldraráði Garða- skóla og formaður þess 1993-94 og sat í sóknarnefnd Garðasóknar um árabil. Arthur hefur verið félagi Lions- klúbbs Garðabæjar frá 1975, hefur setið í stjórn umdæmis og fjöl- umdæmis hreyfingarinnar um ára- bil, var fíkniefnavarnarfulltrúi hreyfingarinnar um árabil og kom þá að stofnun foreldrasamtakanna Vímulaus æska, sat þar í stjórn um árabil, var lengi alþjóðasam- skiptastjóri Lionshreyfingarinnar og leiddi á þeim tíma, ásamt fé- lögum sínum, Agli Skúla Ingi- bergssyni, fyrrv. borgarstjóra, og Jóni Bjarna Þorsteinssyni lækni, uppbyggingu á heimili fyrir fjöl- fötluð börn í Friazino í úthverfi Moskvuborgar. Þá vann Arthur með norrænum Lionsfélögum að byggingu heimilis fyrir aldraða í Póllandi og endurnýjun á sjúkra- rúmum fyrir þvagfæradeild Há- skólasjúkrahússins í Gdansk í Pól- landi. Hann veitti forstöðu nefnd sem kom kennsluverkefninu „Að ná tökum á tilverunni“ inn í flesta grunnskóla. Alþjóðaforseti Lions veitti Arthuri æðstu orðu hreyf- ingarinnar fyrir þessi störf hans. Hann var gerður að Melvin Jones- félaga. Arthur hefur sótt kúrsa í kristinni sálgæslu hjá Institut om Sjelesorg í Modum Bad í Noregi. Í dag er Arthur í hópi félaga sem æfa reglulega á Reykjalundi og kallast Borg Klúbburinn. „Nú snýst lífshamingjan um það að sinna börnum, barnabörnum og langafabarni og dunda sér jafn- framt við skógrækt og sumarhús fjölskyldunnar í Svínadalnum.“ Fjölskylda Arthur kvæntist 27.10. 1962 Dröfn Hafsteinsdóttur Farestveit, f. 27.6. 1941, hússtjórnarkennara og fyrrv. bæjarfulltrúa í Garðabæ. Hún er dóttir Hafsteins Guð- mundssonar bókaútgefanda og Ólafíu Jóhannsdóttur húsfreyju. Fósturfaðir Drafnar: Karl Einars- son kaupmaður. Arthur kynntist konunni sinni á Héraðsskólanum að Núpi, þá 15 ára, og hafa þau verið saman síðan. Börn Arthurs og Drafnar eru: 1) Ólöf Ásta Farestveit, f. 17.5. 1969, uppeldis- og afbrotafræð- ingur og forstöðumaður Barna- hússins, gift Þráni B.J. Farestveit, afbrotafræðingi og framkvæmda- stjóra Verndar, en börn þeirra eru Bjarni Farestveit, f. 1990, og dótt- ir hans er Fjóla Sif, og Dröfn Farestveit, f. 1996; 2) Einar Farestveit, f. 5.10. 1970, lögmaður með LLM-próf í Evrópurétti og hluthafi í Lögmenn Höfðabakka, kvæntur Elfu Björk Guðnadóttur Farestveit sjúkraliða og eru börn þeirra Arthur Knut Farestveit, f. 1995, Jóhann Karl Farestveit, f. 2000, og Hákon Ingi Farestveit, f. 2004, 3) Anna Sif Farestveit, f. 21.4. 1978, guðfræðingur og deild- arstjóri á leikskóla, gift Daníel Sigurðssyni, sölumanni hjá BL, og eru börn þeirra Eldar Daníelsson, f. 2004, Freyja f. 2006, og Hlynur, f. 2013. Foreldrar Arthurs: Einar Farestveit, f. 9.4. 1911, d. 14.8. 1994, forstjóri í Reykjavík, og k.h., Guðrún Sigurðardóttir, f. 7.12. 1914, d. 11.12. 