Ægir - 01.06.2016, Page 15
15
750 tonn í fyrsta áfanga
Fyrsti áfangi verður 1.500 tonn,
en þegar uppbyggingu verður
lokið miðað við núverandi leyfi
verður afkastagetan 3.000 tonn,
bæði lax og bleikja. Seiðafram-
leiðslan verður áfram að Fells-
múla þar sem smávegis selta er
í neysluvatninu í Grindavík, sem
hentar einkar illa fyrir seiða-
eldi,“ segir Árni Páll.
Á Íslandi eru nú framleidd
um 4.000 tonn af bleikju á ári,
en miðað við fyrsta áfangann
hjá Matorku verður framleiðsl-
an 750 tonn. Þannig verður
aukningin í framleiðslu á bleikju
í landinu um 15-20% með til-
komu eldis Matorku í Grindavík.
Þessi viðbót kemur inn á mark-
aðinn á næstu tveimur árum.
Fleiri munu vera að hugsa um
að auka sína framleiðslu því eft-
irspurn eftir bleikju er mikil en
framboð mjög takmarkað.
Keyptu eldisstöð að Húsatóftum
„Við höfum einnig keypt gamla
eldisstöð við Húsatóftir við
Grindavík og við setjum seiði í
þá stöð í næstu viku til áfram-
eldis. Þá verðum verðum við
með tiltölulega stór seiði sem
koma úr Húsatóftum í nýju
stöðina. Fyrstu kerin í henni
ættu að vera tilbúin strax í byrj-
un næsta árs, líklega febrúar. Þá
setjum við stór seiði í nýju stöð-
ina og getum byrjað að slátra
úr þeirri stöð seinnihlutann á
næsta ári. Þar sem við erum nú
þegar með seiðastöð í gangi
verður uppbyggingin hjá okkur
hröð miðað við önnur eldisfyrir-
tæki, sem þurfa í raun og veru
að hefja starfsemina með því að
byggja sér seiðaeldisstöð og
fara svo ala seiðin. Við höfum
þarna það forskot að vera fyrir
löngu byrjaðir á seiðaeldinu fyr-
ir stöðina sem nú er að fara að
rísa,“ segir Árni Páll.
Dýr fiskur
Bleikjan er mjög eftirsóttur fisk-
ur bæði vestan hafs og í Evrópu
og er stærri fiskur sérstaklega
eftirsóttur. „Eftirspurn eftir
smárri bleikju er minni en það
er oft sem framleiðendur leggja
upp með að fá stóran fisk út úr
eldinu en sitja svo uppi með til-
tölulega smáa bleikju. Fyrir vik-
ið er mun minna um stóra og
fallega bleikju. Þá er ég að tala
um bleikju sem er komin upp í
1,5 kíló eða meira við slátur-
stærð.
Bleikjan er bæði seld í sér-
hæfðum góðum fiskbúðum og
stórmörkuðum, en fer einnig á
fínni veitingastaði. Þetta er dýr
fiskur og það er einmitt þess
vegna sem við erum að fram-
leiða hana.
Okkur er mjög annt um um-
hverfismálin, en í því felast eng-
ar öfgar. Markaðurinn er alltaf
að gera kröfu um umhverfis-
væna framleiðslu og við erum
einfaldlega að svara þeim.
Markaðurinn fyrir umhverfis-
vænar vörur borgar betur og
sjálfbærni verður síaukin krafa,“
segir Árni Páll.
Miklir markaðir fyrir laxfiska
Heildar laxfiskamarkaðurinn er í
dag um 3 milljónir tonna, og
þar eru atlantshafslax, urriði og
kyrrahafslax stærstir. Bleikja og
chinook lax eru mun smærri
hlutar af laxfiskamarkaðnum.
Markaðssvæðin eru í raun um
allan heim. N-Ameríka, Evrópa,
Rússland, Asía, Eyjaálfa og Lat-
neska Ameríka eru allt markaðir
sem hafa tileinkað sér töluverða
neyslu á undanförnum áratug-
um. Eldislaxfiskur er orðinn
meirihlutinn af framboði á lax-
fiskamarkaðnum, en þó nokkuð
er um villtan lax úr Kyrrahafi.
Eldisstöðin í Grindavík kemur til með að framleiða 750 tonn af bleikju í byrjun og eykur sú framleiðsla, ein og
sér, útflutning á bleikju frá Íslandi um 15-20% á ári. Fyrirtækið hefur hins leyfi fyrir allt að 3000 tonna fram-
leiðslu af bleikju og laxi í stöðinni í Grindavík.
Frystigámar / Sala og leiga 10 / 20 og 40 ft.
Seljum einnig og leigjum gámahús, geymslugáma og salernishús í
ýmsum stærðum og gerðum. Fjöldi sérlausna í boði, sniðnar að
þörfum hvers og eins viðskiptavinar.
Klettagörðum 5 | 104 Reykjavík | Sími 568 0100
www.stolpigamar.is
Hafðu
samband
568 0100