Ægir

Árgangur

Ægir - 01.08.2016, Blaðsíða 29

Ægir - 01.08.2016, Blaðsíða 29
29 „Mér hefur komið mest á óvart hversu mikill ávinningur er af sporðskurðinum og hann er meiri en ég þorði að vona. Flök- unin verður betri, flökunargall- ar mun minni og lægra hlutfall fer í marning og blokk. Sá fisk- ur sem annars fór í marning fer nú í þrefalt verðmætari afurð og það er mikill ávinningur í vinnslunni þegar upp er stað- ið,“ segir Unnsteinn Guðmunds- son í Grundarfirði um reynsluna af 4Fish sporðskurðarvélinni sem hann fann upp og hefur nú verið seld í 10 fiskvinnslur hér á landi. Vélin fékk árið 2014 við- urkenninguna Svifölduna, sem framúrstefnuhugmynd Sjávar- útvegsráðstefnunnar það árið og segir Unnsteinn að sú viður- kenning hafi skipt sig miklu máli. Engin töf af sporðskurðinum „Ég hef alla tíð unnið í fiski og kann ekkert annað. Ég hef unn- ið við flökunarvélarnar í áratugi og veit hvaða vandamál eru í flökuninni. Sú reynsla varð til þess að ég fór að velta fyrir mér hvernig hægt væri að minnka flökunargalla, jafnframt því að draga úr uppitíma flökunarvél- anna, þ.e. þeim tíma sem þarf að stöðva vélarnar til að skipta um hnífa eða hreinsa bein úr vélunum. Það var upphafið að sporðskurðarvélinni,” segir Unn- steinn en hann starfar í fisk- vinnslu G.Run ehf. í Grundar- firði og þar var fyrsta vélin keyrð á sínum tíma. Og er að sjálfsögðu notuð þar daglega. Vélin er staðsett fyrir framan hausarann í vinnslunni og þannig rennir sá starfsmaður sem matar inn á hausarann sporðenda fisksins í hólf á skurðarvélinni og sker hún sporðinn af á sekúndubroti. Það má því orða þetta þannig að fiskurinn hafi augnabliks við- komu í sporðskurðinum um leið og hann er settur í hausar- ann. Unnsteinn segir að það hafi einmitt verið ánægjulegt fyrir sig að sjá að engin töf verð- ur á innmötuninni í hausarann við þetta. Betra bit í flökunarhnífunum „Upphaflega hugmyndin hjá mér með sporðskurðinum var að tryggja betri fráskurð í flök- unarvélunum en síðan kom í ljós að innsetning í þær varð mun auðveldari þegar búið var að skera sporðinn frá. Flökunin varð betri bæði á nýjum og stíf- um fiski, sem og eldri. Við sjáum hjá okkur hér í G.Run ehf. að skemmdir á fiski í flökun eru hverfandi eftir að við tókum vélina í notkun miðað við það sem var áður. Roðflettingin verður auðveldari og allt þetta skilar sér í áferðarfallegri flök- um og þunnildin verða sömu- leiðis betri. Með því að losna við sporðinn strax í upphafi vinnslunnar lengist sá tími sem bitið í flökunarhnífunum endist. Enda gömul saga og ný að beittari hnífar skera einfaldlega betur,” segir Unnsteinn. Mestur ávinningur í smáfiskinum Engar stillingar þarf að gera á sporðskurðarvélinni, hvort heldur er verið að skera stóran eða lítinn fisk. Valkostur er um skurð í tveimur hólfum á vél- inni, annars vegar fyrir fisk und- ir 5 kg og hins vegar yfir þeirri stærð. Allt upp í stórfiska ef því er að skipta. „Við sjáum hér hjá G.Run ehf. að hausaramaður afkastar 68 körum af þorski á dag, þ.e. að þessi aukaaðgerð breytti engu um vinnsluhraðann í hausun. Í flestum tilfellum eru vinnslurn- ar að staðsetja sporðskurðarvél- ina við hausarann, líkt og við gerum, en í sumum vinnslum er fiskurinn stærðarflokkaður og þá er það sá starfsmaður sem raðar í flokkarann sem sporðs- ker fiskinn,“ segir Unnsteinn. Reynslan hefur sýnt að ávinningurinn af sporðskurðin- um á ekki aðeins við um þorsk- inn og ýsuna heldur segir Unn- steinn að mun betur gangi að flaka steinbít, löngu og keilu með þessari aðferð. „En hvað mestan árangur sjáum við í vinnslu á smáfiskinum,“ segir hann. Tækifæri í hausuninni Unnsteinn hefur sýnt vélina á tveimur síðustu sjávarútvegs- sýningum sem haldnar hafa verið hér á landi og segir hann nokkrar vinnslur sýna henni mikinn áhuga þessa dagana. „Ég hef ekkert kynnt vélina á er- lendum mörkuðum ennþá en þar veit ég að eru líka tækifæri í sölu,” segir hann og viðurkennir að önnur tæknilausn fyrir fisk- vinnsluna sé í farvegi. „Án þess að vilja segja of mikið að svo stöddu um hana þá hef ég lengi verið að horfa til nýjunga í hausun á fiski. Þar má einnig ná miklum árangri í að færa hærri prósentu af hverjum unnum fiski yfir í verðmætis- hærri afurðaflokka. Hvert brot úr prósenti skiptir verulegu máli. Það vitum við sem störf- um í fiskvinnslunni,“ segir Unn- steinn. T æ k n i Fiskvinnslu- og uppfinningamaðurinn Unnsteinn Guðmundsson í Grundarfirði Sporðskurðarvélin hefur sannað sig Unnsteinn sporðsker ýsu í fiskvinnslu G.run ehf. í Grundarfirði. Þannig líta sporðskorin flök út.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.