Ægir - 01.06.2016, Blaðsíða 14
14
„Nú loksins eftir mikinn undir-
búning er fjármögnun fiskeldis-
fyrirtækisins Matorku til veru-
legrar uppbyggingar fiskeldis-
stöðvar í Grindavík lokið. Búið
er að bjóða út verkið vegna
hennar og það er Ístak sem
mun reisa mannvirkin með okk-
ur og væntanlega byrja á næstu
vikum. Hin nýja eldisstöð mun
fullbyggð búa til 40 ný störf og
afla um 20 milljóna dollara í er-
lendum gjaldeyri fyrir þjóðar-
búið,“ segir Árni Páll Einarsson,
framkvæmdastjóri Matorku.
Nú nýverið lauk félagið við
sölu á 5,5 milljónum dollara af
hlutafé, sem mun gefa því
burði til þess að byggja fyrri
hluta nýju eldisstöðvarinnar, en
í viðbót við þetta nýja hlutafé
hefur félagið einnig tryggt sér
aðgang að lánsfjármögnun.
Meirihluti fjárfestanna í þessu
hlutafjárútboði eru erlendir fag-
fjárfestar.
Skapa alvöru fjöleldisfyrirtæki
Áætlað er að fyrstu ker nýju
stöðvarinnar verði tilbúin í byrj-
un 2017, og að slátrun hefjist
seinna sama ár. Nýverið keypti
Matorka einnig eldistöðina við
Húsatóftir í Grindavík til að auð-
velda uppbyggingu og betrum-
bæta framleiðslukerfi félagsins
á Reykjanesi.
„Við erum fiskeldisfélag sem
var stofnað 2010 en kom undir
sameiginlegt erlent eignarhald
2012 með móðurfélag í Sviss.
Það er í rauninni arfleifð af
gjaldeyrishöftum hér á Íslandi,
en þá töldu erlendu fjárfestarn-
ir að betra væri að vera með
eignarhaldsfélag í Sviss, fremur
en að leggja fjármagn beint inn
í íslenskan atvinnurekstur. Í dag
er potturinn og pannan í rekstr-
inum Matorka ehf. Félagið hef-
ur verið rekið í þessu formi frá
árinu 2012 en er í rauninni allar
götur síðan búið að vinna í því
að auka framleiðslu á sinni
helstu eldisafurð, sem er bleikja
og bæta við eldi á laxi og skapa
þannig alvöru fjöleldisfyrir-
tæki,“ segir Árni Páll.
Matorka í dag er í rauninni
lítið félag með seiðastöð í Fells-
múla í Landssveit og takmark-
aða framleiðslu á bleikju. Fisk-
eldi almennt byggist á seiða-
framleiðslu og síðan áframeldi
seiðanna. Þetta eru í raun nokk-
uð ólíkir þættir. Annars vegar er
verið að klekja út hrognum og
koma seiðunum á sporð og
hins vegar er mikil fóðrun á fiski
til að ná sláturstærð og mark-
aðssetja hann.
Góð staðsetning í Grindavík
„Okkur hefur alltaf vantað góða
áframeldisstöð sem hefur að-
gang að nægu fersku vatni,
jarðsjó fyrir laxinn og jarð-
varma. Maður vill svo helst
vera vel tengdur góðu sam-
gönguneti. Þetta allt fundum
við koma saman í Grindavík, sér
í lagi með samningi okkar við
HS Orku um affallið úr virkjun-
inni í Svartsengi. Þar fengum
við jarðvarmann og svo er mik-
ið vatn á svæðinu. Samgöngur
eru mjög góðar, stutt í Sunda-
höfn og upp á Keflavíkurflug-
völl til flutninga um heiminn og
svo greitt aðgengi að þjónustu
og aðföngum úr Reykjavík og af
Reykjanesi.“
Stöðin verður vestan
Grindavíkurbæjar, nálægt golf-
vellinum að Húsatóftum. Þar er
búið að skipuleggja iðnaðar-
svæði þar sem uppbygging
Mat orku hefur bæði verið sam-
þykkt í deili- og aðalskipulagi.
„Við erum með lítið áfram-
eldi og útflutning og fram-
leiðslu fyrir innanlandsmarkað
rétt hjá seiðastöðinni okkar í
Landssveit. Við höfum verið að
framleiða 30 til 50 tonn á ári
undanfarin fimm ár, en höfum
ekki séð góða möguleika til
frekari uppbyggingar þar, því
þar er ekki allt til alls. Þar skortir
jarðvarma og jarðsjó. Þess
vegna höfum við einbeitt okkur
að uppbyggingu nýs áframeldis
í Grindavík.“
Uppbygging fiskeldis-
stöðvar Matorku í
Grindavík að hefjast
Árni Páll Einarsson, fram-
kvæmdastjóri Matorku.
F
isk
eld
i
NT 35/1 Tact
Ryksugar blautt og þurrt
Fylgihlutir
Barki 35mm 2,5m,
málmrör, 30mm
gólfhaus og mjór
sogstútur.
NT 45/1 Tact Te
Ryksugar blautt
og þurrt
Fylgihlutir
Barki 35mm 2,5m,
málmrör, 30mm
gólfhaus og mjór
sogstútur,
rafmagnstengill.
NT 55/1 Tact
Ryksugar blautt og þurrt
Fylgihlutir
2,5m 35mm barki, málmrör,
30mm gólfhaus og mjór
sogstútur.
NT 25/1 Ap
Ryksugar blautt
og þurrt
Fylgihlutir
Barki 35mm 2,5m,
málmrör, 30mm
gólfhaus og mjór
sogstútur. Takki
fyrir hreinsun
á síu.
Iðnaðarryksugur
Fyrir bæði blautt
og þurrt
Sjálfvirk
hreinsun á síu
Tengill
Skeifan 3E-F · Sími 581-2333 · rafver@rafver.is · www.rafver.is
K Ä R C H E R S Ö L U M E N N
V E R T U Á Ö R U G G U M S T A Ð