Ægir

Árgangur

Ægir - 01.08.2016, Blaðsíða 20

Ægir - 01.08.2016, Blaðsíða 20
20 „Ég hef tveggja áratuga reynslu í sýningarhaldi og tel að okkur hafi tekist að skapa þarna nýja fagsýningu í sjávarútvegi sem stenst fyllilega samanburð við erlendar sjávarútvegssýningar. Þar vitna ég til umsagna sýnenda sem margir hafa mikla reynslu af sýning- um á erlendri grundu og líka til viðtala við fjölda innlendra og er- lendra gesti,“ segir Ólafur M. Jóhannesson sem stóð að sýningunni Sjávarútvegi 2016 / Iceland Fishing Expo 2016 í Laugardalshöll í lok september. Þessi sýning er ný af nálinni og sóttu hana yfir 12.000 gestir, sem Ólafur segir framar björtustu vonum. Ákveðið er að næsta sýning verði í Laugardalshöll eftir þrjú ár. Jákvæð viðbrögð bæði sýnenda og gesta „Sýningin fékk einstaklega já- kvæð viðbrögð gesta og sýn- enda og margt sem kom á óvart svo sem hversu langt menn eru komnir hér varðandi tæknilausnir fyrir sjávarútveg. Bandaríski sendiherrann var gestur á sýningunni og var hann alveg orðlaus yfir tækninni sem þar mátti sjá. Hann er þekktur lögmaður í Bo- ston sem sérhæfir sig í að semja fyrir sprotafyrirtæki og þekkir því vel til nýsköpunar,” segir Ólafur aðspurður um umsagnir gesta. Sýningaraðstaðan í Laugar- dalshöll segir Ólafur að sé mun betri en í hefðbundnum íþróttahúsum. Sem dæmi þá sé Höllin sérhönnuð hvað varðar hljóðvist, sem skipti miklu máli S ý n in g a r Ólafur M. Jóhannesson, sýningarstjóri, fylgir forsetahjónunum Guðna Th. Jóhannessyni og Elizu Reid og Gunnari Braga Sveinssyni, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, í gegnum sýninguna við opnun hennar. Sýningin Sjávarútvegur 2016 „Markmiðið um vandaða fagsýn- ingu í sjávarút- vegi náðist“ segir Ólafur M. Jóhannesson, sýningarstjóri

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.