1996, húsfreyja. Klara Andrea Farrestsveit klæðskeri í BergenÚr frændgarði Arthurs Farestveit Arthur Farestveit Jóhanna Guðmundsdóttir húsfr. á Kambshóli Benóný Jónsson b. á Torfastöðum og Kambshóli Steinvör Helga Benónýsdóttir húsfr. á Hvammstanga Sigurður Pálmason kaupm. á Hvammstanga Guðrún Sigurðardóttir húsfr. í Rvík Sigríður Gísladóttir húsfr. áÆsustöðum Pálmi Sigurðsson b. áÆsustöðum í Langadal, systursonur Jóns, alþm. í Stóradal, afa Jóns Leifs tónskálds Alfreð Farestveit yfirvélstjóri á Sogni Sigríður Sigurðardóttir húsfr. í Borgarnesi Björk Halldórsdóttir húsfr. í Borgarnesi Benný Sigurðardóttir hússtjórnarkennari Knut Farestveit yfirtæknifr. hjá Rubbestadnesed Klara Andrea Farrestsveit klæðskeri í Bergen Knut Farestveit b. á Beach í Norður-Dakota í Bandaríkjunum Anna Olavsdottir Helland Farestveit húsfr. frá Farestveit Knutson Farestveit óðalsb. á Farestveit í Modalen á Hörðalandi í Noregi Einar Farestveit framkvæmdastj. í Rvík Kari Andersdóttir Nygard Knut Nilsson Farestveit bóndi Farestveit Modalen Pálmi Sigurðsson b. á Hvammstanga Anne Marie Pálmadóttir húsfr. á Hvammstanga ÍSLENDINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLÍ 2016 Hákon fæddist í Reykjavík 13.7. 1907, sonur dr. Ágústs H. Bjarna- son, heimspekings, prófessors og há- skólarektors, og k.h. Sigríðar Jóns- dóttur, kennari við Kvennaskólann. Ágúst var sonur Hákonar Bjarna- sonar, kaupmanns á Bíldudal, og k.h., Jóhönnu Kristínar Þorleifs- dóttur, en Sigríður var dóttir Jóns Ólafssonar, ritstjóra og alþingis- manns, og Helgu Eiríksdóttur hús- freyju. Hálfbróðir Jóns, samfeðra, var Páll Ólafsson skáld. Hákon var tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Guðrún Magnúsdóttir og eignuðust þau eina dóttur, Ingu deildarstjóra. Þau slitu samvistum. Síðari kona hans var Guðrún Bjarnason og eignuðust þau fjögur börn: Laufeyju kennara; Ágúst grasafræðing; Björgu flugfreyju og Jón Hákon, skógtæknifræðing og skrúðgarðyrkjumeistara. Hákon lauk stúdentsprófi frá MR 1926, prófi í skógrækt frá Landbún- aðarháskólanum í Kaupmannahöfn 1932, og stundaði framhaldsnám í Englandi og í Stokkhólmi. Að námi loknu varð hann fram- kvæmdastjórn Skógræktarfélags Ís- lands og var skipaður skógræktar- stjóri ríkisins 1935. Enginn einn maður hefur unnið ís- lenskri skógrækt jafn mikið og Hákon. Hann gegndi æðstu emb- ættum er lúta að skógrækt hér á landi allan sinn starfsferil til 1977. Skógræktarhugsjónin átti oft undir högg að sækja og harða andstæð- inga hér á landi, ekki síst meðal mál- svara hefðbundins landbúnaðar. Þá kom oftast til kasta Hákonar að verja hugsjón sína. Hann var fyrsti hámenntaði skógræktarsinninn, vissi og benti á að Ísland væri í barr- skógabeltinu og fann plöntur í Kan- ada og Alaska, s.s. ösp, lúpínu og sitkagreni sem hafa þrifist mjög vel við íslenskar aðstæður. Hákon var skapmikill og stjórn- samur baráttumaður. En það var fyrst og fremst þekking hans og vís- indaleg vinnubrögð sem urðu til þess að hugsjón hans varð á endanum ofan á. Hákon lést 16.4. 