Morgunblaðið - 13.07.2016, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 13.07.2016, Qupperneq 33
MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLÍ 2016 Spænski leikar- inn Javier Bar- dem hyggst mögulega taka að sér hlutverk skrýmslis Fran- kenstein í nýrri röð kvikmynda á vegum Universal Studios. Frá þessu greinir tímaritið Variety. Bardem er hvað þekktastur fyrir leik sinn í No Country for Old Men en frammi- staðan skilaði honum Óskars- verðlaunum fyrir bestan leik í aukahlutverki. Orðaður við hlut- verk skrýmslis Javier Bardem The Infiltrator Myndin byggist á samnefndri bók Roberts Mazur um þátt hans í því að fletta ofan af peningaþvætti eit- urlyfjahrings og þá sérstaklega þeim fjármálastofnunum sem Pablo Escobar notaði. Leikstjóri er Brad Furman, en meðal leikara eru Bryan Cranston, John Leguizamo, Diane Kruger, Benjamin Bratt og Olympia Dukakis. Rotten Tomatoes: 80% Metacritic: 63/100 Ísöld: Ævintýrið mikla Fimmta og síðasta teiknimyndin um Manna loðfíl og vini hans sem nú kljást við upphafið á endalokum ísaldar. Myndin er sýnd bæði með íslenskri og enskri talsetningu og í þrívídd á íslensku. Meðal leikara sem ljá ensku talsetningunni raddir sínar eru Ray Romano, Adam De- vine og Jennifer Lopez, en meðal ís- lenskra leikara eru Felix Bergsson, Ólafur Darri Ólafsson, Vigdís Hrefna Pálsdóttir og Salka Sól. Rotten Tomatoes: 18% Metacritic: 44/100 Now You See Me 2 Ári eftir að töfrabragðahópnum The Four Horsemen tókst að hefna dauða föður eins úr hópnum er komið að næsta verkefni. Að þessu sinni kúgar tæknisnillingurinn og auðjöfurinn Walter Mabry hópinn til að fremja fyrir sig illframkvæm- anlegt rán á hátæknibúnaði. Leik- stjóri hasarmyndarinnar er Jon M. Chu, en meðal leikara eru Mark Ruffalo, Jesse Eisenberg, Woody Harrelson, Morgan Freeman, Lizzy Caplan, Michael Caine og Daniel Radcliffe. Rotten Tomatoes: 33% Metacritic: 47/100 Bíófrumsýningar Hættuleg afhjúpun, hvellur og rán Par Diane Kruger og Bryan Cranston sem Kathy Ertz og Robert Mazur. » Ungfónía, Sinfóníuhljómsveitar unga fólksins,spilaði á tónleikum í Langholtskirkju í gær- kvöldi undir stjórn Gunnsteins Ólafssonar sem verið hefur aðalhljómsveitarstjóri sveitarinnar frá stofnun hennar 2004. Á efnisskránni voru Íslensk svíta eftir Mist Þorkelsdóttur sem samin var 1994 og 1. sinfónía Gustavs Mahler sem frumflutt var árið 1889. Um sextíu hljóðfæraleikarar á aldrinum 13-25 ára tóku þátt í flutningnum sem gladdi tónleikagesti. Efnisskráin var fyrst flutt á tónleikum á Þjóðlagahátíðinni á Siglufirði sl. sunnudag. Sinfóníuhljómsveit unga fólksins kom fram á tónleikum í Langholtskirkju Ungfónía Hér er unga fólkið í Sinfóníuhljómsveit unga fólksins að koma sér fyrir áður en tónleikar hefjast. Gaman Allir virtust vera ánægðir með það sem fyrir augu og eyru bar, enda hæfileikafólk í Ungfóníu. Hér eru þau Mist, Holly, Ari og Jeff . Kynslóðir Fólk á öllum aldri mætti á tónleikana, hér eru þau saman Rann- veig Sigurbjörnsdóttir, Þorkell Helgi Sigfússon og Barbara Sigurbjörnsson. Sátt Tónlistarfólkið Bára Grímsdóttir, Chris Foster og Julia Dawson mættu til að hlusta á íslensku svítuna og 1. sinfóníu Gustavs Mahlers. Kátar Þær Rósa Jónsdóttir og Eygló Ingadóttir voru hressar. Morgunblaðið/Þórður NÁTTÚRU KRAFTUR Trek protein stykki, heldur þér gangandi THE INFILTRATOR 5, 8, 10:35 ÍSÖLD ÍSL.TAL 3:50, 5:50 MIKE AND DAVE 8, 10:10 INDEPENDENCE DAY 2 8 LEITIN AÐ DÓRU ÍSL.TAL 3:50, 5:50 WARCRAFT 2D 10:30 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar Miðasala og nánari upplýsingar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.