Ægir - 01.06.2016, Blaðsíða 16
16
Á því fiskveiðiári sem gekk í garð þann 1. september síðastliðinn
hefur Fiskistofa úthlutað aflamarki sem er alls 429.363 tonn, sem
er samdráttur um 16 þúsund tonn frá fyrra fiskveiðiári. Úthlutunin
fer fram á grundvelli aflahlutdeilda að teknu tilliti til 5,3%frádrátt-
ar fyrir jöfnunaraðgerðir, með sama hætti og á fyrra fiskveiðiári. Að
þessu sinni er úthlutað 369.925 tonnum í þorskígildum talið sam-
anborið við um 368.394 þorskígildistonnum í fyrra, reiknað í
þorskígildum fiskveiðiársins sem nú er gengið í garð. Aukning á
milli ára samsvarar því um 1.530 þorskígildistonnum. Síðar á ár-
inu verður úthlutað aflamarki í deilistofnum og ekki er óalgengt að
aukið sé við aflamark í uppsjávarfiski, samkvæmt upplýsingum
Fiskistofu. Þess vegna á heildaraflamark einstakra skipa og hafna
og innbyrðishlutfall þeirra eftir að breytast í kjölfar slíkra úthlut-
ana þegar líður á fiskveiðiárið.
Alls fá 504 skip úthlutað aflamarki að þessu sinni samanborið við
534 á fyrra fiskveiðiári. Það skip sem fær úthlutað mestu aflamarki
er Guðmundur í Nesi RE 13, en hann fær 8.324 þorskígildistonn eða
2,25% af úthlutuðum þorskígildum.
Úthlutun í þorski er rúmlega 194 þúsund tonn á fiskveiðiárinu
og eykst um tæp 4.000 tonn frá fyrra ári. Ýsukvótinn er 27.523 tonn
og dregst saman um rúm 1.400 tonn. Rúmlega 1.200 tonna sam-
dráttur er úthlutun á gullkarfa, 5.200 tonna samdráttur aflaheimilda
í löngu og 6.800 tonna samdráttur í úthlutun á íslenskri sumargots-
síld. Úthlutað aflamark er alls 429.363 tonn sem er um 16 þúsund
tonnum minna en á fyrra ári.
Bátum með krókaaflamark fækkar milli ára, þeir eru nú 281 en
voru 297 í fyrra. Skipum í aflamarkskerfinu fækkar um 14 á milli ára
og eru nú 223. Athygli vekur að togurum fækkar enn, þetta árið um
tvo en þeim hefur fækkað um 12 frá upphafi fiskveiðiársins
2013/2014 og eru þeir nú 43 í íslenska flotanum.
Samkvæmt útgerðarflokkun Fiskistofu fá skuttogarar úthlutað
rúmum 200 þúsund tonnum af því heildaraflamarki sem úthlutað
var að þessu sinni og skip með aflamark fá rúm 177 þúsund tonn.
Smábátar með aflamark og krókaaflamarksbátar fá tæp 50 þúsund
tonn. Vakin er athygli á því að krókaaflamarksbátar fá eingöngu út-
hlutað þorski, ýsu, ufsa, gullkarfa, löngu, keilu og steinbít.
Um 1570 þorskígildistonnum er úthlutað nú í upphafi árs sem
skel- og rækjubótum en það er svipað og í fyrra og fara þau til 30
báta samanborið við 32 báta á fyrra ári.
50 stærstu með 86,6%
Fimmtíu stærstu fyrirtækin fá úthlutað sem nemur um 86,6% af því
aflamarki sem úthlutað er og er það álíka og í fyrra. Aftur á móti hef-
ur fyrirtækjum eða lögaðilum sem fá úthlutað aflamarki fækkað
milli ára um 20 og eru nú 398 að tölu. HB Grandi er sem fyrr það fyr-
irtæki sem ræður yfir mestum aflaheimildum, eða 10,3% af heild, í
þorskígildum talið. Hlutfall fyrirtækisins var 10,12% í fyrra þannig að
það hefur lítillega aukið sína hlutdeild. Næst kemur Samherji Ísland
ehf. með 6% hlutdeild en hafði 5,94% í fyrra. Í þriðja sæti er svo Þor-
björn hf. í Grindavík með 5,5% af heildinni, sama hlutfall og í fyrra.
Þetta er óbreytt röð frá fyrra fiskveiðiári.
Raunar eru á eftirfarandi lista yfir 10 stærstu útgerðarfyrirtækin
öll þau sömu og á fyrra fiskveiðiári en breyting verður fyrst í 6. sæti
listans þar sem Vísir hf. var í fyrra en það fyrirtæki er nú 9. í röðinni
líkt og sjá má. Rammi hf. færist upp listann frá fyrra ári, sömuleiðis
Skinney Þinganes hf. en Brim hf. færist niður um eitt sæti. Nú gerist
það einnig að hlutfall þessara 10 stærstu fyrirtækja fer yfir 50% af
heildarúthlutuninni í þorskígildum, þ.e. þessi tíu fyrirtæki ráða nú
50,45% en höfðu 49,76% á liðnu fiskveiðiári.
Listi yfir 10 kvótahæstu fyrirtækin er þannig:
ÞÍG kg Hlutfall
HB Grandi hf. 38.222.229 10,33%
Samherji Ísland ehf. 22.314.608 6,03%
Þorbjörn hf 20.368.924 5,51%
FISK-Seafood ehf. 18.204.422 4,92%
Vinnslustöðin hf 15.219.257 4,11%
Rammi hf 15.201.178 4,11%
Skinney-Þinganes hf 15.053.558 4,07%
Brim hf 14.968.318 4,05%
Vísir hf 14.936.841 4,04%
Hraðfrystihúsið - Gunnvör hf 12.138.658 3,28%
Í höfninni í Ólafsvík.
K
v
ótin
n
2
0
1
6
-2
0
1
7
Aflaheimildir
nýs fiskveiðiárs