1989. Merkir Íslendingar Hákon Bjarnason 90 ára Ingibjörg Finnbogadóttir Sigurður Sighvatsson Sveinn B. Ólafsson 85 ára Birgir Bjarnason Jóhanna G. Tómasdóttir 80 ára Bjarni Guðmundsson Rannveig Ingvarsdóttir 75 ára Arthur Knut Farestveit Ágústa B. Árnadóttir Guðný Jónsdóttir Jóhanna Ragnarsdóttir Reynir Skaftason 70 ára Anna Laxdal Agnarsdóttir Ása S. Gunnarsdóttir Dúfa Sylvía Einarsdóttir Jóhanna S. Guðbjörnsdóttir Jónína Eggertsdóttir Ólöf Sigríður Rafnsdóttir Sigrún B. Magnúsdóttir Sigurður Gunnarsson Þorgrímur Stefánsson 60 ára Anna G. Aðalsteinsdóttir Björn Aðalsteinsson Gunnar Leifsson Gunnlaugur K. Jónsson Hallur Þórmundsson Jón Rafnar Þórðarson Kristín Helga Gísladóttir Lára Sif Lárusdóttir Magnea Ragnarsdóttir Ólafur Arthúrsson Ólína Kristín Austfjörð Páll Vignir Héðinsson Sigríður Hrafnkelsdóttir Steinunn Ólafía Rasmus Þorlákur Jónsson 50 ára Aðalheiður Ásrún Ásgeirsdóttir Ársæll Magnússon Ásta Gunnarsdóttir Drífa Sigurðardóttir Guðmundur Arnar Jónsson Gústav Hjörtur Gústavsson Harry Jóhannes Harrysson Helgi Friðrik Halldórsson Hulda Pétursdóttir Margrét S. Sævarsdóttir Thanh The Duong Þröstur Ingi Antonsson 40 ára Alison Riggott Anna María Árnadóttir Bjarni Jakob Stefánsson Gísli Einar Sverrisson Gísli Rúnar Gíslason Guðni Þór Valþórsson Gunnar Trausti Daðason Gunnlaugur Kárason Hálfdán Gunnarsson Jón Þór Helgason Katarzyna Siwik Marzena Glodkowska Monika Marta Malesa Ólafur Örn Arnarson Pétur Már Guðmundsson Steinþór Björnsson Vilborg Daníelsdóttir Örvar Kærnested 30 ára Charlotte Sigrid á. Kósini Friðrikka Jóhanna Hansen Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir Lóa Júlía Antonsdóttir Nicholas Anthony Woods Ragnhildur Ýr Tryggvadóttir Sandra Dögg Jónsdóttir Sunna Magnúsdóttir Unnur Sigurðardóttir Til hamingju með daginn 30 ára Sunna býr í Hafn- arfirði, lauk prófi í við- skiptafræði, MSc-prófi í viðburðastjórnun frá há- skóla í Edinborg og rekur fyrirtækið Sterk liðsheild. Maki: Kristján Valgeir Þórarinsson, f. 1987, sér- fræðingur á fjármálasviði Landsvirkjunar. Dóttir: Karen, f. 2014. Foreldrar: Guðný Krist- mundsdóttir, f. 1947, og Magnús Guðmundsson, f. 1945. Sunna Magnúsdóttir 30 ára Jónína er frá Ísa- firði, býr í Reykjavík, lauk prófum frá Kvikmynda- skóla Íslands og starfar við kvikmyndatöku. Systkini: Sigrún Helga, f. 1976; Ásgeir Guðbjartur, f. 1977; Hákon Oddur, f. 1984; Alberta Gullveig, f. 1990, og Jóhann Gunnar, f. 1992. Foreldrar: Ragnheiður Hákonardóttir, f. 1954, og Guðbjartur Ásgeirsson, f. 1949. Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir 30 ára Friðrikka ólst upp í Reykjavík, býr þar, lauk MSc-prófi í verkfræði frá DTU í Kaupmannahöfn og er verkfræðingur hjá Vegagerðinni. Maki: Sigurður Bjarna- son, f. 1984, tölvunar- fræðingur. Foreldrar: Bjarney Ólafs- dóttir, f. 1952, hjúkrunar- fræðingur við LSH, og Richard A. Hansen, f. 1950, tæknifræðingur hjá Vegagerðinni. Friðrikka Jóhanna Hansen

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.