Morgunblaðið - 13.07.2016, Blaðsíða 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLÍ 2016
Bak við luktar dyr er fyrstabók höfundar og hefur húnhlotið lof fyrir. Bókin hefurverið gefin út í yfir 30 lönd-
um og á kápu segir að búið sé að selja
kvikmyndaréttinn að bókinni.
Í sögunni segir
frá hjónunum
Grace og Jack
sem virðast vera
hið fullkomna par,
myndarleg og vel
efnuð. Hann er
þekktur lögfræð-
ingur sem ver að-
eins konur sem
hafa orðið fyrir
heimilisofbeldi og
hefur aldrei tapað máli. Fyrir hjóna-
bandið var Grace í góðri vinnu en
sagði henni upp til að geta helgað sig
heimilinu og eiginmanninum. Grace á
systur, Millie, með Downs-heilkenni
sem dvelur í heimavistarskóla en inn-
an skamms á hún að flytja til þeirra.
Sambandið við Millie og flutningur-
inn er leiðarstef í sögunni og ekki að
ástæðulausu. Jack og Grace eru óað-
skiljanleg og afskaplega ástfangin að
því virðist en undir hinu fullkomna yf-
irborði er mikill óhugnaður sem kem-
ur smátt og smátt í ljós í sögunni.
Sagan byrjar vel, persónulýsingar
eru góðar og allt virðist stefna í góða
spennusögu. En eftir því sem á líður
er eins og höfundur missi tökin á við-
fangsefninu og lesandinn kemst ekki í
nánari kynni við persónurnar né betri
tengsl við líf þeirra. Framvindan
verður ósannfærandi og yfirborðs-
kennd og sagan einhvernveginn
rennur út í sandinn þó hún hafi allt til
brunns að bera.
Ekki er allt
sem sýnist
Skáldsaga
Bak við luktar dyr bmnnn
Eftir B.A. Paris
Þýðing Ingunn Snædal.
288 bls. Drápa, 2016.
INGVELDUR
GEIRSDÓTTIR
BÆKUR
Höfundurinn B.A. Paris.
Heimildarmyndin The Wall sigr-
aði sl. sunnudag í flokki mannrétt-
indakvikmynda á Galway-
kvikmyndahátíðinni sem haldin
var á Írlandi. Leikstjóri og fram-
leiðandi myndarinnar er David
Kinsella, en meðframleiðendur
eru Þórður Jónsson og Heather
Millard hjá Compass Films sem
m.a. framleiddi Garn.
Samkvæmt upplýsingum frá
Þórði var myndin að stórum hluta
tekin upp í Norður-Kóreu. „Leik-
stjórinn David Kinsella fór til N-
Kóreu til að gera heimildarmynd
um landið en það sem mætti hon-
um þar var ein stærsta sviðsetn-
ing sem um getur, fleiri hundruð
leikarar voru fengnir til að reyna
að hylja hið raunverulega ástand
þar.
Allt myndefni sem tekið var upp
þar var ritskoðað í lok dags og
fylgdu verðir kvikmyndatökulið-
inu eftir við hvert fótmál. Það var
því ljóst að eitthvað þyrfti að gera
til að sýna hina sönnu N-Kóreu.
Leikstjórinn ákvað því að segja
sína sögu frá því að hann var ung-
ur drengur á Norður-Írlandi og
flétta hana saman við N-Kóreu, en
til að sýna ástandið í N-Kóreu
voru fengnir íslenskir teiknarar
sem blönduðu teiknimyndum sam-
an við myndefnið til að sýna hina
sönnu N-Kóreu,“ segir Þórður.
The Wall vann til verðlauna á Írlandi
Sviðsetning Tiago Forte hannaði vegg-
spjaldið fyrir heimildarmyndina The Wall.
„Hér á Gásum munu næstu daga
hljóma hamarshögg eldsmiða, há-
reysti kaupmanna og sverðaglamur
bardagamanna,“ segir Ragna
Gestsdóttir, starfsmaður Minja-
safnsins á Akureyri og verk-
efnastjóri Miðaldadaga á Gásum
sem hefjast á föstudaginn kemur
og standa til sunnudagsins 17. júlí
milli kl. 11 og 17 dag hvern.
Að sögn Rögnu hefur Minjasafn-
ið á Akureyri árlega staðið fyrir
Miðaldadögum á Gásum frá því upp
úr síðustu aldamótum. „Forn-
leifauppgröfturinn sem fór fram á
Gásum á árunum 2001-2006 vakti
fólk til aukinnar meðvitundar um
gildi, sögu og mikilvægi Gása sem
verslunarstaðar,“ segir Ragna og
rifjar upp að Gásir hafi haft mikla
sérstöðu því þar var brennisteinn
unninn og fluttur úr landi, en á
meginlandi Evrópu var hann síðan
nýttur til púðurgerðar.
„Í dagskránni um helgina taka
alls þátt um 100 sjálfboðaliðar, sem
eru sérfræðingar á hinum ýmsu
sviðum miðaldamálefna. Allir klæð-
ar þeir búningum og skinnskóm í
samræmi við klæðaburð fólks á sín-
um tíma,“ segir Ragna og bendir á
að komið verði upp tilgátubúðum
sem endurspegli niðurstöður forn-
leifauppgraftarins. „Á miðöldum
var kaupstaður á Gásum aðeins yfir
sumartímann. Menn bæði grófu
niður og hlóðu veggi og tjölduðu
yfir til sumarsetu. Við endur-
sköpum svona svæði aðeins til hlið-
ar við fornleifasvæðið, því það eru
auðvitað friðlýstar fornminjar,“
segir Ragna og bendir á að gestir
hátíðarinnar geti heimsótt tilgátu-
svæðið sem iði af lífi en einnig sé
boðið upp á leiðsagnir um minja-
svæðið sjálft þar sem hinar fornu
tóftir verslunarstaðarins eru vel
sýnilegar.
„Á tilgátusvæðinu verður til sýn-
is og sölu handverk sem byggist allt
á miðaldahandbragði, búið verður
til reipi og það litað með jurtalitum,
brennisteinn verður hreinsaður,
unnin verða kol, víkingar munu
berjast og menn verða settir í gapa-
stokkinn,“ segir Ragna og bendir á
að Grettir Ásmundarson muni birt-
ast og segja fólki sögu sína, en með
hlutverk Grettis fer Elfar Logi
Hannesson frá Kómedíuleikhúsinu.
Allar nánari upplýsingar um dag-
skrá helgarinnar má sjá á vefnum
gasir.is og á Facebook-síðu hátíðar-
innar: Miðaldadagar á Gásum.
Hamarshögg og
sverðaglamur
Miðaldadagar á Gásum við Eyjafjörð
Fjör Skipuleggjendur Miðaldadaga á Gásum eiga von á þrjú þúsund gestum
um helgina, enda veðurspáin góð. Gásir eru 11 km norðan við Akureyri.